Kári: Engin nútíma læknisfræði án svona tækis

Þetta er til­tölu­lega ný til­komið, sagði Kári Stef­áns­son þegar Kjarninn náði tali af honum síð­degis í dag en Íslensk erfða­grein­ing, fyr­ir­tækið sem Kári veitir for­stöðu, færði íslenska rík­inu jáeindaskanna að gjöf en slíkt tæki kostar um 800 millj­ónir króna. Kristján Þór Júl­í­us­son, heil­brigð­is­ráð­herra, veitti gjöf­inni við­töku í húsa­kynnum Íslenskrar erfða­grein­ingar í Vatns­mýri klukkan 15.

„Það hefur staðið til í þrjár vikur. Ég hef verið að velta fyrir mér mögu­leik­anum á að afla fjár fyrir svona tæki en þessi nálgun sem við höfðum er ekki gömul,“ sagði Kári þegar hann var spurður hversu lengi þetta hafi staðið til.

Kári segir ástæðu gjaf­ar­innar vera aug­ljósa enda sé mikil þörf fyrir svona skanna á Íslandi. Það sé orðið sér­stak­lega mik­il­vægt í aðhlynn­ingu krabba­meins­sjúkra, það sé til dæmis notað til að ganga úr skugga um að krabba­meins­með­ferð hafi gengið að óskum. „Það er varla hægt að halda því fram að við séum með nútíma lækn­is­fræði í gangi án þess að hafa svona skanna,“ segir hann.

Íslensk erfða­grein­ing hefur lengi verið fram­ar­lega í rann­sóknum á afgengum sjúk­dómum á borð við Alzheimers-sjúk­dóm­inn. Kári segir tækið mjög mik­il­vægt við grein­ingu á þeim sjúk­dómi og að það sé „raun­veru­lega óásætt­an­legt að vera ekki með svona apparat í land­inu og erfitt að skilja hvers vegna menn hafa for­gangs­raðað þannig að það sé ekki nú þegar komið.“

[caption id="" align="alignnone" width="1024"] Skanninn nýt­ist til marg­vís­legra rann­sókna, í grein­ingu sjúk­dóma og eft­ir­fylgni með­ferða. (Mynd: EPA)[/caption]

Samkvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans hefur tækið ekki verið pantað og þess vegna erfitt að áætla raun­hæfa tíma­setn­ingu þess að jáeindas­kann­inn verði settur í gang. „Ég reikna með því að þetta tæki verði sett inn á rík­is­stofnun og þær hreyfa sig jafnan hægar en aðrar stofn­anir í sam­fé­lag­inu þannig að ég get ekki spáð fyrir um hversu langan tíma það tekur,“ segir Kári. „Ég vona að það verði sem allra fyrst.“

Eins og stendur er hús­næði Lands­spít­al­ans, þar sem Kári telur að tækið muni vera hýst, ekki und­ir­búið fyrir svo stórt tæki en með fjár­upp­hæð­inni sem Íslensk erfða­grein­ing veitti er pen­ingur eyrna­merktur aðlögun hús­næðis fyrir svona skanna. Kári segir að ekki þurfi að ráð­ast í nýbygg­ingar en tölu­verðrar aðlög­unar sé þörf.

Nýtist til rannsókna eins og önnur tæki spítalans


„Það gleym­ist stundum í öllu þessu að lækn­is­fræðin byggir alger­lega, alfarið og ein­göngu á nið­ur­stöðum úr rann­sóknum af þeirri gerð sem við erum að fást við,“ segir Kári og ítrekar að allar nið­ur­stöður sem koma úr rann­sóknum með svona skanna séu nið­ur­stöður sem nýta má til lækn­is­fræði­rann­sókna.

„Og ég vona að þessi skanni, eins og öll önnur tæki inni á Land­spít­al­anum, búi til nið­ur­stöður sem hægt verður að nýta af okkur og öðrum til að vinna rann­sóknir. Ég reikna fast­lega með því að þessi skanni komi til með að leggja fram gögn til lækn­is­fræði­rann­sókna eins og öll önnur tæki Lands­spít­al­ans,“ segir Kári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár