Danska konungsfjölskyldan: Baggi eða blessun

Danska krón­prinsessan Mary Don­ald­son er í svið­ljósi fjöl­miðla í Ástralíu, heima­landi sínu, þessa dag­ana. Tvö tíma­rit þar í landi telja sig hafa heim­ildir fyrir því að prinsessan sé ólétt að nýju. Annað af þessum ritum stað­hæfir þar að auki að Mary gangi með tví­bura í annað sinn. Hingað til hafa danskir fjöl­miðlar ekki verið mikið að fjalla um þetta. Og tals­maður dönsku kon­ungs­fjöl­skyld­unnar vill ekki tjá sig um málið, af eða á.

Fari svo að Mary sé ólétt að nýju mun slíkt örugg­lega setja danska fjöl­miðla á hvolf um tíma, sér­stak­lega ef aftur er um tví­bura er að ræða. Eflaust mun þá umræðan blossa upp á ný um hvort fjöl­skyldan sé baggi á rík­inu eða blessun fyrir danska þjóð­ar­búið, einkum hvað varðar útflutn­ings­grein­arnar þess og ferða­mensku. Ekstra Bladet birti greina­flokk um kon­ungs­fjöl­skyld­una í fyrra þar sem sagt var að Margrét Þór­hildur Dana­drottn­ing og fjöl­skylda hennar væru 400 til 500 millj­óna danskra kr. baggi á rík­inu. Á móti er til sér­fræði­á­lit sem segir að kon­ungs­fjöl­skyldan sé tuga millj­arða danskra kr. virði fyrir danska þjóð­ar­búið. Þar af sé Mary ein og sér virði um tólf millj­arða danskra króna eða yfir 200 millj­arða íslenskra króna.

Danir elska kon­ungs­fjöl­skyldu sína eins og skoð­ana­kann­anir hafa ítrekað gefið í skyn. Sem stendur eiga þau Mary og Friðrik krón­prins fjögur börn. Kristján prins sem verður 10 ára gam­all í októ­ber, systur hans Ísabellu sem er átta ára gömul og tví­burana Vincent og Jósefínu sem eru fjög­urra ára gamlir. Friðrik krón­prins hefur ítrekað sagt að hann vilji eign­ast stóra fjöl­skyldu. Mary hefur aug­ljós­lega verið ein­huga honum í þeim efnum.

Aðeins orðrómur


Sem fyrr segir eru danskir fjöl­miðlar ekki mikið að æsa sig í augna­blik­inu yfir meintri óléttu krón­prinsessunnar en nokkrir þeirra hafa end­ur­sagt frétt­irnar frá Ástralíu. Á vef­síðu avisen.dk í vik­unni var frétt um málið undir fyr­ir­sögn­inni „Orðrómur um óléttu í Ástralíu“. Þar kemur fram að fréttir um ólétt­una hafi fyrst birst í tveimur tíma­ritum, það er Woman’s Day og New Idea. Í því fyrr­greinda var ein­ungis stað­hæft að Mary væri ólétt en hið síð­ar­nefnda bætti um betur og sagði að krón­prinsessan gengi með tví­bura. Í umfjöllun Her og Nu um frétt­irnar frá Ástralíu kemur einnig fram að þar fyrir sunnan hafi menn einnig heim­ildir fyrir því að Mary muni heim­sækja heima­slóðir sínar undir árs­lok til þess að hvíla sig fyrir kom­andi fæð­ingu.

Gífurlegar vinsældir


Danska kon­ungs­fjöl­skyldan nýtur gíf­ur­legra vin­sælda meðal dönsku þjóð­ar­innar eins og skoð­ana­kann­anir sýna. Vel yfir 80% Dana eru hlið­hollir kon­ungs­fjöl­skyldu sinni og vilja halda henni áfram en þeir sem vilja leggja hana niður eru að jafn­aði í kringum 15% í þessum könn­unum. Það er einkum Margrét Þór­hildur drottn­ing sem veldur þessum vin­sældum. Hún er iðu­lega kölluð Daisy af þegnum sínum. Hvergi ann­ars staðar í Evrópu er að finna jafn­mik­inn stuðn­ing við kon­ungs­fjöl­skyldu lands­ins.

Sem dæmi um vin­sældir Mar­grétar Þór­hildar meðal Dana má nefna atvik sem kom upp í opin­berri veislu í sænsku kon­ungs­höll­inni í kringum síð­ustu alda­mót. Drottn­ingin er stór­reyk­inga­kona og fer ekk­ert leynt með það. Hún reykir um tvo pakka af sterkum grískum sígar­ettum á dag. Í fyrr­greindri veislu brá Margrét sér afsíðis í hlið­ar­her­bergi til að fá sér „smók“. Þetta komst í sænska fjöl­miðla sem náðu ekki upp í nef sér af hneykslun þar sem tóbaks­reyk­ingar eru strang­lega bann­aðar í öllum opin­berum bygg­ingum í Svíþjóð. Mótmæli danskra fjöl­miðla gegn skrifum þeirra sænsku voru svo á þann veg að fyrir ókunn­ugan mætti halda að alvar­leg milli­ríkja­deila, ef ekki stríð væri skollið á milli Dana og Svía vegna máls­ins. „Póli­tískt rétt­hugs­andi“ Svíum kæmi það ekk­ert við að Daisy fengi sér „smók“ milli rétta í opin­berri veislu. Þetta fár logn­að­ist síðan út á nokkrum dögum.

Hvers virði er vörumerkið?


Sem stendur fær Margrét Þór­hildur Dana­drottn­ing og fjöl­skylda hennar tæp­lega 106 millj­ónir danskra kr. í ráð­stöf­un­arfé (apanage) á ári. Af þess­ari upp­hæð fær drottn­ingin beint tæpar 7 millj­ónir danskra kr. en restin dreif­ist milli ann­arra með­lima fjöl­skyld­unnar. Þetta fé er skatt­frjálst.

Í fyrr­greindum grein­ar­flokki Ekstra Bladet var síðan lagt mat á óbeinan kostnað af við­haldi fjöl­skyld­unnar eins og örygg­is­gæslu, ferða­lög og fleira og fengið út að kon­ungs­fjöl­skyldan kost­aði danska skatt­greið­endur a.m.k. 400 millj­ónir danskra kr. á ári og senni­lega nokkuð meira.

Á móti kemur hagn­aður danska þjóð­ar­bús­ins af vöru­merk­inu Danska kon­ungs­fjöl­skyldan. Ekki eru til opin­berar tölur eða raun­hæfir útreikn­ingar á þessum hagn­aði. Hins­vegar hafa tals­menn tveggja þunga­vikt­ar­sam­taka, það er félags atvinnu­rek­enda og sam­taka iðn­að­ar­ins í Danmörku, ítrekað sagt að verð­mæti fjöl­skyld­unnar sé ómet­an­legt þegar kemur að fram­gangi danskra fyr­ir­tækja á alþjóða­mark­aði, sem og menn­ingar og ekki hvað síst ferða­mennsku. Enda hefur fjöl­s­skyldan ætíð verið þess boðin og búin að styðja við bakið á dönskum fyr­ir­tækjum sem eru í alþjóð­legum rekstri.


Crown Princess Mary in Copenhagen Award Ceremony last night pic.twitter.com/KnvQTgVyJG


— TheDanishMonarchy (@DanishMonarchy) Sept­em­ber 5, 2015

Enskur sér­fræð­ingur reiknað það eitt sinn út að vöru­merkið Det Danske Hof væri fleiri tuga millj­arða danskra kr. virði. Útreikn­ingar hans birt­ust fyrir nokkrum árum í frí­blað­inu Dato sem ekki lengur er til. Þar hélt hann því fram að bara krón­prinsessan væri 12 millj­arða danskra kr. virði fyrir danska þjóð­ar­búið. Ekstra Bladet hjólaði í þessa útreikn­inga sér­fræð­ings­ins í sínum grein­ar­flokki og komst að því að þeir væru byggðir á mjög veikum grunni. Raunar mun sá enski hafa reiknað þetta út á bak­hlið umslags á kaffi­húsi, að því er fram kom í Ekstra Bladet. Eftir sem áður stendur að danskt við­skipta­líf telur fjöl­skyld­una vera ómet­an­lega þegar kemur að fram­gangi danskra við­skipta í öðrum löndum.

Viðskipti eru lykillinn


Flest af stærstu dönsku fyr­ir­tækj­unum sem selja vörur sínar á alþjóð­legum mark­aði eru með við­skipti að ein­hverju marki við dönsku kon­ungs­höll­ina. Þetta gefur þeim leyfi til að binda sig beint við hina eðal­bornu með því að segja á vörum sínum að fyr­ir­tækin séu „Lever­andør til Det Konglige Danske Hof“. Sem dæmi um slíkt má nefna brugg­húsið Carlsberg, sæl­gæt­is­gerð­ina Anton Berg, LEGO og hljóm­tækja­fram­leið­and­ann Bang & Olufsen.

Það eru ekki bara dönsk fyr­ir­tæki sem telja sig hafa hag af því að vera Lever­andør til Det Konglige Danske Hof. Af öðrum fyr­ir­tækjum sem skarta slíkum tengslum má nefna Ford Motor Company, Volvo og IBM.

Þótt ekki séu til raun­hæfir útreikn­ingar á þýð­ingu dönsku kon­ungs­fjöl­skyld­unnar fyrir þjóð­ar­hag lands­ins er það til fyrir þá bresku. Sér­fræð­ingar telja að breska kon­ungs­fjöl­skyldan, eða vöru­merkið The Royal Family, skili breska þjóð­ar­bú­inu tæp­lega 1,2 millj­örðum punda í ár bara fyrir það að vera til. Bretar eru ríf­lega tífalt fleiri en Danir og ef höfða­tölu­mæl­ingu er notuð ætti danska kon­ungs­fjöl­skyldan því að skila danska þjóð­ar­bú­inu ríf­lega tífalt minni upp­hæð að öðru jöfnu . Sú upp­hæð er laus­lega reiknuð um einn millj­arður danskra kr. Miðað við þetta, og reikn­inga Ekstra Bladet, er danska kon­ungs­fjöl­skyldan tvö­falt meiri blessun en baggi fyrir danska þjóða­búið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár