Menntamálaráðuneytið telur sig hafa uppfyllt eftirlitsskyldu sína með RÚV

Mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neytið tekur ekki afstöðu til ábend­ingar Rík­is­end­ur­skoð­unar um að færa eign­ar­hlut rík­is­ins í RÚV til fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins. Ráðu­neytið segir að það sé Alþingis að ákvarða um slíkt.

Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra.
Lilja Alfreðs­dóttir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck


Mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neytið telur sig hafa upp­fyllt eft­ir­lits­skyldu sína með Rík­is­út­varp­inu (RÚV) eins og kveðið er á um í lögum um hluta­fé­lög og eig­enda­stefnu rík­is­ins. Að mati Rík­is­end­ur­skoð­unar þarf aftur á móti að efla fjár­hags­legt eft­ir­lit stjórnar Rík­is­út­varps­ins og leggur stofnun því til að fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyti fari frekar með hlut rík­is­ins í RÚV.

Þetta er á meðal þess sem má finna í nið­ur­stöðum stjórn­sýslu­út­tektar Rík­is­end­ur­skoð­unar á RÚV sem birt var í dag.

Skilja á milli eigendaábyrgðar og faglegrar ábyrgðar

Stjórn­skipu­lag RÚV ohf. er ólíkt því sem almennt ein­kennir opin­ber hluta­fé­lög í eigu rík­is­ins. Fjármála- og efna­hags­ráðu­neyti fer ekki með eign­ar­hlut rík­is­ins í félag­inu og kemur ekki að skipan stjórnar þess, líkt og gert er ráð fyrir í lögum um opin­ber fjár­mál. Þess í stað fer mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neytið með eign­ar­hlut rík­is­ins í RÚV og stjórn félags­ins er skipuð eftir hlut­bundna kosn­ingu á Alþingi.

Í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar segir að fyrir vikið verði aðkoma ráðu­neyt­is­ins að fjár­hags­legu eft­ir­liti og aðhaldi með rekstri félags­ins minni en almennt ger­ist. Að mati Rík­is­end­ur­skoð­unar ætti fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyti því að fara með hlut rík­is­ins í RÚV og skilja þannig á milli eig­enda­á­byrgðar og fag­legrar ábyrgðar.

Mikilvægt að hluti stjórnarmanna hafi sérþekkingu á fjármálum

[links]Auk þess telur Rík­is­end­ur­skoðun að efla þurfi fjár­hags­legt eft­ir­lit stjórnar RÚV. „Afar mik­il­vægt er að tryggja ráð­deild í rekstri og öfl­ugt fjár­hags­legt eft­ir­lit svo RÚV ohf. lendi ekki í alvar­legum greiðslu­erf­ið­leikum að nýju. Fjár­mála­stjórn félags­ins hefur lengstum verið svipuð og um A-hluta rík­is­stofnun sé að ræða og meg­in­á­hersla lögð á að rekst­ur­inn rúmist innan fjár­heim­ilda. Slíkt dugir ekki fyrir veru­lega skuld­sett félag sem einnig þarf að standa undir fjár­fest­ingum með fram­lagi á grund­velli þjón­ustu­samn­ings auk sjálfsafla­tekna,“ segir í skýrsl­unni og bendir Rík­is­end­ur­skoðun jafn­framt á að ólík­legt sé að hægt verði að grípa til aðgerða sam­bæri­legar við sölu bygg­inga­réttar á lóð­inni við Efsta­leiti árið 2015 ef rekstur félags­ins stefnir í óefni að nýju.

Enn fremur telur rík­is­end­ur­skoð­andi rétt að skipa í stjórn Rík­is­út­varps­ins ohf. á for­sendum hæf­is­skil­yrða í lögum um hluta­fé­lög og opin­ber fjár­mál en í núgild­andi lögum um RÚV ohf. er ekki kveðið á um að til­nefnt sé í hana á grund­velli hæfni, mennt­unar eða reynslu.

Rík­is­end­ur­skoðun ítrekar að mik­il­vægt sé að tryggja að að minnsta kosti hluti stjórn­ar­manna hafi sér­þekk­ingu á fjár­málum.

Ekki mikill munur á eftirliti þessa tveggja ráðuneyta

Mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neytið seg­ist ekki taka afstöðu til ábend­ingar Rík­is­end­ur­skoð­unar um að færa eign­ar­hlut rík­is­ins í RÚV til fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins í við­brögðum sínum við skýrslu­drög­unum. Ráðu­neytið segir að það sé Alþingis að ákvarða um slíkt. 

Hins vegar bendir ráðu­neytið á að sömu lög gilda um öll opin­ber hluta­fé­lög og í lögum um opin­ber fjár­mál sé ekki kveðið á um ólíkt eft­ir­lits­hlut­verk ráðu­neyta í þessu efni. „Af svari fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytis við fyr­ir­spurn ráðu­neyt­is­ins um eft­ir­lit með opin­berum hluta­fé­lögum er ekki að ráða að mik­ill munur sé á eft­ir­liti þess­ara tveggja ráðu­neyta á hlut­að­eig­andi félögum. Ráðu­neytið telur sig því hafa upp­fyllt eft­ir­lits­skyldu sína með Rík­is­út­varp­inu, eins og kveðið er á um í lögum nr. 2/1995 um hluta­fé­lög og eig­enda­stefnu rík­is­ins.“

Engu á síður seg­ist ráðu­neytið ætla meta hvort þörf sé á sér­stökum ráð­stöf­unum til að tryggja enn virkara eft­ir­lit með fjár­hags­stöðu og rekstr­ar­á­ætl­unum Rík­is­út­varps­ins. Ráðu­neytið bendir jafn­framt á að fjöl­miðla­nefnd hefur einnig eft­ir­lit með starf­semi Rík­is­út­varps­ins og skal njóta til þess aðstoðar Rík­is­end­ur­skoð­unar, einkum er varðar bók­halds­mál.

Enn fremur lítur ráðu­neytið svo á að ábend­ingum Rík­is­end­ur­skoð­unar um fyr­ir­komu­lag við skipan í stjórn Rík­is­út­varps­ins sé beint til Alþingis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár