Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Við þurfum að tala miklu meira um Grinda­vík

Jarð­hrær­ingar á Reykja­nesi hafa sett til­veru Grind­vík­inga úr skorðum og fyllt þá óör­yggi sem þjóðin verður að standa saman um að leysa úr. Áhrifin á önnur svið sam­fé­lags­ins eru líka gríð­ar­leg og þeirra mun gæta langt inn í fram­tíð­ina. Þann veru­leika þarf að ræða opin­skátt og hrein­skilið. Í kjöl­farið er hægt að móta nýjan leið­ar­vísi.
Leiðari

Alma Mjöll Ólafsdóttir

Að takast á við heim­inn

En hvaða erindi á skáldsagan í dag? Í heimi þar sem fólk á sífellt erf­ið­ara með að þekkja í sundur skáld­skap og sann­leika, í heimi þar sem fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, Boris Johnson, var rek­inn af The Times frétta­miðl­inum fyrir að skálda kvót en náði samt að verða for­sæt­is­ráð­herra. Í heimi þar sem hinir valda­miklu geta skil­greint hvað sé stríð og hvað sé friður, hverjir séu fórn­ar­lömb og hverjir séu ger­endur.
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Hættið að stjórna og byrjið að þjóna

Mörg sveit­ar­fé­lög á Íslandi geta ekki staðið undir því að veita grunn­þjón­ustu. Sum kjósa að velta henni yfir á stærri nágranna sína til að spara sér kostn­að­inn. Það myndi spara marga millj­arða króna á ári að fækka sveit­ar­fé­lögum á Íslandi veru­lega. Þeir fjár­munir gætu nýst í betri þjón­ustu og frek­ari upp­bygg­ingu inn­viða.

8 mín. lestur

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Við kunnum ekki að selja banka

Þrjár eft­ir­lits­stofn­anir hafa rann­sakað sölu á hlut rík­is­ins í Íslands­banka. Þær hafa allar kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að salan hafi verið fúsk og í mörgum til­vikum ekki í sam­ræmi við lög. Návígið á Íslandi virð­ist standa því fyrir þrifum að við getum fært eign­ar­hald rík­is­banka til ann­arra. Freistni­vand­inn til að hafa rangt við, og maka krók­inn, er of mik­ill.

9 mín. lestur

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Snjó­hengjan er byrjuð að bráðna yfir heim­ilin

Fast­eigna­bólan er sprungin og verð á íbúðum er nú að lækka að raun­virði. Á sama tíma þurfa þús­undir heim­ila ann­að­hvort að færa sig yfir í verð­tryggð lán í hárri verð­bólgu eða takast á við tvö­földun á greiðslu­byrði íbúða­lána sinna. Ann­að­hvort verður það fólk að sætta sig við að eigið fé þess muni étast hratt upp eða að eiga ekki fyrir næstu mán­aða­mótum.

Mest lesið undanfarið ár