Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Komið á óvart í stað þess að valda okkur von­brigðum

Allt stefnir í að næsti for­seti lands­ins verði kos­inn með um fjórð­ungi atkvæða. Það er svipað hlut­fall og stærsti flokk­ur­inn í síð­ustu þing­kosn­ingum fékk, ekki langt frá þeim fjölda sem treystir Alþingi og rík­is­stjórn­inni og mun fleiri en treysta nýjasta for­sæt­is­ráð­herra þjóð­ar­innar. Ísland er sundruð þjóð sem hefur glatað trausti sínu á ráða­menn. Það er þeirra að vinna það aftur.

10 mín. lestur

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Er það að gefa að minnsta kosti hálfan millj­arð góð með­ferð opin­bers fjár?

Fyrr­ver­andi rík­is­lög­reglu­stjóri með sterk flokkspóli­tísk tengsl tók ákvörðun um að gera vel við nána sam­starfs­menn sína rétt áður en þeir fóru á eft­ir­laun og rétt áður en hann þurfti að semja um starfs­lok. Kostn­að­ur­inn við þessa ákvörðun er að minnsta kosti rúm­lega 500 millj­ónir króna og skatt­greið­endur bera hann. Tveir núver­andi ráð­herrar voru kol­rang­stæðir í yfir­lýs­ingum sínum um málið að mati Hæsta­réttar og núver­andi dóms­mála­ráð­herra getur ekki fengið sig til að biðja um rann­sókn á því.

9 mín. lestur

12:05
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Dýrasta kosn­inga­lof­orð Íslands­sög­unnar

Árið 2003 lof­aði Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn 90 pró­sent lánum til hús­næð­is­kaupa svo börn gætu flutt úr for­eldra­húsum. Rík­is­á­byrgð var á fjár­mögnun lán­anna. Nú, tveimur ára­tugum síðar, stendur rík­is­sjóður frammi fyrir því að vera að tapa að nokkrum millj­örðum króna á mán­uði vegna þess­ara lof­orða og það hefur aldrei verið erf­ið­ara fyrir ungt fólk að kom­ast í eigið hús­næði.

9 mín. lestur

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Elsku ráð­herrar, hættið að gefa Ísland

Nú stendur til að gefa norskum lax­eld­is­fyr­ir­tækjum íslenska firði til eignar. Þegar er búið að gefa örfáum útgerð­ar­fjöl­skyldum hund­ruð millj­arða króna hið minnsta af fé sem ætti að hafa farið í sam­fé­lags­lega upp­bygg­ingu. Vilji er til þess að gefa einka­að­ilum vind­orku en eng­inn vilji til þess að rukka ferða­þjón­ustu fyrir nýt­ingu á almanna­gæðum. Hvað gengur íslenskum ráða­mönnum eig­in­lega til?

10 mín. lestur

15:37
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Handbók um leiðir til að þykj­ast sið­legur ráð­herra

Á Íslandi er við lýði reglu­verk sem á að koma í veg fyrir spill­ingu ráð­herra og auka traust á stjórn­sýslu. Nýlega var gefin út hand­bók með útskýr­ingum á regl­unum með raun­hæfum dæmum. Raun­veru­leik­inn sýnir hins vegar að ráð­herrar láta þetta ekki hafa áhrif á hegðun sína. Regl­urnar gilda bara þegar það reynir ekki á þær.

11 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár