Seðlabankinn upplýsir um undanþágur frá gjaldeyrishöftum

Fjár­mála­fyr­ir­tæki sem hafa lokið slita­með­ferð hafa fengið und­an­þágur frá gjald­eyr­is­lögum vegna inn­flutn­ings á 1.525.649.868 íslenskum krónum, gjald­eyr­is­við­skiptum og/eða fjár­magns­flutn­ingi á milli landa í erlendum gjald­eyri fyrir rúma milljón punda, tæp­lega 37 millj­ónir sænskra króna, 12,5 millj­ónir Banda­ríkja­dala, 5,7 millj­ónir norskra króna, tæp­lega 58 millj­ónir evra, tæp­lega 40 millj­ónir danskra króna, og 12 millj­ónir kanadískra dala og að and­virði ríf­lega 116 millj­arða íslenskra króna.

Þetta kemur fram í svari Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurn frá Helga Hjörvar um und­an­þágur frá gjald­eyr­is­höftum. Helgi spurði um und­an­þág­urnar í mars síð­ast­liðnum, en svar var birt í dag.

Fjár­mála­ráðu­neytið leit­aði til Seðla­bank­ans til að fá svör, vegna þess að ráðu­neytið seg­ist ekki búa yfir þessum upp­lýs­ingum nema að tak­mörk­uðu leyti.

Seðla­bank­inn hefur einnig veitt líf­eyr­is­sjóðum und­an­þágur frá gjald­eyr­is­lögum vegna inn­flutn­ings á ríf­lega 96 millj­örðum króna og vegna gjald­eyr­is­við­skipta og/eða fjár­magns­flutn­inga á milli landa í erlendum gjald­eyri fyrir rúm­lega 18 millj­ónir evra og jafn­virði 27 millj­arða króna.

Seðla­bank­inn upp­lýsir ekki um und­an­þágur til fjár­mála­fyr­ir­tækja sem eru í slita­með­ferð. Bankinn seg­ist hafa ríkar trún­að­ar­skyldur gagn­vart þeim sem óska eftir und­an­þágum frá gjald­eyr­is­lögum og hann hafi almennt þá reglu að birta ekki upp­lýs­ingar ef færri en þrír aðilar eru undir. Þar sem aðeins tvö fjár­mála­fyr­ir­tæki, Landsvaki og Saga Capital, eru í slita­með­ferð sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá fjár­mála­eft­ir­lit­inu sé ekki hægt að veita slíkar upp­lýs­ingar.

For­gangs­kröfu­hafar föllnu bank­anna hafa fengið und­an­þágur vegna fjár­magns­flutn­ings milli landa upp á tæpar 32 millj­ónir evra, 5 millj­ónir punda, 70 millj­ónir norskra króna og tæp­lega 13 millj­ónir banda­ríkja­dala. Þá eru ekki teknar með í reikn­ing­inn und­an­þágur sem voru veittar vegna Icesave.

Erlendir eig­endur og kröfu­hafar fyr­ir­tækja sem hafa lokið nauða­samn­ingi hafa fengið und­an­þágur upp á 557 millj­ónir krónar og 5,4 millj­arða króna í erlendum gjald­eyri.

Ekki liggur fyrir hversu háar upp­hæðir und­an­þágur til ann­arra inn­lendra aðila eru né heldur til ann­arra erlendra aðila. Seðla­bank­inn segir að slík úrvinnsla gagna væri mjög umfangs­mikil og tíma­frek.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár