Forsætisráðherra segir borgarstjórn skaða viðskiptahagsmuni Íslands

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra sagði í kvöld­fréttum Stöðvar 2 í kvöld að ákvörðun borg­ar­stjórnar um að snið­ganga ísra­elskar vörur væri „frá­leit“ og skað­leg íslenskum við­skipta­hags­munum.

Minni­hlut­inn í borg­ar­stjórn hefur gagn­rýnt ákvörð­un­ina harð­lega.

Ákvörð­unin hefur verið gagn­rýnd meðal Ísra­els­manna í dag, ekki síst á sam­fé­lags­miðlum. Simon Wiesenthal-stofn­unin birti nú síð­degis frétt á vef sínum þar sem hún ráð­leggur gyð­ingum að ferð­ast ekki til Íslands og segir ákvörð­un­ina for­dóma­fulla, að því er fram kemur á vef RÚV.

Utan­rík­is­ráðu­neytið sendi frá sér til­kynn­ingu í dag þar sem það sagði ákvörðun borg­ar­stjórnar ekki í sam­ræmi við íslensk lög, um opin­ber inn­kaup, og að hún væri ekki í sam­ræmi við utan­rík­is­stefnu Íslands.

Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri, hefur sagt að það sé ekki rétt kalla það við­skipta­bann sem borg­ar­stjórn hefði sam­þykkt að gera. „Borg­ar­stjórn sam­þykkti í vik­unni að fela skrif­stofu borg­ar­stjóra og inn­kaupa­skrif­stofu borg­ar­innar að útfæra hvernig snið­ganga mætti ísra­elskar vörur á grund­velli þeirrar greinar í inn­kaupa­stefnu borg­ar­innar sem segir: „að við inn­kaup sé auk kostn­aðar tekið til­lit til gæða, umhverfis- og mann­rétt­inda­sjón­ar­miða.“ Böndin ber­ast þarna að fyr­ir­tækjum og vörum sem fram­leiddar eru á her­náms­svæð­unum og í ólög­legum land­nema­byggðum í Palest­ínu,“ sagði Dagur á Facebook síðu sinni.

[caption id="attachment_38321" align="alignnone" width="1024"] Dagur hafnar því að um við­skipta­bann sé að ræða. Mynd: Anton.[/caption]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár