Kísilver PCC þarf mögulega 5 milljarða innspýtingu

Hlut­hafar kís­il­vers­ins á Bakka við Húsavík leita nú leiða til að bæta fjár­hags­stöðu félags­ins. Mögulega er talið að það þurfi að leggja félag­inu til 5 millj­arða.

Kísilver PCC á Bakka gæti þurft að fá inn­spýt­ingu að fjár­hæð 40 millj­ónir Banda­ríkja­dala, jafn­virði um fimm millj­arða íslenskra króna til að tryggja rekstr­ar­grund­völl kís­il­vers­ins, sam­kvæmt heim­ildum

Mark­að­ar­ins

, fylgi­riti Frétta­blaðs­ins.

Áformað er að sú fjár­mögnun komi að stærstum hluta frá þýska fyr­ir­tæk­inu PCC SE sem á 86,5 pró­sent hlut í PCC BakkaSilicon. Eignir PCC BakkaSilicon námu um 360 millj­ónum dala í lok síð­asta árs og var eigið fé félags­ins um 40 millj­ónir dala.

Fjár­mögnun yrði að öllum lík­indum ann­að­hvort í formi nýs hluta­fjárs eða hlut­haf­a­láns, sam­kvæmt heim­ildum Mark­að­ar­ins. Fyr­ir­tækið hefur nú þegar lagt kís­il­ver­inu til aukið fé í formi hlut­haf­a­láns að fjár­hæð 34 millj­ónir dala sem var veitt í fyrra.

Vonir um að hægt verði að starfrækja ofnanna í ár

[links] Fram­kvæmdir við verk­smiðj­una hófust fyrst í júní árið 2015 og á árleg fram­leiðsla að nema um 32 þús­und tonnum. Starf­semi kís­il­vers­ins var síðan form­lega gang­sett í maí í fyrra en vand­ræði í hreinsi­virkni verk­smiðj­unnar hafa valdið því að slökkva hefur þurft á ljós­boga­ofn­unum en von­ast er til þess að hægt verði að byrja að starf­rækja þá á fullum afköstum fyrir árs­lok 2019.

Íslenskir líf­eyr­is­sjóðir, þar á emaðl Gildi, Stapi og Birta, ásamt Íslands­banka, fara með 13,5 pró­senta hlut í kís­il­veri PCC á Bakka í gegnum sam­lags­hluta­fé­lagið Bakka­stakk. Auk þess hafa sjóð­irnir fjár­fest í breyt­an­legu skulda­bréfi félags­ins að fjár­hæð 62 millj­ónir dala. Samtals nemur fjár­fest­ing líf­eyr­is­sjóð­anna og bank­ans í kís­il­ver­inu, bæði í for­gangs­hlutafé og breyt­an­legu skulda­bréfi, um tíu millj­örðum króna.

Í umfjöllun Mark­að­ar­ins segir að einnig sé til skoð­unar að fresta tíma­bundnum vaxta­greiðslum af breyt­an­legum skulda­bréf­inu til líf­eyr­is­sjóða til að bæta sjóðs­streymi félags­ins til skamms tíma. Samkvæmt Mark­að­inum var skulda­bréfið, sem var bók­fært á nærri 9,5 millj­arða króna í árs­lok 2018 í reikn­ingum Bakka­stakks, er með breytirétti og ber 8,5 pró­senta vexti. Miðað við það nema árlegar vaxta­greiðslur af bréf­inu því um 800 millj­ónum króna.

Þá hefur auk þess verið rætt við líf­eyr­is­sjóð­ina og Íslands­banka um að auka við fjár­magn í rekstr­inum ásamt PCC SE en til stendur að gera hlut­höfum Bakka­stakka nánar grein fyrir stöð­unni á fundi þriðju­dag­inn 17. sept­em­ber næst­kom­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár