Erfðabreyting í músafóstrum kemur í veg fyrir alvarlega erfðasjúkdóma

Tækninni til erfða­breyt­inga fleygir áfram og sam­hliða auk­inni þekk­ingu verða til tæki­færi til að nýta þessa tækni til að koma í veg fyrir sjúk­dóma. Þar sem erfða­sjúk­dómar geta verið marg­slungnir er mik­il­vægt að vita hvar og hvenær á að grípa inn í til að lækna þá, eða það sem betra er – koma í veg fyrir þá.

Músarungi
Músar­ungi Mýs sem fæð­ast með galla í genum sem tengj­ast loka­þroskun lungn­anna lifa yfir­leitt ekki lengi eftir fæð­ingu. Í til­felli mús­anna sem voru not­aðar í þess­ari rann­sókn var dán­ar­hlut­fallið 100% hjá fóstrum sem voru með galla í SFTPC. Þegar mýsnar höfðu verið með­höndl­aðar og erfða­breytt lækk­aði dán­ar­tíðnin við fæð­ingu niður í 78%. Það er að segja, 22% fóstr­anna gátu andað eðli­lega eftir að þau fædd­ust.

Þegar sjúk­dómar koma til vegna galla í einu geni er það kallað ein­gena erfða­sjúk­dómur.  Slíkir erfða­sjúk­dómar eru mjög sjald­gæfir en þeir henta vel til rann­sókna og til­rauna á þeim kostum sem erfða­breyt­ingar geta haft í för með sér. Það er aug­ljós­lega auð­veld­ara að laga galla sem á upp­runa sinn á einum stað í erfða­meng­inu sam­an­borið við marga.

Auk þess að þurfa bara að laga galla í einu geni er mik­il­vægt að skilja vel hvar genið gegnir hlut­verki og á hvaða tíma­punkti í lífi ein­stak­lings­ins. Það liggur því bein­ast við að nýta þessa tækni til að laga ein­gena galla sem geta valdið alvar­legum skaða. Dæmi um slíka sjúk­dóma eru gallar í genum eins og SFTPB, SFTPC eða ABCA3, sem gegna mik­il­vægu hlut­verki við þroskun lungn­anna.

Þessi gen taka þátt í að mynda vökva eða nokk­urs konar slím sem þekur lungun að inn­an­verðu. Vökvinn er mik­il­vægur til að halda lung­unum rökum en líka hreinum. Í til­fellum þar sem ofan­talin gen eru ekki starf­hæf getur sam­setn­ing vökvans leitt til þess að lungun eru ekki starf­hæf.

Tímasetning viðgerðarinnar

Við fæð­ingu breyt­ast aðstæður ein­stak­lings­ins dramat­ískt þegar lungun fá allt í einu það hlut­verk að koma súr­efni úr and­rúms­loft­inu og inn í blóð­rás­ina. Fóst­ur­þroski getur því gengið á eðli­legan hátt þrátt fyrir galla í þeim genum sem sjá um þroskun lungn­anna.

Þegar ein­stak­lingur er með galla í einu af ofan­töldum genum getur það valdið skorti á fram­leiðslu á lungnaslím­inu eða offram­leiðslu, sem er oft verra að með­höndla. Til að lungun geti starfað eðli­lega, öll efna­sam­skipti geti farið fram og lungun geti þan­ist eðli­lega út þarf þessi yfir­borðs­vökvi að vera til staðar í réttu magni.

„Erfða­breyt­ingar í fóstrum, á síð­ustu stigum með­göng­unnar, eru því fýsi­legur kostur“

Til að koma í veg fyrir að gallar í þessum genum valdi skaða er mik­il­vægt að grípa inn í áður en lungun þurfa að taka til starfa, fyrir fæð­ingu. Erfða­breyt­ingar í fóstrum, á síð­ustu stigum með­göng­unnar, eru því fýsi­legur kostur til að hjálpa ein­stak­lingum með erfða­sjúk­dóma af því tagi að lifa af.

CRISPR/Cas tæknin

Með til­komu nýrrar tækni, CRISPR/Cas, verða erfða­breyt­ingar auð­veld­ari sökum þess hve návæm­lega er hægt að stað­setja þær. CRIPSR/Cas kerfið, sem á upp­runa sinn í bakt­er­íum, ber kosti sína í ens­ím­inu Cas9. Cas9 er prótín sem flokk­ast undir ensím vegna þess að það klippir DNA röð­ina í tvennt.

Cas9 leitar eftir erfða­efn­inu að sam­röðun við mark­genin sín. Mark­genið er þá það gen sem leit­ast er við að breyta eða laga. Þegar full­komin sam­röðun næst fer ens­ím­virkni Cas9 af stað og klippir í sundur erfða­efnið svo tví­þátt­brot mynd­ast.

Þar sem frumur lík­am­ans eru við­búnar því að gera við brot á erfða­efn­inu, taka nátt­úru­legir við­gerð­ar­ferlar við og púsla saman erfða­efn­inu og setja heil­brigt ein­tak af gen­inu inn þar sem tví­þátta­brotið átti sér stað.

Tilraunir á músafóstrum

Í rann­sókn sem fram­kvæmd var við Children‘s Hospital of Phila­delphia var músa­fóstrum sem voru með stökk­breyt­ingu í SFTPC gen­inu erfða­breytt á síð­ustu stigum með­göng­unnar. Þegar mýsnar voru gengnar því sem sam­svarar tveimur þriðju af með­göngu hjá mönnum voru þær með­höndl­aðar með CRISPR erfða­tækn­inni til að laga stökk­breyt­ing­una í SFTPC gen­inu.

Eitt mik­il­væg­asta skrefið í til­raun­inni var að laga erfða­efnið á síð­ustu stigum með­göng­unnar og að fram­kvæma erfða­breyt­ing­una í réttu líf­færi. Þær frumur sem þurfa allra mest á heil­brigðu SFTPC geni að halda eru þær sem eru yst á yfir­borði lungn­anna og sjá um að seyta út vökv­anum sem þekur þau að innan.

Erfðabreytingatól með áfangastað

Þegar fóstrið hefur náð á þriðja stig með­göngu, í til­fellum músa­fóstr­anna um það bil fjórum dögum fyrir fæð­ingu þeirra, hafa flestir vefir þegar mynd­ast og líf­færin eru farin að æfa sig fyrir það sem koma skal. Þar á meðal lungun, þótt þau gegni engu hlut­verki meðan fóstrið er í móð­ur­kviði.

„Mýs sem fæð­ast með galla í genum sem tengj­ast loka­þroskun lungn­anna lifa yfir­leitt ekki lengi eftir fæð­ingu“

Önd­unaræf­ingar fóst­urs­ins ásamt örvun, sem á sér stað þegar styrkur koltví­oxíðs í blóði móð­ur­innar hækkar örlítið, gerir það að verkum að erfða­breyt­ingatólin rata á réttan stað. Þegar CRISPR/Cas kerf­inu hafði verið komið inn í legvatnið þá átti það greiða leið inn í lungun, þar sem vinnan var unnin á ystu lögum lungna vefs­ins.

Dánartíðnin lækkar

Mýs sem fæð­ast með galla í genum sem tengj­ast loka­þroskun lungn­anna lifa yfir­leitt ekki lengi eftir fæð­ingu. Í til­felli mús­anna sem voru not­aðar í þess­ari rann­sókn var dán­ar­hlut­fallið 100% hjá fóstrum sem voru með galla í SFTPC.

Þegar mýsnar höfðu verið með­höndl­aðar og erfða­breytt svo að SFTPC var í lagi lækk­aði dán­ar­tíðnin við fæð­ingu niður í 78%. Það er að segja, 22% fóstr­anna gátu andað eðli­lega eftir að þau fædd­ust. Rað­grein­ing á fru­munum sem þekja innsta lag lungn­anna leiddi í ljós að erfða­breyt­ingin heppn­að­ist og þess vegna voru lungun starf­hæf.

Eftir fæð­ing­una var fylgst með músaung­unum til að meta hvort erfða­breyt­ingin hefði haft ein­hver nei­kvæð áhrif á þau, en svo virt­ist ekki vera.  

Hvað þýðir þetta?

Þessi rann­sókn sýnir að erfða­breyt­ingar á síð­ustu stigum með­göngu eru mögu­legar og auka lífslíkur ein­stak­ling­anna sem eiga í hlut.

Enn sem komið er, er ekki hægt að fram­kvæma slíkar breyt­ingar í manna­fóstrum en til­gangur rann­sóknar sem þess­arar snýst frekar um að sýna fram á hvort erfða­breyt­ingar á þessum stigum með­göngu hafa hugs­an­legar auka­verk­anir á fóstrin, hvort breyt­ingin skili sér á réttan stað og hvort hún hafi til­skilin áhrif.

Þótt erfða­breyt­ingar með CRISPR hafi gert til­raunir sem þessar mun auð­veld­ari en áður þá er þekk­ing vís­inda­heims­ins enn ekki nægi­lega mikil til að fara á næsta stig, sem felst í til­raunum á dýrum skyld­ari mann­inum eða mann­inum sjálfum.

Ítarefni:

https://www.sciencedaily.com/releases/2019/04/190417171025.htm

https://stm.sciencemag.org/content/11/488/eaav8375

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár