„Við erum með efniviðinn í annan faraldur“

Út frá far­alds­fræði­legu sjón­ar­miði ætti ekki að opna landið. En það er ekki raun­hæft. Hags­muna­mat er nú sett á vog­ar­skál­arnar á móti heilsu­fars­legum ávinn­ingi.

Már Kristjánsson, yfirlæknir smitsjúkdómadeildar Landspítalans.
Már Krist­jáns­son, yfir­læknir smit­sjúk­dóma­deildar Land­spít­al­ans. Mynd: Þorkell Þorkelsson/Landspítalinn

Ég held að eng­inn viti nákvæm­lega svarið við því hvernig best er að opna landa­mæri. Allar þjóðir heims eru að glíma við þessa spurn­ingu. Hvað á að gera – hver er besta og réttasta leiðin.

Þetta segir Már Krist­jáns­son, yfir­læknir smit­sjúk­dóma­deildar Land­spít­al­ans sem var gestur Krist­jáns Krist­jáns­sonar á Sprengisandi á Bylgj­unni í morgun.

Kristján spurði hann í upp­hafi þáttar hvernig yfir­völd taki ákvarð­anir um að opna landa­mæri sín á ný, líkt og Spán­verjar hafa nú ákveðið að gera. Már sagð­ist telja að slík ákvörðun væri að sumu leyti hags­muna­mat. Hagrænir þættir væru settir á vog­ar­skál­arnar á móti þeim heilsu­fars­legu. „Þetta er snúið og til­finn­inga­þrungið mál.“

Ferða­þjón­ustan er gríð­ar­lega mik­il­væg atvinnu­grein á Spáni og því má, að mati Más, ganga út frá því að hags­munir hennar hafi vegið þungt við ákvörðun stjórn­valda. Ráðamenn ólíkra landa líti á þetta með mis­mun­andi augum. „Hvað er síðan rétt að gera, það er önnur saga,“ sagði Már.

[adspot]

En myndi ein­hver mæla með því að ferð­ast til Spánar á næst­unni?

Að mati Más hafa miklar breyt­ingar orðið á hegðun fólks síð­ustu mán­uði. Fólk hefur tamið sér fjar­lægð­ar­reglur, aukið hrein­læti og fleira. „Við vitum meira um veiruna, hven­rig hún smit­ast. Þorri fólks veit þetta,“ sagði hann.

Fyrir þá sem eru skyn­samir og var­kárir, „það er í lagi fyrir þá að ferð­ast til Spánar, ég get ekki ímyndað mér annað.“

En svo er það annað mál hvort að fólk fylgi hinum nýju sam­fé­lags­legu reglum, t.d. þeir ferða­menn sem munu koma hingað til lands. „En þetta er eins og með margt annað, þessi óvissa. Þú veist ekki hvort ferða­maður hegðar sér vel. En við vitum ekki hvað þetta mun hafa í för með sér.“

Sáttur við ákvörðunina

Spurður hvað þyrfti að hans mati að ger­ast svo að landa­mær­unum hér yrði aftur lokað benti hann á að ef mörg smit kæmu upp á mörgum stöðum þá væri að fara af stað far­aldur og þá þyrfti að bregð­ast við. Yfirvöld hér á landi hefðu lært margt síð­ustu mán­uði og ef smit koma aftur upp verði beitt þeim úrræðum sem til staðar eru.

Már sagð­ist sáttur við þá ákvörðun að opna landið en sagði að setja þyrfti eins marga varnagla og hægt væri svo að inn í sam­fé­lagið komi ekki aftur óheft smit. En hann benti á að allar for­sendur fyrir því að fá smit inn í landið væru enn til staðar. „Við erum með efni­við­inn í annan far­aldur og þess vegna þurfum við að hegða okkur skyn­sam­lega. Rík­is­stjórnin og heil­brigð­is­yf­ir­völd þurfa að setja eins mikla fyr­ir­vara á komur fólks og hægt er.“

[adspot]

Að skima fólk við kom­una til lands­ins og beita áfram sótt­kví væru allt saman leiðir til þess að ná því mark­miði. Hann benti einnig á nauð­syn þess að fræða ferða­menn. „Ef allt þetta gengur eftir þá vonar maður að það verði ekki meiri­háttar áföll.“

Már sagði að sumir teldu nær óum­flýj­an­legt að annar far­aldur blossi upp. Sagði Már mótefna­mæl­ingar þar skipta sköpum. Hins vegar væri ekki ljóst hversu mikla vörn mótefni væri að veita þeim sem hefðu sýkst og náð sér af sjúk­dómnum. Kór­ónu­veirur almennt gangi ár eftir ár í sam­fé­lögum. Mótefnið sem mynd­ast dugar gegn þeim í kannski tvö ár og svo getur fólk smit­ast aftur. Hins vegar væri ekk­ert vitað um það hversu lengi mótefni gegn nýju kór­ónu­veirunni veitir vernd. „Kannski er þetta ævi­löng vernd fyrir þess­ari veiru, von­andi.“

Hver vill taka fyrsta bitann?

Már líkti þeirri ákvörðun að opna landið við heita kart­öflu. „Hver á að taka fyrsta bit­ann og brenna sig?“

Á Íslandi hafi sér­fræð­ingar leitt aðgerða­á­ætl­anir í far­aldr­inum. En svo kemur að því að opna landið og þá taka stjórn­mála­menn­irnir aftur for­ystu.

Tvennt er í stöð­unni: Að gera ekk­ert og gera eitt­hvað. Með því að opna landið getur svo tvennt gerst: Annar far­aldur kemur eða ekki. „Það er vont að spyrða nafnið sitt við hvora ákvörðun sem er,“ sagði Már spurður um hvort það að opna landið væri póli­tísk ákvörðun frekar en vís­inda­leg. . „Þú ert í vondri stöðu sama hvort þú gerir eitt­hvað eða ekk­ert. Þá kemur til kasta stjórn­mála­manna. Þeir þurfa að taka ákvarð­anir og standa og falla með því.“

Hvað muni ger­ast er spurn­ing sem engan veg­inn er hægt að svara núna. „Ég get ekki sagt að hér verði örugg­lega þús­und manns sýktir. Er það mögu­legt? Það er vissu­lega mögu­legt. En frekar ólík­legt. Að því gefnu að menn verði skyn­samir og þær aðgerðir sem fara á í verði komnar í gagnið.“

Ef ákvörð­unin yrði aðeins tekin út frá vís­inda­legum grunni þá væri það fag­legt mat Más að gera ekki neitt, opna ekki landa­mærin, og láta aldrei koma upp smit á Íslandi. „En það er ekki raun­hæft.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár