Á Íslandi Helen flutti til Íslands fyrir ást­ina. Svo lék hún sama leik á mann­inn sinn og fékk hann til þess að flytja til Flat­eyrar.

„Það sést hve hrædd ég var stundum“

Fimmtán árum eftir að íslensk-venesúelski rithöf­und­urinn Helen Cova yfirgaf landið sem hún ólst upp í sneri hún aftur. Hún hafði ekki séð föður sinn síðan hún fór og hún vissi að ástandið í Venesúela hefði versnað til muna síðan hún var þar síðast. Hún var hrædd við það sem myndi mæta henni en svo reyndist sá ótti ástæðu­laus.

Úr ferðalagi Helenar Cova til Venesúela í ár spratt ljóða­bókin Ljóð fyrir klofið hjarta, bók sem fæst við upplifun innflytjandans og baráttuna við tungu­málið. Því Helen talar nánast óaðfinnanlega íslensku, og yrkir líka á þessu tungumáli sem var henni framandi fyrir ekki svo löngu.

En íslensku orðin flæða ekki fram eins og foss, Helen byrjar stundum að skrifa á spænsku eða óreiðu­kenndri íslensku og lagfærir svo textana, gjarnan með aðstoð eigin­mannsins, Sigurðar Grétars Jökuls­sonar. Hún leyfir lesandanum að fylgjast með ferlinu með því að birta bæði ljóðin á vinnslu­stigi og svo þegar þau hafa verið fínpússuð. 

„Í byrjun ætlaði ég bara að hafa textann leið­réttan á íslensku en svo fór ég að hugsa: „Af hverju þarf ég að fela mig, af hverju get ég ekki sýnt líka hvernig þetta birtist?“ Kannski gæti þetta verið fallegt eða áhugavert fyrir einhvern,“ segir Helen. „Hjarta og tilfinningar búa líka í …

Kjósa
23
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár