Flestir treysta Ásmundi Einari og fæstir Jóni Gunnarssyni

Nokkurn mun má sjá á trausti lands­manna til ráð­herra eftir flokkslínum, sam­kvæmt könnun MMR, en ráð­herrar Fram­sókn­ar­flokks­ins njóta meira trausts og minna van­trausts en allir aðrir ráð­herrar, að for­sæt­is­ráð­herra und­an­skildum.

Ásmundur Einar Daðason
Ásmundur Einar Daðason Mynd: Bára Huld Beck

Ásmundur Einar Daðason mennta- og barna­mála­ráð­herra er sá ráð­herra sem nýtur mests trausts meðal lands­manna en fæstir treysta Jóni Gunn­ars­syni, dóms­mála­ráð­herra.

Þetta kemur fram í nýrri könnun MMR á trausti til ráð­herra í rík­is­stjórn Íslands.

Fram kemur hjá MMR að nokkurn mun megi sjá á trausti til ráð­herra eftir flokkslínum en ráð­herrar Fram­sókn­ar­flokks­ins njóta meira trausts og minna van­trausts en allir aðrir ráð­herrar, að for­sæt­is­ráð­herra und­an­skildum. Þá mæld­ust ráð­herrar Sjálf­stæð­is­flokks­ins með meira van­traust en ráð­herrar ann­arra rík­is­stjórn­ar­flokka.

Konur treysa Katrínu betur

Karlar reynd­ust lík­legri til að segj­ast bera mjög eða frekar mikið traust til Sigurðar Inga Jóhanns­sonar, eða 56 pró­sent, og Willum Þórs Þórs­sonar, eða 53 pró­sent, heldur en konur en konur voru öllu lík­legri en karlar til að lýsa trausti til Katrínar Jak­obs­dóttur, for­sæt­is­ráð­herra.

Traust til ráð­herra reynd­ist almennt hærra hjá eldri svar­endum en þeim yngri og mátti greina aukið traust til Ásmundar Einars Daða­sonar, Sigurðar Inga og Willum Þórs með auknum aldri svar­enda. Þá reynd­ust svar­endur 68 ára og eldri lík­legri til að lýsa trausti til Katrínar Jak­obs­dóttur en lít­ill munur reynd­ist á trausti til Lilju Alfreðs­dóttur eftir aldri.

Traust til Ásmundar Einars mælist hátt þvert á flokka

Nokkurn mun má sjá eftir stjórn­mála­skoð­unum svar­enda, að því er fram kemur hjá MMR. Traust til Ásmundar Einars Daða­sonar mæld­ist hátt þvert á flokka en yfir 70 pró­sent stuðn­ings­fólks rík­is­stjórn­ar­flokk­anna og um helm­ingur stuðn­ings­fólks Sam­fylk­ing­ar­innar, Pírata, Við­reisnar og Flokks fólks­ins kváð­ust bera frekar eða mjög mikið traust til hans.

Katrín Jak­obs­dóttir mæld­ist með nær algjöran stuðn­ing meðal stuðn­ings­fólks Vinstri grænna en 96 pró­sent þeirra kváð­ust bera mikið traust til for­sæt­is­ráð­herr­ans. Katrín naut einnig mik­ils stuðn­ings meðal stuðn­ings­fólks hinna rík­is­stjórn­ar­flokk­anna en rúm­lega þrír fjórðu hlutar stuðn­ings­fólks Fram­sóknar og Sjálf­stæð­is­flokks­ins kváð­ust bera mikið traust til hennar, sem og um helm­ingur stuðn­ings­fólks Sam­fylk­ing­ar­innar og Við­reisnar. Traust til Sigurðar Inga Jóhanns­sonar og Lilju Alfreðs­dóttur mæld­ist einnig mest meðal stuðn­ings­fólks rík­is­stjórn­ar­flokk­anna en minna hjá stuðn­ings­fólki ann­arra flokka en traust til Willums Þórs Þórs­sonar mæld­ist mest meðal stuðn­ings­fólks Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Fram­sóknar og Mið­flokks­ins.

Stuðningsfólk ríkisstjórnarflokkanna vantreystir Jóni

Hátt hlut­fall stuðn­ings­fólks rík­is­stjórn­ar­flokk­anna lýsir van­trausti til Jóns Gunn­ars­sonar dóms­mála­ráð­herra en helm­ingur stuðn­ings­fólks Vinstri grænna, þriðj­ungur stuðn­ings­fólks Fram­sóknar og fjórð­ungur stuðn­ings­fólks Sjálf­stæð­is­flokks­ins kvaðst bera frekar eða mjög lítið traust til dóms­mála­ráð­herr­ans.

Þá kvaðst um helm­ingur stuðn­ings­fólks Vinstri grænna og fjórð­ungur stuðn­ings­fólks Fram­sóknar bera lítið traust til Bjarna Bene­dikts­sonar og rúmur helm­ingur stuðn­ings­fólks Vinstri grænna og þriðj­ungur stuðn­ings­fólks Fram­sóknar lýsti van­trausti á Áslaugu Örnu Sig­ur­björns­dóttur.

Könnunin var fram­kvæmd dag­ana 29. nóv­em­ber til 2. des­em­ber 2021 og var heild­ar­fjöldi svar­enda 933 ein­stak­lingar, 18 ára og eldri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár