Bangsafélagið styrkir Trans Ísland –„Sýnir hvað hinsegin samfélagið stendur þétt saman“
Bangsafélagið styrkti á dögunum Trans Ísland um ágóðann af bangsahátíðinni Reykjavík Bear. Formaður Trans Ísland segir þetta sýna samhug innan hinsegin samfélagsins. Áður hafði félagið fengið styrk vegna ágóða af leikjapartíi á vegum BDSM-senunnar.