Alls eru tíu af nítján skipverjum á súrálsskipi sem kom til Reyðarfjarðar og lagði að Mjóeyrarhöfn með COVID-19.
Frá þessu er greint í tilkynningu frá lögreglustjóranum á Austurlandi.
Þar segir að skipstjóri hafi fyrir komu skipsins gert grein fyrir að sjö manns í áhöfn væru veikir. „Að fenginni einkennalýsingu og öðrum faraldursfræðilegum þáttum var ákveðið að taka sýni úr allri áhöfninni, sem náðist undir kvöld í gær. Af nítján skipverjum reyndust tíu vera með Covid-19. Aðgerðastjórn og umdæmislæknir sóttvarna í samvinnu við umboðsmann útgerðarinnar og skipstjórann hafa gefið leiðbeiningar um sóttvarnaráðstafanir um borð.“
[adspot]Læknisfræðilegt eftirlit með skipverjunum verður unnið samkvæmt fyrirliggjandi vinnureglum þar um af COVID-deild Landspítala og HSA. Sýnataka og allt annað tengt þessu hefur samkvæmt tilkynningunni gengið vel og aðgerðastjórn telur ekki hættu á að smitið dreifi sér.
Hinir smituðu eru allir í einangrun um borð og aðrir í sóttkví. Hefur svo verið frá komu skipsins til hafnar.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















































Athugasemdir