Leiðari

Jón Trausti Reynisson

Vanda­málið með for­sæt­is­ráð­herr­ann okkar

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra missir ekki svefn yfir því að yfir­gnæf­andi meiri­hluti lands­manna styðji ekki rík­is­stjórn hans. Hann biður almenn­ing að gæta hófs, en vill sjálfur ekki ræða að tak­marka óhóf­legar launa­hækk­anir til þröngs hóps í kringum hann. Meiri­hluti lands­manna telur landið vera á rangri braut. Bjarni hefur und­an­farna mán­uði sýnt ein­kenni sem leið­togi, en það eru til öðru­vísi leið­togar.
Leiðari

Jón Trausti Reynisson

Svikna kyn­slóðin í landi jakka­fatanna

Íslenski draum­ur­inn er í upp­námi. Í ein­fald­aðri mynd sér ungt fólk nú fram á að flytja á jað­ar­svæði, borga leigu til GAMMA og greiða veg­tolla á leið í og úr þjón­ustu­störfum fyrir ferða­menn til að fjár­magna vega­kerfi fyrir ferða­menn. Á þess­ari öld hafa ráð­stöf­un­ar­tekjur elsta ald­urs­hóps­ins auk­ist rúm­lega fimmt­án­falt meira en ráð­stöf­un­ar­tekjur fólks undir þrí­tugu og eignir safn­ast saman hjá eldri kyn­slóð­inni.
Leiðari

Jón Trausti Reynisson

Eigum við að kaupa þetta?

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn gerir verð­trygg­ing­una verri, Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn berst gegn mark­aðs­lausnum, for­mað­ur­inn lækk­aði skatta á stór­iðju en seg­ist vilja láta stór­fyr­ir­tækin borga skatt, en samt ekki það stærsta sem borgar ekki skatt, þing­menn sem hunsa nið­ur­stöður einnar þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu og sviku lof­orð um aðra vilja þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu ... er óhætt að kaupa?

Mest lesið undanfarið ár