Líf útilokar Sjálfstæðisflokk og Miðflokk

Stefna flokk­anna tveggja algjör­lega ósam­rým­an­leg við stefnu Vinstri grænna. Segir drauma­stöð­una að Vinstri græn og Sam­fylk­ingin fái hreinan meiri­hluta. Gæti séð fyrir sér sam­starf við Sós­í­alista­flokk­inn

Sósíalistaflokkurinn kæmi til greina
Sós­í­alista­flokk­ur­inn kæmi til greina Líf Magneu­dóttir, odd­viti Vinstri grænna, úti­lokar sam­starf við Sjálf­stæð­is­flokk­inn eða Mið­flokk­inn. Til greina kæmi að vinna með Sós­í­alista­flokknum, fái flokk­ur­inn kjörna full­trúa í borg­ar­stjórn. Mynd: Heiða Helgadóttir

Líf Magneu­dóttir, odd­viti Vinstri grænna í Reykja­vík, úti­lokar sam­starf við Sjálf­stæð­is­flokk og Miðflokk að afloknum borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum. Stefna flokk­anna sé ósam­rým­an­leg við stefnu Vinstri grænna. Líf seg­ist ánægð með sam­starf núver­andi meiri­hluta og vilja halda áfram að vinna að þeim verk­efnum sem hafi verið hrint af stað í því sam­starfi.

Þetta kemur fram í úttekt á kosn­inga­lof­orðum Vinstri grænna, og efndum þeirra, í nýjasta tölu­blaði Stund­ar­innar sem kom út í dag. Þar er rakið að Vinstri græn gáfu eftir stærsta kosn­inga­lof­orð sitt, um að leik­skólar, grunn­skólar og frí­stunda­heim­ili borg­ar­innar skyldu verða gjald­frjáls, strax við myndun borg­ar­stjórn­ar­meiri­hlut­ans að afloknum kosn­ingum 2014. Loforð flokks­ins fyrir kosn­ing­arnar nú eru í heild­ina mun hóf­stillt­ari en var fyrir fjórum árum.

„Mér finnst Píratar vera mjög loðnir í til­svörum“ 

Líf er spurð að því hvaða sam­starfs­kosti hún sjái fyrir sér, kom­ist Vinstri græn í aðstöðu til að taka þátt í meiri­hluta­sam­starfi að nýju. Hún leggur áherslu á að starfa áfram með Sam­fylk­ing­unni. „Ég sé fyrir mér að VG og Sam­fylk­ingin verði burða­rás í næsta meiri­hluta. Bæði ég og Dagur höfum gefið það út að við viljum starfa áfram saman. Drauma­staðan er sú að þessir tveir flokkar fái hreinan meiri­hluta. Mér finnst Píratar vera mjög loðnir í til­svörum og hafi ekki verið jafn afdrátt­ar­laus í því að vilja starfa áfram í þessum meiri­hluta og við.“

Þurfi hins vegar að bæta við sam­starfs­flokkum seg­ist Líf ekki búin að sjá fyrir sér hvaða flokkar það geti orðið. „Stefnu­mark­mið Sós­í­alista­flokks­ins eru um margt áþekk því sem við í VG leggjum áherslu á, þannig að ég get alveg séð fyrir mér að við myndum vilja starfa með Sós­í­alistum í borg­ar­stjórn.“

Spurð hvort hún úti­loki sam­starf við Sjálf­stæð­is­flokk og Miðflokk, líkt og Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri gerði í síð­asta tölu­blaði Stund­ar­innar, svarar Líf: „Já, eins og stefna þeirra er þá geri ég það.“

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár