Sérfræðingahóp ekki falið að skoða hátekjuþrep

Sér­fræð­inga­hópur fjár­mála­ráð­herra kynnti í gær breyt­ing­ar­til­lögur á skatt­kerf­inu. Hópurinn lagði meðal ann­ars til að per­sónu­af­sláttur yrði lækk­aður sam­hliða því að bæta við lægra skatt­þrepi. Hópnum var ekki falið að skoða hátekju­þrep.

Axel Hall, formaður sérfræðingahópsins kynnti skýrsluna á blaðamannfundi í gær
Axel Hall, for­maður sér­fræð­inga­hóps­ins kynnti skýrsl­una á blaða­mann­fundi í gær

Sér­fræð­inga­hópur, sem skip­aður var af fjár­mála­ráð­herra, kynnti nið­ur­stöður skýrslu um end­ur­skoðun tekju­skatts og bóta­kerfa hjá ein­stak­lingum og fjöl­skyldum á blaða­manna­fundi í gær. Hópnum var falið að skoða hvernig nýta megi þá fjár­muni sem mark­aðir eru í fjár­mála­á­ætlun 2019 til 2023 til hags­bóta fyrir þá sem hafa lægri tekjur og leggja til útfærslur á breyt­ingu á skatt­kerf­inu.

Hópurinn lagði meðal ann­ars til að per­sónu­af­sláttur verði lækk­aður sam­hliða því að bæta við lægra skatt­þrepi. Hópnum var ekki falið að skoða hátekju­skatt­þrep sam­kvæmt for­manni hóps­ins enda hafi hóp­ur­inn ekki haft umboð til að hækka skatta. Markmið hóps­ins hafi verið að minnka álögur og auka jöfnuð.

Lægra skattþrepið hefur áhrif á skattgreiðslur allra

Ein stærsta breyt­ingin sem hóp­ur­inn lagði til er að skatt­leys­is­mörk og per­sónu­af­sláttur og tekju­mörk skatt­þrepa verði látin fylgja þróun breyt­inga á vísi­tölu neyslu­verðs og þróun fram­leiðni. Slík teng­ing myndi sam­kvæmt skýrsl­unni tryggja að tekju­jöfn­un­ar­eig­in­leikar skatt­kerf­is­ins hald­ist yfir tíma, án þess að skerða hag­stjórn­ar­á­hrif um of. Þannig væri hægt að hafa meiri pró­sentu­lækkun á fyrsta skatt­þrepi og hærri mörk þess þreps. Þetta á að verða til þess að skatt­byrði þeirra tekju­lægri vaxi hægar en skatt­byrði tekju­hærri vaxi aftur á móti hraðar, sam­kvæmt skýrsl­unni.

Axel Hall, for­maður sér­fræði­hóps­ins, segir að þessi til­laga sé ein mesta breyt­ing á stað­greiðslu­kerf­inu frá því að núver­andi kerfi var tekið upp. „Þessi til­laga gerir það að verkum að hún við­heldur jöfn­un­ar­hlut­verki skatt­kerf­is­ins og kemur í veg fyrir að kerfið verði flatt yfir tíma, í því að skatt­byrði allra kom­ist á sama stig á mjög löngum tíma. Þannig að þessi til­laga bæði felur í sér að vera virkt hag­stjórn­ar­tæki og að við­halda lóð­réttum jöfn­uði yfir tíma,“ sagði Alex í sam­tali við frétta­stofu Rúv í gær. [adspot]

[links]Enn­fremur lagði hóp­ur­inn til nýtt neðra skatt þrep skatt­kerfs­ins sem rík­is­stjórnin kynnti jafn­framt í síð­ustu viku. Þrepið verður fjórum pró­sentu­stigum lægra en núver­andi grunn­pró­senta kerf­is­ins, eða 32.94 pró­sent. Axel segir að lægra skatt­þrepið hafi áhrif á skatt­greiðslur allra, en það í krónu­tölum. Það þýðir að hlut­falls­lega vegur sú krónu­tala léttar eftir því sem tekjur verða hærri.

Ekki í þeirra umboði að hækka skatta

Sér­fræði­hópnum var ekki falið að skoða áhrif og útfærslu hátekju­skatt­þreps við end­ur­skoðun skatt­kerfs­ins. „Okkur voru ekki lagðar línur um það og það gerði það ein­fald­lega að verkum að við horfum ekki til útfærslu þess,“ sagði Axel í sam­tali við Morg­un­blaðið.

Axel sagði að hóp­ur­inn hefði haft það að leið­ar­ljósi að til­lög­urnar myndu skila ávinn­ingi til þeirra sem hafa lágar tekjur með þeim fjár­munum sem eru til ráð­stöf­unar án þess þó að öðrum væri íþyngt. Hann sagði jafn­framt að það verði að horfa á til­lögur hóps­ins í því ljós að það var ekki í þeirra umboði að hækka skatta.

ASÍ og BSRB hafa farið fram á að komið verði á hátekju­skatti og telja verka­lýðs­fél­göin að til­lögur stjórn­valda að breyt­ingum á skatt­kerf­inu gangi ekki nægi­lega langt í átt að jöfn­uði. ASÍ hefur lagt til að tekið verði upp fjög­urra þrepa skatt­kerfi þar sem fjórða skatt­þrepið verði eins konar hátekju­skattur.

Samnýting skattþrepa sambúðaraðila verði aflögð

Í skýrsl­unni kemur fram að til­lögur hóps­ins feli í sér að jöfn­unin verði í rík­ara mæli borin af þrepum kerfs­ins en áður í stað þess af per­sónu­af­slætti og skatt­leys­is­mörkum. Jafn­framt kemur fram að til þess að þrepið end­ur­spegli lækkun grunn­pró­sentu í þrep­inu sem máli skiptir verði per­sónu­af­sláttur frystur á inn­leið­ing­ar­tíma þreps­ins og verð­lags­upp­færsla per­sónu­af­sláttar kemur í gegnum nýs lægra skatt­þreps. Skatt­leys­is­mörk hald­ist þannig föst að raun­verði. Enn­fremur verður samnýt­ing sam­búð­ar­að­ila á skatta­þrepum aflögð en milli­færsla per­sónu­af­sláttar verði óbreytt frá því sem nú er.

Hópurinn skoð­aði einnig vaxta­bóta­kerfið en fram kom í skýrsl­unni að kerfið væri í eðli sínu flókið og ógang­sætt og leggur hóp­ur­inn því til að það verði ein­faldað. Jafn­framt voru lagðar fram til­lögur um hús­næð­i­stuðn­ings- og barna­bóta­kerfið og sam­spil þeirra við skatt­kerfið þar sem greind voru áhrif stuðn­ings­kerf­anna á ólíka hópa í sam­fé­lag­inu. Hægt er að lesa um til­lögur sér­fræði­hóps­ins hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár