Mikill munur á mati á hæfni umsækjenda - Nákvæm gögn birt

Kjarninn birtir nákvæmt mat á öllum umsækj­endum um stöðu dóm­ara við Lands­rétt. Alþingi hefur þegar sam­þykkt til­lögu dóms­mála­ráð­herra.

Fjórir umsækj­endur um stöðu dóm­ara við Lands­rétt fengu ein­kunn­ina 9,5 fyrir dóm­ara­reynslu, í mati sér­stakrar nefndar um mat á hæfi umsækj­enda um dóm­ara­stöð­una, og fjórir fengu ein­kunn­ina 0, vegna engrar reynslu af dóm­ara­störfum. 

Einn umsækj­andi fékk ein­kunn­ina 10 vegna lög­manns­starfa, og sex ein­kunn­ina 9. 

Þetta er meðal þess sem má sjá í ítar­legum gögnum um mat á 33 umsækj­endum um stöðu dóm­ara við Lands­rétt, sem Kjarninn hefur undir höndum, og birt eru með frétt­inni.

Eins og Kjarninn hefur greint frá, þá voru Davíð Þór Björg­vins­son, Sigurður Tómas Magn­ús­son og Ragn­heiður Harð­ar­dóttir með bestu ein­kunn­ina meðal þeirra umsækj­enda sem metnir voru. Davíð Þór fékk ein­kunn­ina 7,35, Sigurður Tómas 6,7 og Ragn­heiður 6,6.

Alþingi sam­þykkti í gær til­lögu Sigríðar Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra um skipan 15 dóm­ara við Lands­rétt, með 31 atkvæði meiri­hlut­ans og 22 atkvæðum minni­hlut­ans, en þing­menn Fram­sókn­ar­flokks­ins, 8 tals­ins, sátu hjá. Áður hafði til­laga um að vísa mál­inu frá, og aftur til ráð­herra - til að fá meira ráð­rúm til að fara yfir gögn máls­ins og máls­með­ferð - verið felld með minnsta mun í ágrein­ingi, 31 - 30. Svandís Svav­ars­dóttir, VG, og Brynjar Níelsson, Sjálf­stæð­is­flokki, tóku ekki þátt í atkvæða­greiðsl­unni sökum, tengsla við umsækj­endur um stöðu dóm­ara, en heild­ar­fjöldi þing­manna er 63.

Dóm­ar­arnir sem dóms­mála­ráð­herra gerði til­lögu um voru Aðal­steinn E. Jónasson, Arn­fríður Ein­ars­dóttir, Ásmundur Helgason, Davíð Þór Björg­vins­son, Hervör Þor­valds­dóttir, Ing­veldur Ein­ars­dóttir, Jóhannes Sig­urðs­son, Jón Finn­björns­son, Krist­björg Steph­en­sen, Oddný Mjöll Arn­ar­dóttir, Ragn­heiður Braga­dóttir, Ragn­heiður Harð­ar­dóttir, Sigurður Tómas Magn­ús­son, Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son og Þorgeir Ingi Njálsson.

Sam­­­­kvæmt lista hæf­is­­­­nefnd­­­­ar­innar var Ást­ráður Har­alds­­­­son hrl., sem hefur talið til­­­lögu dóms­­­mála­ráð­herra lög­­­brot - líkt og Lög­­­­­manna­­­fé­lag Íslands - númer 14 á list­an­­­­um. Einn þeirra sem dóms­­­­mála­ráð­herra gerði til­­­­lögu um að yrði dóm­ari við Lands­rétt er Jón Finn­­­­björns­­­­son en hann er númer 30 á lista hæf­is­­­­nefnd­­­­ar­inn­­­­ar með heild­ar­ein­kunn­ina 4,3.

Þá er Eiríkur Jóns­­­­son númer 7 á lista hæf­is­­­­nefnd­­­­ar­inn­­­­ar, en hann er ekki á meðal þeirra 15 sem ráð­herra gerði til­­­­lögu um í stöðu dóm­­­­ara. Eiríkur fær næst­hæstu ein­kunn allra fyrir menntun og fram­halds­menntun, 9, á eftir fyrr­nefndum Davíð Þór, sem fær ein­kunn­ina 10. Þá fær Eiríkur einnig næst­hæstu ein­kunn­ina fyrir fræði­störf, 9, á eftir Davíð Þór, en hann er áber­andi hæf­asti umsækj­and­inn, að mati nefnd­ar­innar.

Af þeim 15 hæf­ustu, að mati nefnd­ar­innar, voru það Ást­ráður Har­alds­­­­son og Eiríkur Jóns­­­­son, ásamt Jóhann­esi Rún­­­­­­­ari Jóhanns­­­­syni og Jóni Hösk­­­­ulds­­­­syni, sem hlutu ekki náð fyrir augum ráð­herr­ans, heldur þau Arn­­­­fríður Ein­­­­ar­s­dótt­ir, Ragn­heiður Braga­dótt­ir, Ásmundur Helga­­­­son og Jón Finn­­­­björns­­­­son.

Á meðal þeirra sem komu á fund stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefndar, þar sem málið var til umfjöll­unar í nokkra daga, voru for­maður hæfn­is­nefnd­ar­inn­ar, Gunn­laugur Claessen, Björg Thoraren­sen, pró­fessor í stjórn­skip­un­ar­rétti, Reimar Pét­urs­son, for­maður Lög­manna­fé­lags­ins og Ingi­björg Þor­steins­dótt­ir, vara­for­maður Dóm­ara­fé­lags Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár