Leiðari

Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir

Ísland fyrir Íslend­inga

Á sama tíma og útsend­ingu frá Söngvakeppn­inni var að ljúka var gerð árás á fjög­urra hæða hús á Gaza með skelfi­legum afleið­ingum. Hér á landi var palest­ínskur söngv­ari í Söngvakeppn­inni hæddur og lít­ils­virtur fyrir þátt­tök­una. Hvað varð eig­in­lega til þess að virðu­legur eldri maður í Hafn­ar­firði vill senda „helv. Mussann“ heim til Gaza: „Það vill hann eng­inn hér!“
12:56
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Velkomin í hægri popúl­isma keyrðan áfram af útlend­inga­andúð

Það hefur tekið tíma fyrir popúl­is­mann, sem keyrður er áfram af óskil­greindri for­tíð­ar­þrá, gagn­rýni á gild­andi valda­kerfi og andúð á útlend­ingum, sem tröll­riðið hefur Evrópu, að festa rætur hér. Nú virð­ist hann þó kirfi­lega kom­inn inn í meg­in­straum íslenskra stjórn­mála. Munurinn er sá að flokk­ur­inn sem er að inn­leiða hann er helsti valda­flokkur Íslands, og með því er hann fyrst og síð­ast að gagn­rýna eigin verk.

10 mín. lestur

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Að tapa sam­fé­lagi en vera settur á bið

Grind­vík­ingar standa frammi fyrir nokkrum teg­undum martraða. Grund­völlur sam­fé­lags­gerðar þeirra hefur tap­ast, margir hafa miklar fjár­hags­á­hyggjur og fram­tíðin er í gríð­ar­legri óvissu. Sú staða sem er uppi í dag á ekki að vera óvænt. Öll við­vör­un­ar­ljós fóru að blikka fyrir mörgum árum. Stjórn­völd hafa hins vegar neitað að taka stöð­una jafn­al­var­lega og þörf var á. Þess vegna eru þau nú upp við vegg, nývöknuð af vondum draumi og ráða­laus gagn­vart sjálf­sögðum kröfum Grind­vík­inga, og þorra almenn­ings í land­inu, um áræðnar og fum­lausar aðgerðir.

8 mín. lestur

Leiðari

Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir

Loka­á­kall bar­áttu­konu: „Þessa bar­áttu þarf að nálg­ast sem alvöru stríð“

„Nú þarf að ná saman stórum hópi kvenna,“ sagði Guðrún Jóns­dóttir skömmu áður en hún lést. Alla sína tíð barð­ist hún ötul­lega fyrir bættum hag kvenna og barna í íslensku sam­fé­lag. Hún biðl­aði til kvenna að halda bar­átt­unni áfram og gef­ast ekki upp, „að konur myndu ekki linna látum fyrr en búið væri að upp­ræta vand­ann“.

12 mín. lestur

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Er hægt að gera þjóð­ar­sátt án þess að sætta þjóð?

Íslenska ríkið þarf að finna tugi millj­arða króna á ári og breyta kerfum sem hug­mynda­fræði­leg and­staða er við að breyta innan rík­is­stjórnar til að mæta kröfum vinnu­mark­að­ar­ins. Jafnvel þótt það tak­ist þá verður engin þjóð­ar­sátt í íslensku sam­fé­lagi. Eftir stendur opið svöðu­sár sem leiðir af sér djúp­stæða til­finn­ingu meðal almenn­ings um órétt­læti. Enginn sýni­legur vilji er til að græða það sár.
Leiðari

Alma Mjöll Ólafsdóttir

Sam­an­burður er okkar leið til að þekkja heim­inn

Kemur ekki vor að liðnum vetri? Vakna ei nýjar rósir sumar hvert? spyr lagið Þrek og tár. Nú er jóla­bóka­flóðið senn á enda, árið líka og jólin á næsta leiti. Og ég, sem hef fengið að rit­stýra sex tölu­blöðum af bóka­blaði Heim­ild­ar­innar þennan vet­ur­inn, veit að vorið kemur og er þess full­viss að næsta sumar vakna nýjar rósir og að...
Leiðari

Alma Mjöll Ólafsdóttir

Heim­ur­inn allur undir

Næst­síð­asta bóka­blað Heim­ild­ar­innar er komið út í heim­inn, og allur heim­ur­inn er undir. Blaðið er til­einkað fræði­rit­inu og for­síð­una prýðir Auður Aðal­steins­dóttir, fræða­kona og umhverf­is­hug­vís­inda­kona, sem segir í sam­tali við Heim­ild­ina að heim­ur­inn standi and­spænis stærstu ógn sam­tím­ans og for­tíðar: Ham­fara­hlýnun. Hún segir ham­farir geta bæði þjónað hlut­verki speg­ils, tæki­færi til þess að kanna mann­legt eðli og hvernig það tekst...
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Hitapulsu­sam­fé­lag rekið af rík­is­stjórn sem þjóðin er löngu hætt að treysta

Kannanir sýna að stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina er svip­aður og við fyrri stjórnir sem voru að falla. Fleiri van­treysta öllum ráð­herrum en treysta þeim. Helm­ingur heim­ila nær endum saman með naum­indum eða alls ekki. Stór úrlausn­ar­mál eru óleyst. Rann­sóknir sýna að þeir sem eiga meiri pen­ing, eða telja sig merki­legri pappír en aðrir, eru ólík­legri til að sjá ójöfnuð sem ríkir í sam­fé­lag­inu. Þeir sjá bara veisl­una.

Mest lesið undanfarið ár