Víðir Reynisson greindist með Covid

Yfir­lög­reglu­þjónn almanna­varna­sviðs rík­is­lög­reglu­stjóra, Víðir Reyn­is­son, hefur nú verið greindur með Covid-19.

Í til­kynn­ingu frá almanna­varna­deild rík­is­lög­reglu­stjóra sem gefin var út kl 15:33, er skýrt frá því að Víðir Reyn­is­son hefur nú verið greindur með Covid-19.

Smit kom upp í nærum­hverfi Víðis síð­degis á mánu­dag og í kjöl­farið fór hann í sótt­kví.

Jafn­framt fór hann og hans nán­asta sam­starfs­fólk auk Ölmu Möller, land­læknis og Þórólfs Guðna­sonar, sótt­varna­læknis í sýna­töku. Sýni þeirra allra reynd­ust nei­kvæð á mánu­dags­kvöld.

Víðir fór aftur í sýna­töku í dag og reynd­ist sýni frá honum jákvætt. Hann finnur ekki fyrir ein­kennum og er kom­inn í ein­angrun. Í ljósi þess að sýni frá Víði reynd­ist nei­kvætt á mánu­dag þykir ekki ástæða til þess að hans nán­asta sam­starfs­fólk fari í sótt­kví.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár