Minnkandi fylgi Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna gæti skilað þeim báðum utan stjórnar

Vinstri græn eru nú í þeirri stöðu að þrír miðju­flokkar eru með meira fylgi en þau og Viðreisn mælist með nákvæm­lega það sama. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist með sitt lægsta fylgi í kosn­inga­spánni.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fer í fyrsta sinn undir 22 pró­senta fylgi í kosn­inga­spá Kjarnans og Baldurs Héð­ins­sonar síðan að hún var fyrst keyrð vegna kom­andi kosn­inga í apríl síð­ast­liðnum. Um mitt sumar mæld­ist fylgi flokks­ins 24,6 pró­sent en það hefur minnkað um 2,7 pró­sentu­stig síðan þá. Flokk­ur­inn, sem er enn nokkuð afger­andi sá stærsti á Íslandi, er nú að mæl­ast 3,4 pró­sentu­stigum undir kjör­fylgi nú átta dögum fyrir kosn­ingar og mun að óbreyttu fá sína verstu útkomu í kosn­ingum frá upp­hafi.

Vinstri græn tapa líka fylgi milli spáa og mæl­ast nú með 11,4 pró­sent. Dýfa flokks­ins hefur verið nokkuð skörp síð­ustu vikur en seint í ágúst mæld­ist fylgið 13,7 pró­sent. Þegar horft er á fylgi í síð­ustu kosn­ingum þá hefur eng­inn flokkur tapað jafn miklu og Vinstri græn, sem mæl­ast nú með 5,5 pró­sentu­stigum minna fylgi en þau fengu þá. Verði það nið­ur­staða kosn­inga munu Vinstri græn hafa tapað þriðj­ungi af fylgi sínu á kjör­tíma­bili þar sem flokk­ur­inn leiddi rík­is­stjórn í fyrsta sinn. Frá 25. ágúst hafa Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Vinstri græn saman tapað 4,5 pró­sentu­stigum.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn virð­ist ætla að verða eini stjórn­ar­flokk­ur­inn sem fer út úr kjör­tíma­bil­inu með meira fylgi en hann hóf það með. Hann mælist nú með 12,5 pró­sent stuðn­ing og er 1,8 pró­sentu­stigi yfir kjör­fylgi.

Rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir njóta sam­tals 45,8 pró­sent fylgi og verði það nið­ur­staða kosn­ing­anna 25. sept­em­ber er rík­is­stjórnin nokkuð örugg­lega fallin. Þetta er minnsta sam­an­lagða fylgi sem þeir hafa haft í kosn­inga­spánni hingað til á árinu 2021. Sam­an­lagt tap flokk­anna þriggja sem að henni standa frá síð­ustu kosn­ingum stendur nú í 7,1 pró­sentu­stigum.

Miðjuflokkarnir í áframhaldandi sókn

Þeir stjórn­ar­and­stöðu­flokkar sem hafa verið að bæta við sig fylgi síð­ustu daga eru Sam­fylk­ing, Viðreisn og Píratar. Þann 26. ágúst síð­ast­lið­inn mæld­ist sam­an­lagt fylgi þeirra þriggja 32,6 pró­sent. Það mælist nú 36,4 pró­sent og því hafa þeir sam­an­lagt bætt við sig 3,8 pró­sentu­stigum á nokkrum vikum. Frá síð­ustu kosn­ingum hafa þessir þrír flokkar bætt við sig 8,4 pró­sentu­stigum. Sú vend­ing gæti breytt miklu þegar kemur að myndun rík­is­stjórnar ef þessi staða helst fram yfir næstu helgi.

Ýmsir þing­menn, og aðrir áhrifa­menn innan Sam­fylk­ing­ar­innar hafa verið að reka áróður á sam­fé­lags­miðlum um að atkvæði greitt Vinstri grænum sé atkvæði greitt rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokknum. Að sama skapi hefur sá hópur, jafnt opin­ber­lega og í einka­sam­tölum, verið að hvetja til þess að fólk með vinstritil­hneig­ingar eyði ekki atkvæði sínu í Sós­í­alista­flokk­inn þar sem hann sé ekki mögu­leiki við myndun rík­is­stjórnar. Hvort þessi aðferð­ar­fræði sé að virka til að píska vinstra­fylgið inn að miðj­unni, til Sam­fylk­ingar og Pírata, er ómögu­legt að segja til um en sú til­færsla er hið minnsta að eiga sér stað sam­hliða því að auk­inn kraftur hefur verið settur í þann áróður. Frá 26. ágúst hafa Vinstri græn og Sós­í­alista­flokk­ur­inn þó tapað 2,8 pró­sentu­stigum á meðan að Píratar og Sam­fylk­ing hafa bætt við sig 2,3 pró­sentu­stigum.

Sós­í­alista­flokk­ur­inn, sem bætti skarpt við sig í lok sum­ars og mæld­ist um tíma með yfir átta pró­sent fylgi, hefur nú mælst undir sjö pró­sentum í tveimur kosn­inga­spám í röð.

Viðreisn tínir af Sjálfstæðisflokknum

Viðreisn hefur farið úr því að vera með 9,9 pró­sent fylgi seint í ágúst í að vera með 11,4 pró­sent nú. Það er aukn­ing upp á 1,5 pró­sentu­stig. Á sama tíma­bili hefur Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn tapað 2,2 pró­sentu­stigum og virð­ist þorri þess fylgis hafa ratað á Viðreisn, en rök­rétt er að áætla að það sem upp á vantar hafi lent hjá Fram­sókn­ar­flokknum, sem mælist nú með 0,9 pró­sentu­stiga meira fylgi en 26. ágúst.

Mið­flokk­ur­inn mælist með 6,1 pró­sent fylgi þriðju kosn­inga­spánna í röð og virð­ist pikk­fastur á þeim slóðum Hann hefur ekki mælst með yfir 6,5 pró­sent fylgi frá því í byrjun sept­em­ber og stendur frammi fyrir afhroði ef fram fer sem horfir. Flokk­ur­inn vann mik­inn kosn­inga­sigur 2017 og fékk 10,9 pró­sent atkvæða. Ef fram fer sem horfir mun hann tapa um 44 pró­sent af stuðn­ingi sínum.

Flokkur fólks­ins er sá flokkur sem hefur sýnt mestan stöð­ug­leika í þess­ari kosn­inga­bar­áttu en for­svars­menn hans eru senni­lega ekki ánægðir með þann stöð­ug­leika. Frá því að farið var að keyra kosn­inga­spánna í lok apríl hefur Flokkur fólks­ins aldrei mælst með yfir fimm pró­sent fylgi en er að sama skapi afar stöð­ugur í kringum 4,5 pró­sentin, þar sem stuðn­ingur við hann stendur nú.

Líkur á fjögurra flokka stjórn aukast

Þegar kemur að myndun rík­is­stjórna virð­ast nokkrir mögu­leikar koma til greina. Miðju­stjórn Sam­fylk­ingar, Fram­sókn­ar­flokks, Pírata og Við­reisnar nýtur nú stuðn­ings 48,9 pró­sent kjós­enda og ætti að fá meiri­hluta. Þeir flokkar hafa nú sam­an­lagt 3,1 pró­sentu­stiga meira fylgi en stjórn­ar­flokk­arnir sam­an­lagt.

Inga Sæland hefur ekki náð Flokki fólksins á flug hingað til í kosningabaráttunni og hann dólar rétt undir fimm prósent markinu.
Inga Sæland hefur ekki náð Flokki fólks­ins á flug hingað til í kosn­inga­bar­átt­unni og hann dólar rétt undir fimm pró­sent mark­inu.

Reykja­vík­ur­mód­elið svo­kall­aða er líka mögu­leiki sem nýtur meira fylgis en núver­andi rík­is­stjórn­ar­mynstur, en í því sitja ofan­greindir flokkar utan Fram­sóknar og Vinstri græn koma í þeirra stað. Sam­an­lagt fylgi þeirra flokka sem standa að meiri­hlut­anum í Reykja­vík­ur­borg mælist nú 47,8 pró­sent.

Rík­is­stjórnin gæti auð­vitað kippt einum flokki upp í til sínu og náð með því góðum meiri­hluta. Einu val­kost­irnir sem eru þar á borð­inu eru þó Mið­flokkur og Viðreisn þar sem Sam­fylk­ingin, Píratar og Sós­í­alista­flokkur Íslands hafa allir úti­lokað sam­starf við Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

Ýmsir mögu­leikar eru á fimm flokka stjórn sem gæti haft mynd­ar­legan meiri­hluta á þingi. Sá sem yrði lík­leg­astur myndi sam­an­standa af Sam­fylk­ingu, Fram­sókn­ar­flokki, Pírötum, Vinstri grænum og Viðreisn en sam­an­lagt fylgi þess­ara fimm flokka mælist nú yfir 60 pró­sent.

Þær kann­anir sem liggja til grund­vallar nýj­ustu kosn­inga­spánni eru eft­ir­far­andi:

  • Skoð­ana­könnun MMR í sam­starfi við Morg­un­blaðið 8 – 10. sept­em­ber (vægi 12,5 pró­sent)
  • Net­pan­ell ÍSKOS/Félags­vís­inda­stofn­unnar 23. ágúst – 13. sept­em­ber (13,2 pró­sent)
  • Þjóð­ar­púls Gallup 30. ágúst-12. sept­em­ber (vægi 17,6 pró­sent)
  • Skoð­ana­könnun Prósent í sam­starfi við Frétta­blaðið 13– 16. sept­em­ber (26,7 pró­sent)
  • Skoð­ana­könnun Maskínu í sam­starfi við Frétta­stofu Stöðvar 2, Bylgj­unnar og Vísis 8 – 13. sept­em­ber (30,0 pró­sent)

Hvað er kosn­inga­spá­in?

Fyrir hverjar kosn­ingar um allan heim birta fjöl­miðlar gríð­ar­legt magn af upp­lýs­ingum. Þessar upp­lýs­ingar eru oftar en ekki töl­fræði­legar, byggðar á skoð­ana­könn­unum þar sem fólk hefur verið spurt hvernig það upp­lifir stjórn­málin og hvað það getur ímyndað sér að kjósa. Stjórn­mála­fræð­ingar og fjöl­miðlar kepp­ast svo við að túlka nið­ur­stöð­urnar og veita almenn­ingi enn meiri upp­lýs­ingar um stöð­una í heimi stjórn­mál­anna.

Allar þessar kann­anir og allar mögu­legar túlk­anir á nið­ur­stöðum þeirra kunna að vera rugl­andi fyrir hinn almenna neyt­anda. Einn kannar skoð­anir fólks yfir ákveðið tíma­bil og annar kannar sömu skoð­anir á öðrum tíma og með öðrum aðferðum. Hvor könn­unin er nákvæm­ari? Hverri skal treysta betur? Svarið er oftar en ekki óljóst því vand­inn er að hinn almenni kjós­andi hefur ekki for­sendur til að meta áreið­an­leika hverrar könn­unar.

Þar kemur kosn­inga­spáin til sög­unnar.

Kosn­­inga­­spálíkan Bald­­urs Héð­ins­­sonar miðar að því að setja upp­­lýs­ing­­arnar sem skoð­ana­kann­­anir veita í sam­hengi. Fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­­anir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosn­­inga. Nið­ur­stöður spálík­ans­ins eru svo birtar hér á Kjarn­anum reglu­lega í aðdrag­anda kosn­inga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið undanfarið ár