Ísland gæti gefið fátækum Evrópuþjóðum umframskammta af bóluefni

Íslensk stjórn­völd munu gefa alla umfram­skammta af bólu­efni sem þau hafa tryggt sér gegn COVID-19 til lág­tekju­þjóða. Um er að ræða bólu­efni fyrir 340 til 440 þús­und ein­stak­linga og gæti kostn­að­ur­inn vegna þeirra numið 0,4 til 1,6 millj­arða króna.

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra
Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra Mynd: Bára Huld Beck

Íslensk stjórn­völd hafa ákveðið að gefa alla umfram­skammta af bólu­efni gegn COVID-19 sem þau hafa skuld­bundið sig til að kaupa til lág­tekju­þjóða. Bæði kemur til greina að auka fram­lög til COVAX-verk­efn­is­ins og að gefa bólu­efnið til fátækra þjóða í Evrópu sem eru utan ESB og EES.

Þetta kemur fram í svari ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans um hvað verði gert við umfram­skammt­ana af bólu­efn­inu. Fram kom í minn­is­blaði sem heil­brigð­is­ráðu­neytið sendi vel­ferð­ar­nefnd alþingis síð­asta föstu­dag að íslensk stjórn­völd væru búin að tryggja sér bólu­efn­is­skammta fyrir 660 þús­und manns, en Vísir greindi frá þessu fyrr í vik­unni.

Af þessum bólu­efnum eru skammtar fyrir 64 þús­und manns frá Moderna, 114 þús­und manns frá AstraZeneca og 235 þús­und manns frá Janssen. Einnig hafa stjórn­völd tryggt bólu­efni frá Pfizer og BioNTech fyrir allt að 250 þús­und manns, eftir samn­ing Evr­ópu­sam­bands­ins við lyfja­fram­leið­end­urna í síð­ustu viku um kaup á fleiri skömmtum.

Ísland muni gefa alla umframskammta

Í öllum samn­ingum fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins við fram­leið­endur bólu­efn­anna er ákvæði sem heim­ilar að þeir skammtar sem þjóðir nýta ekki sjálfar séu gefnir til ann­arra þjóða. Samkvæmt heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu ætlar Ísland að nýta sér þá heim­ild og gefa alla sína umfram­skammta til lág­tekju­þjóða.

Ekki liggi fyrir hvert þessir skammtar verða gefnir, en ráðu­neytið segir að verið sé að setja á fót sam­eig­in­legan vett­vang þjóða í Evr­ópu­sam­starf­inu til að ákveða það. Þar komi m.a. til greina sam­starf við Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­un­ina í gegnum COVAX sam­komu­lagið sem ætlað er að tryggja lág­tekju­þjóðum bólu­efni og einnig að bólu­efni verði gefin fátækum þjóðum í Evrópu sem standa utan Evr­ópu­sam­starfs­ins.

Umframskammtar fyrir 340-440 þúsund manns

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá covid.is er gert ráð fyrir að hér á landi verði 75 pró­sent Íslend­inga sem fæddir eru árið 2005 og fyrr bólu­settir, en það eru rétt rúm­lega 220 þús­und manns. Því gæti svo farið að Ísland sitji uppi með umfram­skammta af bólu­efni fyrir 440 þús­und manns.

Þó gæti þessi tala verið nokkuð lægri, þar sem Evr­ópu­sam­bandið má kjósa að kaupa ekki 100 millj­ónir skammta af þeim 600 millj­ónum sem samn­ingur þess við Pfizer og BioNTech kveður á um. Þannig gæti verið að Ísland fái bara skammta fyrir 229 þús­und manns frá Pfizer í stað skammta fyrir 250 þús­und manns.

Einnig gæti verið að fleiri Íslend­ingar vilji láta bólu­setja sig eftir að hjarð­ó­næmi verður náð. Samkvæmt Hagstofu nemur fjöldi Íslend­inga fæddur árið 2005 og eftir um 295 þús­und manns. Því gæti verið að Ísland sitji uppi með umfram­skammta af bólu­efni fyrir 344 þús­und manns í stað­inn.

0,4 til 1,6 milljarðar króna í verkefnið

Nokkur verð­munur er á verði bólu­efn­anna, líkt og vef­síðan The Motley Fool gerir grein fyrir. Þar er bólu­efnið frá AstraZeneca ódýr­ast, en talið er að það kosti sex til átta Banda­ríkja­dali að bólu­setja hvern ein­stak­ling, sem jafn­gildir 770 til 1.030 krónum á núver­andi gengi. Þar á eftir kemur bólu­efni Janssen, sem muni lík­lega kosta um 10 Banda­ríkja­dali fyrir hvern bólu­settan ein­stak­ling, eða um 1.300 kr.

Bóluefni Moderna er þó öllu dýr­ari, en síðan gerir ráð fyrir að það kosti á milli 25 til 37 Banda­ríkja­dala, eða 3.200 til 4.800 krónur, að bólu­setja hvern ein­stak­ling. Bóluefni Pfizer og BioNTech er aftur á móti dýr­ast allra, en það kostar 39 Banda­ríkja­dali, eða rúmar 5 þús­und krónur, að bólu­setja hvern ein­stak­ling. 

Samkvæmt þessum tölum mun Ísland því verja 400 milljón króna til 1,6 millj­örðum króna í útgáfu bólu­efnis til lág­tekju­þjóða.

50 þúsund bólusettir í gegnum COVAX

Íslensk stjórn­völd til­kynntu í sept­em­ber að þau myndu taka þátt í alþjóð­legu sam­starfi sem tryggir lág­tekju­þjóðum um allan heim aðgang að bólu­efni. Samkvæmt til­kynn­ing­unni hygð­ust Noregur og Ísland leggja leggja fram 967 millj­ónir króna til kaupa á tveimur millj­ónum skömmtum af bólu­efni. Út frá þessu má ætla að löndin muni kaupa bólu­efnið frá AstraZeneca, þar sem það er eina bólu­efnið sem hægt er að kaupa á þessu verði, sam­kvæmt The Motley Fool. Framlag Íslands í þessu verk­efni er nóg til að standa straum af 100 þús­und skömmtum, en það væri nóg til að bólu­setja 50 þús­und manns.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bóluefni

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár