Skattstofninn stækkar en bótagreiðslur minnka

Tekju­skatts- og útsvars­stofn rík­is­ins hefur stækkað um 11,2% árið 2016. Á sama tíma hefur barna­bóta­greiðslum lækkað um 0,5% og vaxta­bóta­greiðslum lækkað um 16,4%.

Tekjur ríkisins jukust umtalsvert árið 2016
Tekjur rík­is­ins juk­ust umtals­vert árið 2016

Í til­kynn­ingu frá Fjár­mála­ráðu­neyt­inu kemur fram að tekju­skatts- og útsvars­stofn hafi auk­ist um 11,2% árið 2016. Á sama tíma­bili hafa heild­ar­greiðslur rík­is­sjóðs vegna vaxta­bóta og barna­bóta lækkað.

Álagning opin­berra gjalda á ein­stak­linga fyrir árið 2016 var birt á vef stjórn­ar­ráðs­ins í gær, en þar kemur fram að tekjur rík­is­ins af tekju­skatti og útsvari hafi auk­ist umtals­vert á árinu. Fram­telj­endum hafi fjölgað um 3,3% milli ára og voru sam­tals 286.728 manns.

Tekju­skatts- og útsvars­stofn lands­manna árið 2017 vegna tekna árið 2016 nemur rúmum 1.200 millj­arða króna og hefur auk­ist um 11,2% frá fyrra ári. Stækkun tekju­skatts­stofns­ins má öðru fremur rekja til hærri launa, en á sama tíma­bili hækk­aði launa­vísi­tala Hag­stof­unnar að með­al­tali um 11,4%. Álagt útsvar til sveit­ar­fé­laga jókst einnig um 11,9% og stendur nú í 192,7 millj­örðum króna.

Til marks um gott efna­hags­á­stand er einnig hækkun á inn­heimtum fjár­magnstekju­skatti, en hún var 24,8% milli ára. Gjald­endum fjár­magnstekju­skatts fjölg­aði um 9,6%, eða í tæp­lega 43 þús­und. Fjöldi greið­enda er þó mun færri nú en árið 2010 áður en frí­tekju­marki vaxta­tekna var komið á, en þá voru þeir tæp­lega 183 þús­und.

Sömu sögu er að segja með virð­is­auka­skatt­stofn­inn sem finna má í rík­is­reikn­ingi fyrir árið 2016. Stofninn jókst úr 197 millj­örðum í 220 millj­arða, eða um 11,6%.

Þrátt fyrir mikla hækkun skatt­stofns­ins höfðu þó heild­ar­greiðslur rík­is­sjóðs vegna barna­bóta lækkað lít­il­lega, eða um 0,5% milli ára. Lækkunin skýrist af því að tekjur barna­fjöl­skyldna hafa hækkað meira en við­mið­un­ar­fjár­hæðir barna­bóta og þannig hafi færri ein­stak­lingar fengið bætur. Þó hefur fjár­hæð með­al­bóta hækkað um 2,4% milli ára, en bóta­þegum fækkað um 2,9%.

Sömu­leiðis hafa almennar vaxta­bætur vegna vaxta­gjalda af lánum til kaupa á íbúð­ar­hús­næði lækkað um 16,8%. Eins og með barna­bætur skýrist lækkun vaxta­bóta af betri eig­in­fjár­stöðu heim­ila, en hún batn­aði um 13,4% á síð­asta ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

skattamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár