Nú snjóar plasti

Plast­agnir finn­ast alls staðar. Ný rann­sókn greindi plast­agnir í snjó­komu milli Græn­lands og Sval­barða.

Heimskautarefur
Heim­skauta­refur Íslenski fjalla­ref­ur­inn hefur aðlag­ast líf­inu í snjónum. Mynd: Shutterstock

Upp­söfnun plasts í heim­inum hefur varla farið fram hjá nokkru manns­barni. Vegna ofnotk­unar og mis­notk­unar mann­fólks­ins á þessu undra­efni sem plastið er hefur nátt­úran ekki undan að losa sig við plast­ruslið sem fellur til frá okkur.

Plast í sjónum

Fjöl­margar rann­sóknir hafa sýnt fram á til­vist plasts í sjónum. Svo útbreitt er vanda­málið að örplast finnst jafn­vel í dýpstu haf­svæðum heims­ins, svoköll­uðum djúp­álum. Rann­sóknir á áhrifum plast­s­ins í sjónum benda til þess að sjáv­ar­líf­verur inn­byrgði heil­mikið magn af plast­ögnum í mis­gripum fyrir fæðu.

Át lít­illa líf­vera á plasti hefur að sjálf­sögðu áhrif á okkur mann­fólkið líka, þó okkur þyki oft gott að hugsa um vanda­málin sem eitt­hvað sem hendir ein­ungis aðra. Þegar dýr neð­ar­lega í fæðu­keðj­unni borða plast, sér í lagi agnir sem eru nægi­lega litlar til að fara inn­fyrir melt­ing­ar­veg­inn, á plastið sér greiða leið ofar í fæðu­keðj­una.

Hvaða áhrif það hefur á líf­verur að borða plast er ekki að fullu skil­greint en ljóst er að hversu lítið magn sem það er þá hlýtur það að telj­ast óæski­legt. Í besta falli getur plastát haft áhrif á melt­ingu líf­ver­unnar það skiptið.

Niðurbrot plasts

Snjór í Reykja­víkPlast­agnir leyn­ast í snjó­korn­unum.

Plast og plast­agnir í sjó hafa mikið verið rann­sak­aðar, en hvar ann­ars staðar getur plastið leynst? Plast sem fellur til í nátt­úr­unni, þ.e. endar í umhverf­inu hvort sem er á landi eða í sjó brotnar til­tölu­lega hratt niður í minni ein­ingar.

Þó nið­ur­brot plasts taki langan tíma eru veður, vindar, sjáv­ar­föll og ekki síst sól­ar­ljós áhrifa­rík leið til að búa til litlar plast­agnir, sem eru svo ein­stak­lega lengi að brotna niður. Þessar plast­agnir, sem oft­ast er talað um sem örplast, sjást illa með berum augum eða grein­ast illa sem plast­agnir, sér í lagi í sjó.

Plast­agnir telj­ast sem örplast þegar þær eru 5 mm á þver­mál eða minni. Það þýðir að agn­irnar eru ekki bara ill­sjá­an­legar, margar þeirra eru líka mjög léttar. Þyngd þeirra er kannski ekki ósvipuð vigt gróa sem plöntur búa til í þeim til­gangi að fjölga sér. 

Rann­sóknir benda til þess að gró geta ferð­ast ansi langa leið frá heim­kynnum sínum ef veður og vindar leyfa. Sem dæmi má nefna að gró sem mynd­ast í lofts­lagi við mið­baug hafa fund­ist í and­rúms­lofti við heims­skautin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár