Sagðir hafa óskað eftir ráðum hjá Samherjamönnum til að blekkja Grænlendinga – Hafna fréttinni

Fram­kvæmda­stjóri Síld­ar­vinnsl­unnar bað stjórn­endur hjá Samherja að ráð­leggja sér um hvernig best væri að afla vel­vildar heima­manna á Græn­landi og blekkja þá til að kom­ast yfir veiði­heim­ildir.

Gunnþór Ingvarsson
Gunnþór Ingv­ars­son Mynd: Síldarvinnslan

Gunnþór Ingvason, fram­kvæmda­stjóri Síld­ar­vinnsl­unnar í Nes­kaup­stað, er sagður hafa óskað eftir leið­bein­ingum frá stjórn­endum Samherja varð­andi það hvernig blekkja mætti Græn­lend­inga til að kom­ast yfir veiði­heim­ildir og vel­vild.

Þetta kemur fram í Frétta­blað­inu í morgun.

[adspot]

Gunnþór skrifar í tölvu­pósti til Aðal­steins Helga­sonar, Jóhann­esar Stef­áns­sonar og manns hjá Samherja sem hefur net­fangið siggi@samherji.is.:

„Sælir félagar. Þannig er mál með vexti að vinir okkar í Græn­landi, Henrik Leth, var að biðja mig að setja niður fyrir sig hvað þyrfti til í fjár­fest­ingum, veiðum, vinnslu og hafn­ar­mann­virkjum ef menn myndu vera setja upp fiski­mjöls og upp­sjáv­ar­verk­smiðju í Amma­salik aust­ur­strönd Græn­lands.

Hann er ekki að hugsa um að setja neitt upp, heldur eru ein­hverjir heima­menn í Græn­landi með ein­hverja með sér í því að reyna ná kvótum og goodwill af stjórn­völdum með því að þykj­ast vera fara byggja upp á Austur Græn­landi,“ und­ir­strikar Gunnþór í pósti sínum. „Eigið þið ekki til­búna ein­hverja svona punkta þó svo að þeir eigi við um Afríku?“

Henrik Leth er stjórn­ar­for­maður Polar Seafood sem mun vera stærsta fyr­ir­tæki í einka­eigu á Græn­landi, sam­kvæmt frétt­inni.

Í Frétta­blað­inu kemur fram að Sam­herj­a­menn­irnir hafi tekið vel í beiðni Gunnþórs. „Það er kannski spurn­ing um að taka frá Marokkó, hvað seg­irðu um það?“ spyr Jóhannes í svar­skeyti og beinir þá spurn­ing­unni til áður­nefnds Sigga.

„Gunnþór, ertu að leit­ast eftir einv­herju ýtar­legu eða bara í kynn­ing­ar­formi?“ spyr hann síðan stjórn­anda Síld­ar­vinnsl­unnar.

„Nei, bara punktum hvað þarf,“ svarar Gunnþór Ingvason.

Umræddur póstur Gunnþórs var sendur þann 30. apríl 2014 og er hluti skjala sem Wikileaks hefur birt. Póst­ur­inn ber yfir­skrift­ina: Að nema nýjar lendur.

Gunnþór vildi ekki tjá sig við Frétta­blaðið um málið.

Uppfært: Síðdegis barst neð­an­greind yfir­lýs­ing frá Síld­ar­vinnsl­unni þar sem frétt Frétta­blaðs­ins er hafnað. Samhliða hefur fyr­ir­sögn verið breytt.

„Í morgun birt­ist frétt um að Gunnþór Ingvason fram­kvæmda­stjóri Síld­ar­vinnsl­unnar hefði óskað eftir leið­bein­ingum frá Samherja hinn 30. apríl árið 2014 varð­andi það hvernig blekkja mætti Græn­lend­inga til að kom­ast yfir veiði­heim­ildir og kvóta. Þessi frétt er algjör­lega röng og í reynd­inni merki­legt hvernig blaða­maður getur lesið þetta út úr þeim tölvu­pósti sem vitnað er til.
 
Síld­ar­vinnslan hf. hefur átt í far­sælu sam­starfi við Græn­lend­inga frá árinu 2003 við rekstur útgerð­ar­fyr­ir­tækis. Árið 2012 festi stærsta sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki Græn­lands, Polar Seafood, kaup á meiri­hlut­anum í útgerð­ar­fyr­ir­tæk­inu sem þá fékk nafnið Polar Pelagic, en Síld­ar­vinnslan á þriðj­ungs hlut í því. Stjórn Polar Seafood hefur alla tíð sinnt öllum sam­skiptum fyr­ir­tæk­is­ins við græn­lensk stjórn­völd. Stjórn­ar­for­maður Polar Seafood er Henrik Leth en hann hefur lengi verið einn af helstu for­ystu­mönnum græn­lensks sjáv­ar­út­vegs.
 
Árið 2014 hafði Henrik Leth sam­band við Gunnþór Ingvason og tjáði honum að á Græn­landi væri í umræð­unni að ein­hverjir áform­uðu að koma upp fiski­mjöls- og upp­sjáv­ar­vinnslu í Amma­salik á aust­ur­strönd lands­ins. Taldi Henrik þessi áform mjög óraun­hæf og áleit að þau væru sett fram í þeim til­gangi að ná kvóta hjá græn­lenskum stjórn­völdum. Til þess að fá nán­ari upp­lýs­ingar um tækni­leg mál­efni og kostnað við upp­bygg­ingu eins og þessa leit­aði hann til Gunnþórs Ingva­sonar. Gunnþór vissi að Samherji hefði nýlega látið gera áætl­anir um slíka upp­bygg­ingu í Marokkó og ein­fald­ast væri að skoða þær. Sendi hann Sam­herj­a­mönnum tölvu­póst þar sem hann bað um að fá þessar upp­lýs­ingar þó þær ættu við um upp­bygg­ingu í Afríku. Þar með var mál­inu lokið að hans hálfu.
 
Henrik Leth segir eft­ir­far­andi um þetta: „Ég leit­aði til Gunnþórs um upp­lýs­ingar ein­fald­lega vegna þess að Síld­ar­vinnslan hefur mikla reynslu og þekk­ingu á upp­bygg­ingu og rekstri vinnslu­fyr­ir­tækja. Ég hefði aldrei getað ímyndað mér að hægt væri að búa til svona nei­kvæða frétt um greið­vikni hans í minn garð. Þetta er sorg­legt dæmi um óvönduð vinnu­brögð fjöl­miðla.“ 
 
Af fram­an­sögðu má ljóst vera að orð Gunnþórs Ingva­sonar í tölvu­póst­inum voru slitin úr sam­hengi í umræddri frétt. Síld­ar­vinnslan harmar þann vill­andi og meið­andi mál­flutn­ing sem birt­ist í frétt­inni.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár