Nýdönsk safnar fyrir plötu á 30 ára afmælinu

Hljóm­sveitin Nýdönsk fagnar 30 ára afmæli á árinu. Breyttir tímar eru í plötu­út­gáfu og sveitin ætlar að fjár­magna tíundu plöt­una sína að hluta til í gegnum Karolina Fund.

Hljóm­sveitin Nýdönsk hefur starfað óslitið frá árinu 1987 og fagnar því 30 ára starfs­af­mæli á þessu ári. Nýdönsk hefur gefið út vel á annan tug hljóm­platna með eigin efni, þar af níu breið­skífur þar sem lög sveit­ar­innar hafa komið út í upp­haf­legum útgáfum.

Meðal þekktra laga sem hafa lifað með þjóð­inni má nefna Horfðu til him­ins, Flug­vélar, Fram á nótt, Hjálpaðu mér upp, Nostradamus og Frelsið en útgefin lög sveit­ar­innar eru á annað hund­rað.

Hljóm­sveitin hefur hljóð­ritað og spilað á Íslandi, í Bret­landi, Noregi, Þýska­landi, Danmörku og víðar og er nú nýkomin frá Toronto í Kanada þar sem grunn­ur­inn var lagður að sann­kall­aðri tíma­móta­plötu.

Nú erum breyttir tímar í hljóm­plötu­út­gáfu og Nýdönsk mun fjár­magna útgáf­una að hluta til með for­sölu á Karolina Fund.

Kjarninn hitti Stefán Hjör­leifs­son gít­ar­leik­ara hljóm­sveit­ar­innar og tók hann tali.

[adspot]

1. Hvað er á döfinni hjá Nýdönsk?

Meðlimir Nýd­anskrar eru nýkomnir frá Toronto í Kanada þar sem unnið var í nýju efni. Hljóm­sveitin hljóð­rit­aði 10 lög þar ytra og nú tekur við vinna við að útsetja efnið fyrir strengja­sveit og hljóð­rita hana. Platan verður síðan full­kláruð í sumar og mun koma út í sept­em­ber ef öll plön og fjár­mögnun gengur eftir.

Hljóm­sveitin vinnur sam­hliða að und­ir­bún­ingi afmæl­is­tón­leika sem verða fluttir í sjón­varpi.

Þriðju­dag­inn 11. apríl hefst svo miða­sala á tón­leika sveit­ar­innar sem haldnir verða þann 23. sept­em­ber í Eld­borg­ar­sal Hörpu en tón­leikar sveit­ar­innar á árinu verða valdir af kost­gæfni og vandið verður til verka.

2. Nú eru 30 ár síðan Nýdönsk var stofnuð, hvernig ætlið þið að fagna þeim tímamótum?

Tíma­mótum ber að fagna og hljóm­sveitin hyggst gefa út sína tíundu breið­skífu með glæ­nýjum lögum á árinu. Sveit­inni til full­tingis verður strengja­sveit, sem flytur vand­aðar útsetn­ingar, ásamt hljóm­sveit­inni hljóm­sveit­inni auð­vitað

Platan verður hljóð­rituð á Íslandi og í Kanada en það hefur reynst vel sækja inn­blástur til ann­ara landa. Þetta verður að lík­indum viða­mesta verk­efni hljóm­sveit­ar­innar hingað til og ekk­ert verður til sparað að hljóm­platan verði list­rænt eins vönduð og kostur er.

Öll lög og textar eru ný af nál­inni og voru samin á þessu ári.

Platan verður síðan flutt, að hluta til að minnsta kosti á stór­tón­leikum í Hörpu 23. sept­em­ber með stórri strengja­sveit ásamt öðrum lögum í sama bún­ingi en einnig verða vin­sæl­ustu lög sveit­ar­innar flutt í þeim bún­ingi sem fólk þekkir.

3. Verður þessi plata eitthvað í líkingu við það sem hefur komið frá ykkur áður eða eru þið að feta nýjar slóðir?

Allar okkar plötur eru ólíkar og hefur hver plata sinn karakter. Þessi plata mun þó skera sig enn frekar úr þar sem sveitin nýtir sér í fyrsta sinn stóra strengja­sveit í hljóð­veri. Það var lagt upp með það í byrjun og laga­smíð­arnar tóku því mið af því og það hefur verið haft í huga allt ferlið einkum þegar kom að útsetn­ingum á grunn­hljóð­fær­unum Á þessu stigi eru auð­vitað erfitt að setja til um hvernig platan muni enda en lögin eru þó fjól­breytt að vanda og allt yfir­bragð mun hæfa þessum tíma­mótum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið undanfarið ár