Segir að synjun þriðja orkupakkans gæti stefnt aðild Íslands að EES í tvísýnu

Carl Baudenbacher, fyrr­ver­andi for­seti EFTA-dóm­stóls­ins, telur að það gæti telft aðild Íslands að evr­ópska efna­hags­svæð­inu í tví­sýnu verði þriðja orku­pakk­anum hafnað. Baudenbacher kynnir utan­rík­is­mála­nefnd álits­gerð sína vegna þriðja orku­pakk­ans í dag.

Carl Baudenbacher
Carl Baudenbacher Mynd: EFTA

Carl Baudenbacher, fyrr­ver­andi for­seti EFTA-dóm­stóls­ins, telur að það gæti stefnt aðild Íslands að evr­ópska efna­hags­svæð­inu í tví­sýnu ef Íslend­ingar hafna þriðja orku­pakk­ann. Hann segir að þótt mögu­legt sé að hafna upp­töku nýrrar lög­gjafar Evr­ópu­sam­bands­ins í EES-samn­ing­inn á loka­stigum máls­með­ferðar þá sé þriðji orku­pakk­inn ekki mál af því tagi að rétt­læt­an­legt sé að grípa til slíkra neyð­ar­ráð­staf­ana.

Þetta kemur fram í álits­gerð sem Baudenbacher vann fyrir utan­rík­is­mála­nefnd Alþingis vegna orku­pakka­máls­ins en hann mun kynna nefnd­inni álits­gerð sína síðar í dag.

Ríki hefur aldrei neitað að staðfesta ákvörðun EES-nefndarinnar áður

Í til­kynn­ingu á vef stjórn­ar­ráðs­ins segir að í umræðum um þings­á­lykt­un­ar­til­lögu utan­rík­is­ráð­herra um inn­leið­ingu þriðja orku­pakk­ann hefur verið kallað eftir því að hafna inn­leið­ing­unni og leita eftir frek­ari und­an­þágum með nýrri ákvörðun sam­eig­in­legu EES-nefnd­ar­innar. Hins vegar hefur aldrei komið til þess í 25 ára sögu EES-samn­ings­ins að ríki hafi neitað að stað­festa ákvörðun sam­eig­in­legu EES-nefnd­ar­innar.

Því segir í til­kynnign­unni að utan­rík­is­ráð­herra þótti rétt að leita álits sér­fræð­inga um afleið­ingar þess að synja ákvörðun nefnd­ar­innar stað­fest­ingar. Utan­rík­is­mála­nefnd Alþingis hefur nú fengið í hend­urnar álit Baudenbacher og álit Alþjóða-og Evr­ópu­stofnun Háskól­ans í Reykja­vík.

Ísland hafði tækifæri til að mótmæla upptöku orkupakkans í EES-samninginn

Í álits­gerð Baudenbacher kemur fram að að gæti leitt til við­bragða af hálfu ESB innan sam­eig­in­legu EES-nefnd­ar­innar, í sam­ræmi við 102. grein EES-samn­ings­ins, ef Íslands hafnar upp­töku þriðja orku­pakk­ans, öðrum til varn­aðar. Hann bendir á að Ísland hafi þegar fengið tæki­færi til að hafa áhrif á upp­töku orku­pakk­ans í EES-samn­ing­inn en að Ísland hafi hvorki and­mælt því að þriðji orku­pakk­inn væri EES-tækur né mót­mælt því þegar mál­inu væri flýtt árið 2014.

Hann segir jafn­framt að Ísland beri ákveðna skyldu gagn­vart hinum EFTA-ríkj­unum innan EES, Noregi og Liechtenstein. Þau hafi aflétt stjórn­skipu­legum fyr­ir­vörum sínum og vænti því þess að Ísland geri slíkt hið sama ella öðlist þriðji orku­pakk­inn ekki gildi gagn­vart neinu þeirra. Þá telur Baudenbacher litlar líkur á að sam­eig­in­lega EES-nefndin fall­ist á að taka upp málið að nýju.

Ekki tilefni til að grípa í neyðarhemilinn

Ef Ísland dregur sig út úr þriðja orku­pakk­anum gæti það því, að mati Baudenbachers, orðið til þess að aðild­inni að EES-samn­ingnum yrði, til lengri tíma litið, teflt í tví­sýnu. Reynsla ann­arra Evr­ópu­ríkja utan EES sýni að Íslandi stæði þá aðeins til boða svo­nefnd „úkra­ínsk leið“ hefði það áhuga á sam­starfi við ESB. Formlega væru deilu­mál þá leyst með gerð­ar­dómi þar sem ESB gæti áfrýjað málum ein­hliða til dóm­stóls Evr­ópu­sam­bands­ins.

„Með til­liti til alls þessa verður að draga þá ályktun að fyrir hendi sé sá mögu­leiki að hafna upp­töku nýrra laga ESB í EES-rétt. Hins vegar er það mál sem hér er til umfjöll­unar ekki við­eig­andi til­efni til að grípa í neyð­ar­hem­il­inn.“ segir Carl Baudenbacher segir að lokum í áliti sínu.

Hefði í för með sér mikla lagalega og pólitíska óvissu

Alþjóða-og Evr­ópu­stofnun Háskól­ans í Reykja­vík varar einnig við því að íslenska ríkið hafni þriðja orku­pakk­anum í áliti sínum. Stofnun segir að það að ljóst sé að heim­ild íslenska rík­is­ins til að hafna aflétt­ingu stjórn­skipu­lags fyr­ir­vara og upp­töku gerðar í EES-samn­ing­inn feli í sér algjört neyð­ar­úr­ræði. Synjun íslenska rík­is­ins um aflétt­ingu stjórn­skipu­lags fyr­ir­vara fæli í sér for­dæma­lausa stöðu sem hefði í för með sér mikla laga­lega og póli­tíska óvissu og setti fram­kvæmd EES-samn­ings­ins í upp­nám. Þá kynni synj­unin að leiða til laga­legrar óvissu fyrir fyr­ir­tæki og neyt­endur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár