Allir sýknaðir í Aurum-málinu

Lands­réttur sýkn­aði Jón Ásgeir Jóhann­es­son, Lárus Welding og Magnús Arnar Arn­gríms­son í Aurum-mál­inu svo­kall­aða í dag.

Lárus Welding var forstjóri Glitnis fyrir hrun. Hann var einn þeirra sem var ákærður í Aurum-málinu.
Lárus Welding var for­stjóri Glitnis fyrir hrun. Hann var einn þeirra sem var ákærður í Aurum-mál­inu. Mynd: RÚV/Skjáskot.

Jón Ásgeir Jóhann­es­son, fyrr­ver­andi aðal­eig­andi Glitnis, Lárus Welding, fyrr­ver­andi for­stjóri bank­ans og Magnús Arnar Arn­gríms­son, sem fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tækja­sviðs hans, voru allir sýkn­aðir í Lands­rétti í dag í svoköll­uðu Aurum-máli.

[links]Hér­aðs­dómur Reykja­víkur hafði dæmt Lárus og Magnús seka í nóv­em­ber 2016 en sýknað Jón Ásgeir.

Hægt er að lesa dóm Lands­réttar í heild sinni hér.

Málið snýst um sex millj­­­arða króna lán­veit­ingu til félags­­­ins FS38 í júlí 2008. Lánið var veitt til að fjár­­­­­magna kaup FS38, eign­­­ar­­­laust félag í eigu Pálma Har­alds­­­son­­­ar, á 25,7 pró­­­sent hlut Fons hf., líka í eigu Pálma, í Aurum Hold­ing Limited.

[adspot]Hluti láns­ins, einn millj­­­arður króna, var ráð­stafað inn á per­­­són­u­­­legan banka­­­reikn­ing Jóns Ásgeirs. Hann nýtti þann millj­­­arð síðan í að borga meðal ann­­­ars 705 millj­­­óna króna yfir­­­­­drátt­­­ar­heim­ild sína hjá Glitni. Hér­aðs­sak­sókn­ari, áður sér­­­stakur sak­­­sókn­­­ari, vildi meina að Jón Ásgeir hafi þannig fengið hlut í ávinn­ingi af brot­inu og notið hagn­að­­­ar­ins.

Lárus og Magnús Arnar voru á­kærðir fyrir um­boðs­svik vegna lán­veit­ing­ar­innar til FS38 en Jón Ás­geir var á­kærður fyrir hlut­deild í meintum um­boðs­svikum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár