Nýtt efni


Ketill Sigurjónsson
Dásemdin að skulda danskar evrur
Stýrivextir í Danmörku, sem er með gjaldmiðil sinn tengdan við evru, eru 2% en 8% á Íslandi. Ketill Sigurjónsson skrifar um veruleika þeirra sem búa við danskt lán.

Milljónamæringar í nýstofnuðum félögum með og á móti ESB
Fimm einstaklingar á hátekjulistanum eru í framvarðasveit þeirra samtaka sem annaðhvort berjast með eða móti því að Ísland hefji aðildarviðræður við ESB. Sá sem er með hæstu tekjurnar í þessum hópi fékk yfir hundrað milljónir í árstekjur og er hlynntur aðildarviðræðum.

ESB styrkir tengslin við Grænland og Kanada
Aðgerðir Bandaríkjanna ýta Kanada og Grænlandi í áttina að Evrópusambandinu. Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, verður viðstaddur ræðu í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins.

Jökulhrun olli hamförunum í Nepal
Flóð skall á og þurrkaði út þorp og bæði í Nepal og Tíbet. Myndband sýnir fólk á landamærastöð reyna að hlaupa undan flóðinu. Minnst 273 létust og hundruða er saknað. Nú er talið er að jökulhrun hafi valdið hamförunum.

Vildu ekki koma aftur til Íslands með 100 manna hóp
Vilborg Arna Gissurardóttir tók á móti 100 frönskum konum sem komu hingað til að keppa í vetraríþróttum. Kostnaðurinn kom í bakið á skipuleggjendum mótsins sem ákváðu að fara næst til Finnlands. Finnar hafa nýtt styrki ESB við uppbyggingu heimskautaferðamennsku, en Vilborg vann að verkefni í byggðaþróun á Suðurlandi sem fékk 100 milljóna styrk þegar Ísland var síðast í aðildarviðræðum.


Stefán Ólafsson
Er tilraunin með krónuna ekki fullreynd?
Haft er eftir íslenskum bankastjóra að það sé skelfilegt að skulda í krónum. Hann veit það, því hann vinnur við að lána krónur til heimila og fyrirtækja á Íslandi ⎼ og bankinn græðir vel á því.

Verðbólgan heldur áfram að hækka
Verðbólga mælist nú 5,6 prósent á 12 mánaða tímabili eftir að vísitala neysluverðs hækkaði um 0,2 prósent á milli mánaða. Hækkun skrásetningargjalda í opinbera háskóla hafði áhrif til hækkunar. Forsendur kjarasamninga eru nú formlega brostnar.

Bill Gates spáir fyrir um hættur gervigreindar
Heimurinn er hættulega óviðbúinn áhrifum gervigreindar, segir Bill Gates, sem telur hana munu eyðileggja störf og rjúfa mannleg tengsl.

Reynsla ungs fólks í Evrópu
Framtíð Íslands er framtíð unga fólksins. Í leit að svörum við því hvað aðild að Evrópusambandinu felur í sér fyrir daglegt líf ungs fólks sló Ólafur Björgúlfsson, nemi í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, á þráðinn til ungmenna sem eiga það eitt sammerkt að vera búsett í Evrópusambandsríkjum.

Gagnrýndir fyrir að slíta orð Kristrúnar úr samhengi
Hjörtur J. Guðmundsson, baráttumaður gegn ESB, situr undir harðri gagnrýni á samfélagsmiðlum fyrir að slíta ummæli Kristrúnar Frostadóttur úr samhengi. Eiríkur Rögnvaldsson segir merkingu orða hennar hafa verið snúið gróflega á haus.

Efnahagslegur ávinningur „blasir við“
Hver er kostnaðurinn við Evrópusambandið og hvað myndum við fá til baka? Gylfi Magnússon, prófessor í hagfræði, fer yfir efnahagsleg áhrif af mögulegri aðild að Evrópusambandinu. Áætlað er að nettóframlag Íslands gæti verið á bilinu sex til 15 milljarðar á ári, en prófessorinn telur efnahagslegan ávinning meiri en útgjöldin.

Heitir meiri landtöku: „Þetta er okkar land“
Benjamín Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, boðar „stóra bylgju innflytjenda“ á landsvæði Palestínumanna á Vesturbakkanum.


Indriði Þorláksson
Ísland á heima í Evrópu
Indriði H. Þorláksson færir rök fyrir því að Ísland eigi heima í ESB og leggur áherslu á menningu, mannréttindi og velferð.

Spurningin sem skekur bandarískt stjórnkerfi
Einföld spurning afhjúpar veikleika á meðal embættismanna og dómara sem skipaðir eru af forsetanum, á fordæmalausum tímum þar sem verið er að undirbúa viðbrögðin ef úrslit þingkosninga í nóvember verða honum óhagstæð.


Auðunn Arnórsson
Að halda valkostum opnum
Ítarleg skoðun á valkostum Íslands í breyttum heimi hefur leitt fram kosti og galla við þrjá valmöguleika: 1) að reyna að byggja áfram á EES-samningnum og öðrum alþjóðasamningum, 2) að semja um inngöngu í Evrópusambandið og 3) að snúa baki við Evrópu og treysta frekar tengslin í vestur. Lokagrein greinaflokks um Evróputengsl Íslands.
Athugasemdir