Hörmulegar farsóttir sem gengu yfir Íslendinga

Íslend­ingar hafa oftar en einu sinni gengið í gegnum hörm­ungar vegna far­sótta. Heimdildir lýsa því að ung stúlka bjó vikum saman á afskekktum bóndabæ með föður sínum látnum úr Stóru bólu.

Kýlaveiki
Kýla­veiki Svarti­dauði olli kýlum. Mynd úr þýskri Biblíu frá árinu 1411. Mynd: Toggenburg-Biblían

Faraldur er varla nema hóf­lega ógn­vekj­andi orð. Farsótt er strax hættu­legri. Að við tölum ekki um drep­sótt eða hrein­lega plágu.

Öllum þessum hafa Íslend­ingar þó kynnzt og fleiru til. Hér er örstutt sögu­leg upp­rifjun um pestir og lækna­vís­indi.

Plágan

Fyrsta sæmi­lega skráða til­vik far­sóttar á Íslandi er Plágan mikla, sem barst til Íslands árið 1402.

Þetta var hálfri öld eftir að sama plága hafði herjað á Norður-Evrópu og drepið þar tug­þús­undir að lág­marki. Þetta var reyndar lífseig pest, því að hennar varð vart reglu­lega í margar aldir upp frá því.

En þótt Plágan hafi borizt hingað fyrst árið 1402 kom hún aftur nokkrum ára­tugum síðar, og þá var farið að tala um Pláguna fyrri og síð­ari, en löngu seinna komst sá siður á að kalla þessa drep­sótt Svarta­dauða.

Því að drep­sótt var hún sann­ar­lega. Plágan var senni­lega bráðsmit­andi lungna­pest, sem dró fólk til …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár