Endalok NRA?

The National Rifle Association, Samtök banda­rískra byssu­eig­enda, standa frammi fyrir alvar­leg­ustu til­vist­ar­krísu í nærri 150 ára sögu sinni. Það er alls­endis óvíst að sam­tökin lifi af fjár­hags­vand­ræði, spill­ing­ar­mál og inn­an­hús­sá­tök sem hafa skekið sam­tökin síð­asta árið.

Endalok NRA?
Charles Heston End­ur­vakti slag­orðið: From my cold, dead hands, á lands­fundi NRA, ári eftir skotárás í Columbine-mennta­skól­anum þar sem tólf nem­endur voru myrtir og einn kenn­ari.

Enginn þrýsti­hópur í Banda­ríkj­unum er jafn öfl­ugur og sam­tök byssu­eig­enda, The National Rifle Association, NRA. Samtökin og fimm milljón með­limir þeirra hafa gríð­ar­leg áhrif í kosn­ingum, og það er fyrst og fremst þeim að þakka að allar til­raunir til hertrar byssu­lög­gjafar í Banda­ríkj­unum hafa verið barðar niður. 

Þessi hættu­leg­ustu sam­tök Banda­ríkj­anna virð­ast hins vegar vera að slig­ast undan gríð­ar­legum skuldum, inn­an­hús­sá­taka og spill­ingar, auk þess sem opin­berar rann­sóknir gætu leitt til þess að starf­semi þeirra yrði stöðvuð. NRA gæti liðið undir lok.

Opinberar rannsóknir

Föstu­dag­inn 19. júlí stefndi sak­sókn­ari The District of Columbia NRA til að afhenda öll gögn tengd fjár­reiðum sam­tak­anna. 

Þetta er önnur stefnan sem rík­is­sak­sókn­arar hafa birt sam­tök­unum. Í vor hóf sak­sókn­ari New York-ríkis rann­sókn á sam­tök­unum. Samtökin eru grunuð um að hafa brotið lög um starf­semi félaga­sam­taka sem njóta skatt­frelsis. Ef sam­tökin eru fundin sek gætu hvort heldur sak­sókn­ara­emb­ætti New York eða …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár