Endurkoma Trumps, vopnahlé og gervigreindarbóla

Trump fer mikinn, páfa­skipti í Vatíkaninu, vopnahlé á Gaza og fjár­festingar í gervi­greind. Heimildin tók saman það helsta í erlendum fréttum á árinu 2025.

Vopnahlé
Vopnahlé Íbúar á Gaza snúa heim en vopna­hléi var komið á í októ­ber. Mynd: AFP

Endurkoma Trumps, páfa­skipti í Vatíkaninu, vopnahlé á Gaza og fjár­festingar í gervi­greind eru meðal þess sem var í deiglunni á árinu. Heimildin tók saman það helsta í erlendum fréttum. 

Trump snýr aftur

Þjóðernis­hyggja og verndar­stefna, fjölda­brott­vísanir óskráðra innflytjenda og niðurrif deilda alríkis­stjórnarinnar voru í forgrunni hjá Donald Trump Bandaríkja­forseta.

End­ur­komaTrump verður Banda­ríkja­for­seti á ný.

Frá endurkomu sinni í Hvíta húsið í janúar hefur Trump beint spjótunum að andstæðingum sínum, sent þjóð­varðliðið til borga þar sem Demó­kratar eru í meirihluta, hrætt fjölmiðla og barist gegn áætlunum um fjöl­breytileika og inngildingu.

Hann hefur einnig hafið umfangs­miklar diplómatískar aðgerðir, með misjöfnum árangri. Meðal þeirra eru samningar milli Austur-Kongó og Rúanda, Kambódíu og Taílands en engir gengu eftir. Óvissa ríkir um samning Armeníu og Aserbaídsjan sem og samninga­viðræður Egypta­lands og Eþíópíu. Betur hefur gengið í tilfelli Ísraels og Hamas, …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár