Seðlabankinn spáir meiri hagvexti og hærri verðbólgu

Seðla­bank­inn gerir ráð fyrir meiri hag­vexti en áður, en jafn­framt hærri verð­bólgu.

Seðla­bank­inn gerir ráð fyrir meiri hag­vexti á þessu ári og því næsta en áður, en jafn­framt er spáð meiri verð­bólgu. Þetta kemur fram í nýjum Pen­inga­málum, sem komu út sam­hliða vaxta­á­kvörðun Seðla­bank­ans í morgun.

Hag­vöxtur er tal­inn hafa verið fjögur pró­sent á Íslandi í fyrra, sam­kvæmt bráða­birgða­tölum frá Hag­stof­unni, og búist er við því að í ár verði hann 4,5 pró­sent. Það er vegna mik­ils vaxtar í inn­lendri eft­ir­spurn og einnig kröft­ugs útflutn­ings­vaxtar.

Seðla­bank­inn spáir því jafn­framt að hag­vöxt­ur­inn verði meiri en áður var talið á næsta ári, eða fjögur pró­sent í stað 3,4 pró­senta. Ef þetta gengur eftir verður það þriðja árið í röð sem hag­vöxtur á Íslandi er um og yfir fjögur pró­sent. „Svo mik­ill hag­vöxtur er langt umfram lang­tíma­hag­vaxt­ar­getu þjóð­ar­bús­ins og óhjá­kvæmi­legt að nokkuð hægi á hag­vexti á næstu árum að öðru óbreyttu.“

Atvinnuþátttaka orðin eins og 2007

Seðla­bank­inn talar einnig um þann mikla kraft sem sé á inn­lendum vinnu­mark­aði og birt­ist meðal ann­ars í fjölgun starfa og vax­andi atvinnu­þátt­töku. Atvinnu­þátt­taka á Íslandi er komin í 83 pró­sent, þegar tekið er til­lit til árs­tíða­sveiflna, sem er svipað og þegar mest var fyrir kreppu, í byrjun árs­ins 2007. Seðla­bank­inn segir að atvinnu­leysi sé því orðið minna nú en ætla megi að sam­ræm­ist verð­stöð­ug­leika.

„Samkvæmt spánni heldur atvinnu­leysi áfram að minnka og verður 3,3% að með­al­tali í ár. Það er um ½ pró­sentu minna atvinnu­leysi en spáð var í febr­úar og end­ur­speglar horfur á þrótt­meiri efna­hags­um­svifum en þá var gert ráð fyrir. Af sömu ástæðum er talið að fram­leiðslu­spennan verði heldur meiri í ár en þá var spáð,“ segir í Pen­inga­málum. Gert er ráð fyrir því að spennan taki að minnka á næsta ári og atvinnu­leysi muni þok­ast upp á ný.

Verðbólguhorfur versna

Verð­bólga hefur nú verið undir mark­miði Seðla­bank­ans í meira en tvö ár, en hún var 1,6 pró­sent í apríl síð­ast­liðnum. Að mestu leyti er lág verð­bólga vegna inn­fluttrar verð­hjöðn­unar og hærra gengis krón­unnar. Þar munar mjög miklu um lágt verð á olíu. Seðla­bank­inn gerir ráð fyrir því að verð­bólgan muni aukast þegar líður á árið og verði komin í þrjú pró­sent undir lok þess. „Hins vegar eru horfur á meiri verð­bólgu á seinni hluta næsta árs og framan af árinu 2018 en spáð var í febr­úar sem skýrist fyrst og fremst af því að efna­hags­um­svif eru nú talin vaxa hraðar og að fram­leiðslu­spenna verði því meiri.“

Launa­hækk­anir eru áfram helsta ástæðan fyrir vax­andi verð­bólgu­þrýst­ingi, bæði beint og óbeint. Seðla­bank­inn spáir því nú að verð­bólga nái hámarki í 4,5 pró­sentum á seinni hluta næsta árs, en hjaðni á ný niður fyrir þrjú pró­sent um mitt ár 2019.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár