Ríki og sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu taka höndum saman í samgöngumálum

Sam­komu­lag um upp­bygg­ingu sam­göngu­inn­viða hefur verið und­ir­ritað.

Full­trú­ar stjórn­valda og sex sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu und­ir­rit­uðu sam­komu­lag um upp­bygg­ingu sam­göngu­inn­viða og al­menn­ings­sam­gangna á svæð­inu næstu fimmtán árin í dag.

Sam­komu­lagið var und­ir­ritað í ráð­herra­bú­staðnum við Tjarn­ar­götu, en sveit­ar­fé­lögin sem eiga aðild að sam­komu­lag­inu eru Garðabær, Hafn­ar­fjörður, Kópa­vogur, Mos­fells­bær, Reykja­vík og Sel­tjarn­ar­ness.

Heild­ar­um­fang er metið um 120 millj­arðar króna, en ríkið mun leggja til 45 millj­arða, sveit­ar­fé­lögin 15 millj­arða og svo mun sér­stök fjár­mögnun, og þá veggjöld að miklu leyti, fjár­magna afgang­inn, eða sem nemur um 60 millj­örðum.

Samkvæmt því sem kynnt var í dag, verður stofnað nýtt félag í eigu ríkis og sveit­ar­fé­laga um verk­efnið sem fær Keldna­land að eign frá rík­inu og verður landið selt til að fjár­magna fram­kvæmd­irnar.

Gert er ráð fyr­ir að 52,2 millj­arðar fari í stofn­vegi, 49,6 millj­arðar í inn­viði Borg­ar­línu og al­menn­ings­sam­göng­ur, 8,2 millj­arðar í göngu- og hjóla­stíga, göngu­brýr og und­ir­göng og 7,2 millj­arðar í bætta um­ferðar­stýr­ingu og sér­tæk­ar ör­ygg­is­að­gerðir. Þá verði þegar í stað ráð­ist í að inn­leiða sta­f­ræna um­ferðar­stýr­ingu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

„Sam­komu­lagið fel­ur í sér sam­eig­in­lega fram­tíðar­sýn og heild­ar­hugs­un fyr­ir skipu­lags­svæðið. Mark­miðið er að auka ör­yggi, bæta sam­göng­ur fyr­ir alla ferða­máta og minnka taf­ir, stór­efla al­menn­ings­sam­göng­ur og draga úr meng­un af völd­um svifryks og los­un gróður­húsa­loft­teg­unda til að standa við lofts­lags­mark­mið stjórn­valda og sveit­ar­fé­laga,“ segir í til­kynn­ingu stjórn­valda.

Þá kemur einnig fram í til­kynn­ingu stjórn­valda, að nauð­syn­legt sé að breyta fjár­mögnun vega­kerf­is­ins. „Vega­kerfið á Íslandi hefur verið fjár­magnað með bensín- og olíu­gjöldum. Hlutfall vist­vænna öku­tækja eykst hratt og segja spár að strax árið 2025 hafi tekjur af bensín- og olíu­gjöldum lækkað veru­lega.

End­ur­skoðun stendur nú yfir á tekju­stofnum rík­is­ins vegna öku­tækja og elds­neytis vegna orku­skipta. Hluti þeirrar vinnu verður að breyta gjald­töku með þeim hætti að í rík­ari mæli verði treyst á gjöld af umferð í stað bensín- og olíu­gjalda. Í sam­komu­lag­inu er gert ráð fyrir að félagið, sem stofnað verður um fram­kvæmd­irnar, geti inn­heimt svo­nefnd flýti- og umferð­ar­gjöld sem yrðu liður í breyttri gjald­töku rík­is­ins. Önnur fjár­mögnun félags­ins gæti verið í formi sér­stakra rík­is­fram­laga eða hlut­deild í öðrum tekju­stofnum tengdum sam­göngum.

Áform eru um að taka upp sér­tæka gjald­töku víðar á land­inu til að fjár­magna stærri sam­göngu­fram­kvæmdir og rekstur jarð­ganga. Dæmi um þetta eru tvö­földun Hval­fjarð­ar­ganga, Sunda­braut, brú yfir Ölfusá, brú yfir Horna­fjarð­ar­fljót, nýr vegur yfir Öxi ásamt lág­lendis­vegi um Mýrdal og jarð­göng í gegnum Reyn­is­fjall,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár