Ólafur Ragnar hefur ekki ákveðið hvort hann bjóði sig aftur fram 2016

Ólafur Ragnar Grímsson, for­seti Íslands, segir að hann líti svo á að meiri­hluti þjóð­ar­innar vilji að mál­skots­réttur for­seta haldi sér. Sagan hafi sýnt að böl­sýn­is­spár þeirra sem harð­ast börð­ust gegn því að for­set­inn gæti sett lög í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu hafi alls ekki reynst á rökum reistar. Þá hefur hann ekki ákveðið hvort hann ætli að bjóða sig fram til emb­ættis for­seta aftur á næsta ári, en að hann hafi bæði fengið áskor­anir um að halda áfram og hætta. Ólafur Ragnar verður búinn að vera for­seti Íslands í 20 ár þegar kosið verður til emb­ætt­is­ins á næsta ári.

Þetta kemur fram í við­tali Sölva Tryggva­sonar við Ólaf Ragnar í þætt­inum Fólk og frum­kvæði sem sýndur verður á sjón­varps­stöð­inni Hring­braut í kvöld.

https://www.youtube.com/watch?v=EPBc9oMn-zo

Í við­tali við sjón­varps­þátt­inn Eyjuna í nóv­em­ber 2014 sagði Ólafur Ragnar að hefð væri fyrir því að for­setar lands­ins til­kynni hvort þeir ætli að hætta eður ei í nýársávarpi eða við setn­ingu þings. Í þætti Sölva segir Ólafur Ragnar að hann muni til­kynna um fram­boð sitt í nýársávarpi sínu um kom­andi ára­mót.

Þar tjáir Ólafur Ragnar sig einnig um fjar­veru sína úr for­seta­af­mæli Vigdísar Finn­boga­dóttur fyrr í sumar. Hann segir að við­burð­ur­inn hafi ekki gert ráð fyrir honum. Verið hefði að heiðra Vigdísi og hann vildi ekki taka athygli frá henni. Þess vegna hafi gagn­rýnin sem sett hafi verið fram verið sér­kenni­leg.

https://www.youtube.com/watch?t=16&v=J9-JmDqgoRM

Ólafur Ragnar ræðir líka mis­skipt­ingu í við­tal­inu og segir að í litlu sam­fé­lagi eins og því íslenska finni fólk alltaf meira fyrir henni en ann­ars staðar. Alltaf sé hægt að gera betur í að skipta gæðum jafnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár