Sigurður Einarsson sakar Bjarna um tvískinnung

Sigurður Ein­ars­son, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður Kaup­þings, gagn­rýnir Bjarna Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra og for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins í færslu sem hann birti á Facebook-síðu sinni í morgun. Sigurður sakar Bjarna um tví­skinn­ung fyrir að vilja rann­sókn á einka­væð­ingu Bún­að­ar­bank­ans árið 2003 en ekki á neyð­ar­láni Seðla­bank­ans til Kaup­þings og sölu á veði í danska FIH bank­anum.

„Bjarna finnst til­gangs­laust að rann­saka hvort seðla­banka­stjóri hafi gert mis­tök þegar veðin í FIH bank­anum voru seld árið 2012 (aðila sem Bjarni segir sjálfur að hafi stór­grætt á við­skipt­unum við Seðla­bank­ann sem tap­aði millj­örðum á rangri tíma­setn­ingu við­skipt­anna) hvetur Bjarni til rann­sóknar á einka­væð­ingu Bún­að­ar­bank­ans fyrir tæpum fjórtán árum,“ segir Sigurður meðal ann­ars.

Sigurður fjallar um ummæli Bjarna Bene­dikts­sonar um veð Seðla­bank­ans í danska FIH bank­anum, veð sem bank­inn tók gegn 500 millj­óna evra neyð­ar­láni til Kaup­þings þann 6. októ­ber 2008. Margt um þessa lán­veit­ingu er enn á huldu, en um hana var meðal ann­ars rætt í einu fræg­asta sím­tali Íslands, á milli Davíðs Odds­sonar þáver­andi Seðla­banka­stjóra og Geirs Haarde þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra. Tæpur helm­ingur þessa láns end­ur­heimt­ist aldrei vegna þess að veðið var fjarri því jafn verð­mætt og talið hafði verið. Lánið komst aftur í hámæli í októ­ber eftir að Kastljós og Stöð 2 birtu vitna­skýrslu frá árinu 2012 þar sem þetta er til umfjöll­unar, og meðal ann­ars komu í fyrsta sinn upp­lýs­ingar úr sím­tal­inu fram.

Bjarni var spurður um málið í Reykja­vík síð­degis í októ­ber, þar sem hann var meðal ann­ars spurður hvort Seðla­bank­inn hafi gert mis­tök þegar FIH bank­inn var seldur. „Það er alltaf svo auð­velt að horfa til baka, eins og þetta fólk sem dró Geir H Haarde fyrir Landsdóm gerði, við hefðum gert þetta öðru­vísi og þetta varðar við lög og þarf að rann­saka og ákæra. Ég er ekki þannig inn­rættur að ætla setja mig í spor þeirra sem þetta höndl­uðu mér finnst hins­vegar nauð­syn­legt að þetta sé upp á borðum. Mér finnst umræðan um það sem gerð­ist þennan dag þegar lánið er veitt vera víða á miklum villi­götum og sér­stak­lega það að það eigi eftir að skoða ein­hverja hluti,“ sagði Bjarni og Sigurður vitnar í þessi ummæli.

Í maí hafi hins vegar verið lagt til að skipuð yrði nefnd til að rann­saka einka­væð­ingu Bún­að­ar­bank­ans í byrjun árs 2003, með til­liti til aðkomu þýska bank­ans Hauck & Auf­häuser. Bjarni hefur talað fyrir slíkri rann­sókn og sagt að um það sé ein­hugur á þingi.

Þetta finnst Sigurði tví­skinn­ungur, og sýni að „yfir­lýs­ing Bjarna um eigið inn­rætti og gagn­rýni gagn­vart þeim sem "hafa sífellt til­hneig­ingu til að horfa til baka í þeim til­gangi að rann­saka og ákæra" gildi ein­ungis gagn­vart stjórn­kerf­inu og emb­ætt­is­mönnum lands­ins en hann hafi ekki sama umburð­ar­lyndi gagn­vart hugs­an­legum mis­tökum þegar kemur að sam­fé­lag­inu sem slíku.“

Rannsókn á kaupum S-hópsins

Rann­sóknin bein­ist sér­stak­lega að hlut þýska einka­bank­ans Hauck & Auf­häuser að kaupum S-hóps­ins á Bún­að­ar­bank­anum í byrjun árs 2003. Rann­sóknin verður fram­kvæmd eftir ábend­ingu Tryggva Gunn­ars­son­ar, umboðs­manns Alþing­is, sem sendi stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd bréf þar sem hann lagði til að skipuð yrði rann­sókn­ar­nefnd um mál­ið. Þetta eigi að gera vegna þess að Tryggvi hafi nýjar upp­lýs­ingar sem byggja á ábend­ingum um hver raun­veru­leg þátt­taka þýska bank­ans var.

Til við­bótar er til­gangur til­lög­unnar að „skapa grund­völl fyrir nán­ari afmörkun á ályktun Alþingis frá 7. nóv­em­ber 2012, um rann­sókn á einka­væð­ingu Fjár­fest­ing­ar­banka atvinnu­lífs­ins hf., Lands­banka Íslands hf. og Bún­að­ar­banka Íslands hf., sbr. ákvæði laga um rann­sókn­ar­nefndir með síð­ari breyt­ing­um."

Sú skýr­ing sem gefin var um aðkomu Hauck & Auf­häuser að kaup­unum hefur lengi veri dregin í efa og því oft verið haldið fram í opin­berri um­ræðu að bank­inn hafi verið leppur fyrir ráð­andi aðila í S-hópn­um.

Þá hefur sú skoðun verið mjög ríkj­andi lengi að einka­væð­ing rík­is­bank­anna tveggja, Lands­banka Íslands og Bún­að­ar­bank­ans, hafi farið fram eftir meintri helm­ing­ar­skipta­reglu þáver­andi stjórn­ar­flokka, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks. Samkvæmt þeirri kenn­ingu fengu Björg­ólfs­feðgar, sem þóttu Sjálf­stæð­is­flokknum þókn­an­legir, að kaupa Lands­bank­ann og Kjartan Gunn­ars­son, fram­kvæmda­stjóri Sjálf­stæð­is­flokks­ins sat áfram í banka­ráði hans eftir einka­væð­ingu. S-hóp­ur­inn fékk að kaupa Bún­að­ar­bank­ann, en hann var leiddur af Ólafi Ólafs­syni kenndum við Samskip, og Finni Ing­ólfs­syni, þá for­stjóra VÍS en áður vara­for­manni og ráð­herra Fram­sókn­ar­flokks­ins. Finnur var þá til­tölu­lega nýhættur sem seðla­banka­stjóri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár