Mynd: Birgir Þór Harðarson

Líkurnar á að ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur haldi velli komnar niður í 38 prósent

Í lok ágúst voru lík­urnar á því að sitj­andi rík­is­stjórn myndi halda 60 pró­sent. Þær hafa minnkað hratt en á sama tíma hafa lík­urnar á myndun fjög­urra flokka stjórnar án Sjálf­stæð­is­flokks auk­ist umtals­vert.

Líkurnar á því að rík­is­stjórn Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks sitji áfram eftir kom­andi kosn­ingar eru nú 38 pró­sent, sam­kvæmt nýj­ustu kosn­inga­spá Kjarnans og Baldurs Héð­ins­sonar. Þær hafa dreg­ist skarpt saman síð­ustu vikur en í lok ágúst mæld­ust lík­urnar á því að hægt yrði að mynda þessa rík­is­stjórn, kennda við for­sæt­is­ráð­herr­ann Katrínu Jak­obs­dóttur, 60 pró­sent.

Líkurnar eru fengnar með því að fram­kvæma 100 þús­und sýnd­ar­kosn­ingar. Í hverri sýnd­ar­kosn­ingu er vegið með­al­tal þeirra skoð­ana­kann­ana sem kosn­inga­spáin nær yfir hverju sinni lík­leg­asta nið­ur­staðan en sýnd­ar­nið­ur­staðan getur verið hærri eða lægri en þetta með­al­tal og hversu mikið byggir á sögu­legu frá­viki skoð­ana­kann­ana frá úrslitum kosn­inga.

Líkur á sam­steypu­stjórnum mis­mun­andi flokka
Fjöldi þing­sætaDVBDBMDVVPSBVPSCDBMF
>=410.000.000.000.000.000.00
>=420.000.000.000.000.000.00
>=410.000.000.000.010.000.00
>=400.010.000.000.020.010.00
>=390.010.000.000.030.020.00
>=380.020.000.000.050.030.01
>=370.040.000.000.090.060.01
>=360.070.000.000.150.100.02
>=350.120.010.000.220.150.05
>=340.190.020.000.310.230.08
>=330.280.040.000.420.320.12
>=320.380.070.000.530.420.19
>=310.490.120.010.640.540.27
>=300.610.180.010.740.650.37
>=290.720.270.030.820.740.48
>=280.810.370.050.880.830.59
>=270.880.490.090.930.890.69
>=260.930.600.150.960.930.78
>=250.960.710.230.980.960.86
>=240.980.800.340.990.980.91
>=230.990.980.460.990.990.95
>=221.000.920.591.001.000.97

Til að ná minnsta mögu­lega meiri­hluta á Alþingi þarf 32 þing­menn.

Til að fá þá nið­ur­stöðu sem er hér til umfjöll­unar er nýjasta kosn­inga­spáin notuð til að meta fylgi flokka eftir kjör­dæmum út frá fylgi þeirra í síð­ustu kosn­ingum.

Hægt er að sjá nýj­ustu kosn­inga­spánna, sem er frá því í gær, hér að neðan.

Þær kann­anir sem liggja til grund­vallar nýj­ustu kosn­inga­spánni eru eft­ir­far­andi:

  • Skoð­ana­könnun MMR í sam­starfi við Morg­un­blaðið 8 – 10. sept­em­ber (vægi 12,5 pró­sent)
  • Net­pan­ell ÍSKOS/Félags­vís­inda­stofn­unnar 23. ágúst – 13. sept­em­ber (13,2 pró­sent)
  • Þjóð­ar­púls Gallup 30. ágúst-12. sept­em­ber (vægi 17,6 pró­sent)
  • Skoð­ana­könnun Prósent í sam­starfi við Frétta­blaðið 13– 16. sept­em­ber (26,7 pró­sent)
  • Skoð­ana­könnun Maskínu í sam­starfi við Frétta­stofu Stöðvar 2, Bylgj­unnar og Vísis 8 – 13. sept­em­ber (30,0 pró­sent)

Sýnd­ar­kosn­ing­arn­arnar sýna að litlar sem engar líkur eru á því að hægt verði að mynda tveggja flokka stjórn miðað við þessa nið­ur­stöðu. Einungis tvö mynstur ná eitt pró­sent líkum, tveggja flokka stjórn Sam­fylk­ingar og Sjálf­stæð­is­flokks og stjórn Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks.

Fyrri mögu­leik­inn er þó ómögu­legur þótt meiri­hluti feng­ist, þar sem Sam­fylk­ingin hefur úti­lokað stjórn­ar­sam­starf við Sjálf­stæð­is­flokk.

Tvær fjögurra flokka stjórnir líklegri en núverandi stjórn

Tvær fjög­urra flokka stjórnir án Sjálf­stæð­is­flokks reikn­ast nú með meiri líkur á mögu­leika en sú þriggja flokka stjórn sem nú situr að völdum. Líkurnar á myndun fjög­urra flokka rík­is­stjórnar sem sam­an­stæði af Sam­fylk­ingu, Fram­sókn­ar­flokki, Vinstri grænum og Pírötum mæl­ast nú 54 pró­sent. Þær mæld­ust 33 pró­sent í ágúst.

Þar sem Vinstri græn og Viðreisn mæl­ast með nákvæm­lega sama fylgið í nýj­ustu kosn­inga­spá Kjarnans má ætla að miðju­stjórn þar sem flokkur Þor­gerðar Katrínar Gunn­ars­dóttur tæki sæti flokks Katrínar Jak­obs­dóttur myndi mæl­ast með sömu líkur, eða 54 pró­sent.

Líkur á fjölda þing­sæta hjá hverjum flokki fyrir sig
Fjöldi þing­sætaDVPSBCMJF
>=220.010.000.000.000.000.000.000.000.00
>=210.010.000.000.000.000.000.000.000.00
>=200.020.000.000.000.000.000.000.000.00
>=190.040.000.000.000.000.000.000.000.00
>=180.070.000.000.000.000.000.000.000.00
>=170.100.000.000.000.000.000.000.000.00
>=160.130.000.000.000.000.000.000.000.00
>=150.150.000.000.000.000.000.000.000.00
>=140.150.010.000.010.010.000.000.000.00
>=130.130.010.010.020.020.000.000.000.00
>=120.090.020.030.050.040.010.000.000.00
>=110.030.050.060.090.080.030.000.000.00
>=100.010.080.100.140.130.080.000.000.00
>=90.000.130.150.170.170.0140.000.010.00
>=80.000.170.180.180.170.190.010.030.01
>=70.000.180.180.150.150.210.040.070.01
>=60.000.150.140.100.110.170.090.130.04
>=50.000.100.090.050.070.100.160.190.09
>=40.000.060.040.020.030.050.210.210.16
>=30.000.020.010.010.010.010.130.120.13
>=20.000.000.000.000.000.010.030.010.02
>=10.000.010.010.000.000.030.120.070.12
>=00.000.010.000.000.000.030.200.160.44

Líkurnar á myndun stjórnar eftir Reykja­vík­ur­mód­el­inu svo­kall­aða, sem sam­an­stæði af Sam­fylk­ingu, Vinstri grænum, Pírötum og Viðreisn, eru líka betri en þær sem sitj­andi rík­is­stjórn hefur á því að halda völdum. Þær mæl­ast nú 42 pró­sent en voru 44 pró­sent í ágúst.

Sjálfstæðisflokkur ekki mælst lægri á árinu

Samkvæmt nýj­ustu kosn­inga­spánni þá er Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn stærstur allra flokka með 21,9 pró­sent fylgi, sem er undir kjör­fylgi hans í síð­ustu kosn­ingum og það lægsta sem hann hefur mælst með í kosn­inga­spánni það sem af er ári.

Sam­fylk­ingin virð­ist vera að ná stöðu sinni sem næst stærsti flokkur lands­ins á ný og fylgi flokks­ins hefur þok­ast upp á við síð­ustu daga. Það mælist nú 13,1 pró­sent og hefur ekki mælst hærra í spánni frá því að hún var keyrð fyrst í aðdrag­anda kom­andi kosn­inga, en það var í lok apríl. Hún virð­ist því vera að toppa á réttum tíma, nú þegar vika er í kosn­ingar.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn virð­ist ætla að verða eini stjórn­ar­flokk­ur­inn sem fer út úr kjör­tíma­bil­inu með meira fylgi en hann hóf það með. Hann mælist nú með 12,5 pró­sent stuðn­ing og er 1,8 pró­sentu­stigi yfir kjör­fylgi.

Píratar hafa sýnt mik­inn stöð­ug­leika í fylgi og mæl­ast nú með 11,9 pró­sent.

Vinstri græn hafa dalað síð­ustu daga og mæl­ast nú með jafn mikið fylgi og Viðreisn, eða 11,4 pró­sent.

Sós­í­alista­flokk­ur­inn mælist með 6,9 pró­sent, sem myndi skila honum örugg­lega inn á þing, og Mið­flokk­ur­inn með 6,1 pró­sent, Flokkur fólks­ins er sá flokkur sem mælist með minnst fylgi þeirra sem eiga raun­hæfan mögu­leika á að ná inn manni, eða 4,5 pró­sent.

Sýnd­ar­kosn­ing­arnar sýna ​​að 44 pró­sent líkur á því að Flokkur fólks­ins komi ekki manni inn á þing, 20 pró­sent líkur á að Mið­flokk­ur­inn nái ekki manni inn en ein­ungis 16 pró­sent líkur á að Sós­í­alista­flokkur Íslands þurfi að bíta í það súra epli. Til sam­an­burðar voru lík­urnar á því að Sós­í­alista­flokk­ur­inn næði ekki inn 29 pró­sent í síð­asta mán­uði.

Hvað er kosn­inga­spá­in?

Fyrir hverjar kosn­ingar um allan heim birta fjöl­miðlar gríð­ar­legt magn af upp­lýs­ingum. Þessar upp­lýs­ingar eru oftar en ekki töl­fræði­legar, byggðar á skoð­ana­könn­unum þar sem fólk hefur verið spurt hvernig það upp­lifir stjórn­málin og hvað það getur ímyndað sér að kjósa. Stjórn­mála­fræð­ingar og fjöl­miðlar kepp­ast svo við að túlka nið­ur­stöð­urnar og veita almenn­ingi enn meiri upp­lýs­ingar um stöð­una í heimi stjórn­mál­anna.

Allar þessar kann­anir og allar mögu­legar túlk­anir á nið­ur­stöðum þeirra kunna að vera rugl­andi fyrir hinn almenna neyt­anda. Einn kannar skoð­anir fólks yfir ákveðið tíma­bil og annar kannar sömu skoð­anir á öðrum tíma og með öðrum aðferðum. Hvor könn­unin er nákvæm­ari? Hverri skal treysta betur? Svarið er oftar en ekki óljóst því vand­inn er að hinn almenni kjós­andi hefur ekki for­sendur til að meta áreið­an­leika hverrar könn­unar.

Þar kemur kosn­inga­spáin til sög­unnar.

Kosn­­inga­­spálíkan Bald­­urs Héð­ins­­sonar miðar að því að setja upp­­lýs­ing­­arnar sem skoð­ana­kann­­anir veita í sam­hengi. Fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­­anir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosn­­inga. Nið­ur­stöður spálík­ans­ins eru svo birtar hér á Kjarn­anum reglu­lega í aðdrag­anda kosn­inga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið undanfarið ár