Fella niður skatta á eldri borgara og stytta ferðatíma um 20 prósent

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn í Reykja­vík hefur birt kosn­inga­lof­orð sín. Um er að ræða sjö aðgerðir þar á meðal stytt­ing ferða­tíma, nið­ur­fell­ing fast­eigna skatta á 70 ára og eldri og bygg­ing 2.000 íbúða á ári.

Sjál­stæð­is­flokk­ur­inn í Reykja­vík ætlar að stytta ferða­tíma borg­ar­búa til og frá vinnu um 20 pró­sent, fella niður fast­eigna­skatt á 70 ára og eldri og tryggja öllum börnum leik­skól­la­pláss frá 18 mán­aða aldri.

Þetta er meðal þess sem kom fram á fundi flokks­ins í morgun sem hald­inn var í Iðnó. Eyþór Arnalds, odd­viti borg­ar­stjórn­ar­flokks­ins, kynnti kosn­inga­lof­orðin, sem alls eru sjö.

[adspot]Flokk­ur­inn setur fram sjö kosn­inga­lof­orð fyrir kom­andi kjör­tíma­bil:

  • 2.000 íbúðir verði byggðar að jafn­aði á ári á kjör­tíma­bil­inu
  • Ferða­tími til og frá vinnu stytt­ist um 20%
  • Fella niður fast­eigna­skatt á 70 ára og eldri
  • Öll börn fái leik­skóla­pláss við 18 mán­aða aldur
  • Svifryks­mengun fari ekki yfir heilsu­vernd­ar­mörk
  • Reykja­vík verði græn­asta borg í Evrópu
  • Styttum afgreiðslu­tíma í kerf­inu um helm­ing

Í glæru­kynn­ingu frá fund­inum kemur meðal ann­ars fram að bæta eigi Strætó með tíð­ari ferðum, bættu leið­ar­kerfi og betri skýlum. Auk þess eigi að nota ljósa­stýr­ingu til að bæta flæði í umferð. Þá eigi að hækka lægstu launin á leik­skól­unum og hækka nið­ur­greiðslu til dag­for­eldra.

Til að losna við hættu­lega svifryks­mengun ætlar flokk­ur­inn að þrífa borg­ina oftar og reglu­lega, sem þau segja vera skítuga, gras ekki slegið og götur og stígar ekki sóp­aðir.

Þá segir flokk­ur­inn að álögur hafi hækkað á eldri borg­ara, fast­eigna­skattar hafi hækkað víða um 50 pró­sent á fjórum árum og hús­næði fyrir eldri borg­ara sé dýr­ara en áður. Styðja eigi við þá eldri borg­ara sem geta og vilja búa heima, efla heima­þjón­ustu og létta álögum með því að fella niður skatta á 70 ára og eldri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár