Vonast til þess að dómur Hæstaréttar standi sem bautasteinn til framtíðar

Í yfir­lýs­ingu um dóm Hæsta­réttar segj­ast aðstand­endur Stund­ar­innar og Reykja­vík Media von­ast til þess að þessi dómur, og þeir sem hann stað­festir, standi sem sem bauta­steinn til fram­tíðar með varð­stöðu um upp­lýs­inga­rétt almenn­ings og frelsi fjöl­miðla.

Stundin forsíða 20.10.2017
Stundin for­síða 20.10.2017 Mynd: Skjáskot

Útgáfu­fé­lag Stund­ar­innar og fjöl­miðla­fyr­ir­tækið Reykja­vík Media unnu fulln­að­ar­sigur í hinu svo­kall­aða lög­banns­máli Glitnis HoldCo, félags utan um eft­ir­stand­andi eignir hins fallna banka Glitn­is, í Hæsta­rétti í dag. Í yfir­lýs­ingu um dóm Hæsta­réttar segj­ast aðstand­endur Stund­ar­innar og Reykja­vík Media von­ast til þess að þessi dómur, og þeir sem hann stað­festir, standi sem sem bauta­steinn til fram­tíðar með varð­stöðu um upp­lýs­inga­rétt almenn­ings og frelsi fjöl­miðla.

Haft fælingaráhrif á fólk sem hefur undir höndum upplýsingar eða gögn

[links]Í yfir­lýs­ing­unni segir að 522 dögum eftir að lög­bann var sett á umfjöllun Stund­ar­innar og Reykja­vik Media um við­skipti Glitnis og þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra hafi nú fallið end­an­legur dómur Hæsta­réttar tján­ing­ar­frels­inu og upp­lýs­inga­rétti almenn­ings í vil. Þá segir í yfir­lýs­ing­unni að lög­banns­málið í heild sinni hafi án efa haft fæl­ing­ar­á­hrif á fólk í sam­fé­lag­inu sem hefur undir hönd­unum upp­lýs­ingar eða gögn sem eigi mikið erindi til almenn­ings sem það vilji koma til fjöl­miðla í krafti rétt­læt­is­kenndar. [adspot]

Vitnað er í dóm Hæsta­réttar í yfir­lýs­ing­unni en þar segir að „Við mat á því hvort ganga skuli framar í tján­ing­ar­frelsi stefndu eða frið­helgi þeirra aðila sem nefnd gögn lúta að verður að hafa í huga að þegar lög­bannið var lagt á 16. októ­ber 2017 voru ein­ungis 12 dagar í að kosið yrði til Alþingis og því sýnu brýnna en ella að upp­lýst fréttaum­fjöllun yrði ekki skert meira en nauð­syn bar til, sbr. til hlið­sjónar dóm Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu 19. febr­úar 1998 í máli Bowman gegn Bret­landi. Verður jafn­framt að líta til þess að meg­in­þungi fréttaum­fjöll­unar stefndu laut að við­skiptum þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra og aðila honum tengdum við Glitni banka hf. í aðdrag­anda falls íslensku við­skipta­bank­anna þriggja í októ­ber 2008. Af gögnum máls­ins verður ekki ráðið að fréttaum­fjöllun stefndu hafi breyst að þessu leyti eftir að lög­bannið féll niður. Hefur hún eftir sem áður einkum beinst að við­skiptaum­svifum þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra og aðilum tengdum honum í aðdrag­anda og kjöl­far falls bank­anna haustið 2008 með sömu áherslum og verið hafa frá upp­hafi umfjöll­unar stefndu.“

Jafn­framt segir í dómnum að líta verði svo á að umfjöllun stefndu um við­skipti þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra sé liður í því upp­gjöri og eigi sem slík erindi við almenn­ing. Í yfir­lýs­ing­unni fjöl­miðl­anna tveggja segir að eftir sem stendur var brotið gegn upp­lýs­inga­rétti almenn­ings og þar með vegið að rétt­inum til frjálsra kosn­inga. „Aðstand­endur Stund­ar­innar og Reykja­vik Media von­ast til þess að þessi dómur, og þeir sem hann stað­festir, standi sem bauta­steinn til fram­tíðar með varð­stöðu um upp­lýs­inga­rétt almenn­ings og frelsi fjöl­miðla.“

Verulegur aðstöðumunur

Enn fremur segir í yfir­lýs­ing­unni að aðstöðu­mun­ur­inn hafi verið veru­legur en þrotabú Glitnis lagði mikil dóms­máls­ins gegn fjöl­miðl­unum tveimur. „Hann birt­ist í því að aðeins laun for­stjóra Glitnis HoldCo ein og sér eru hærri en sam­an­lögð velta Stund­ar­innar og Reykja­vik Media, sam­kvæmt nýj­ustu aðgengi­legu tölum. Ljóst er að stuðn­ingur almenn­ings skipti sköpum í mál­inu og málsvörn­inni. “

Þá segir að með laga­tækni­legum flækjum hafi þrota­bú­inu tek­ist að tefja málið og reka það í gegnum öll dóm­stig á 522 dögum með til­heyr­andi skaða fyrir blaða­mennsku og rétt almenn­ings til upp­lýs­inga. En sam­kvæmt yfir­lýs­ing­unni nægir dæmdur mál­kostn­aður ekki til þess að tryggja þá nauð­syn­legu vörn sem þurfti til að forða ólög­mætu lög­banni á sjálf­sagða og mik­il­væga sam­fé­lags­um­ræðu í þágu almanna­hags­muna.

Jafn­framt hafi þrotabú Glitnis reynt hvað eftir að annað að fá að taka skýrslu af blaða­mönnum um heim­ild­ar­menn en á öllum dóm­stigum hafi því verið hafnað. Samkvæmt yfir­lýs­ing­unni er í dóm Hæsta­réttar skýrt kveðið á um vernd heim­ild­ar­manna og það með mjög afger­andi hætti. Fjöl­miðl­arnir tveir hvetja því fólk sem hefur undir hönd­unum mik­il­vægar upp­lýs­ingar sem varði almenn­ing að leita til þeirra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár