Ekkert verður til úr engu

Neyt­enda­stofa Noregs ásak­aði nýlega fata­fram­leið­and­ann H&M Group um að brjóta lög með aug­lýs­ingum um sjálf­bæra vöru, en með til­komu auk­ins fram­boðs hrað­tísku­búða á Íslandi er mik­il­vægt að neyt­endur kaupi flíkur með upp­lýstum en gagn­rýnum huga. Stundin fer yfir stöðu fata­fram­leiðslu, áhrif hennar á jörð­ina og til­tekur ráð til neyt­enda sem vilja leggja sitt af mörkum í að minnka álag á vist­kerfi jarðar.

Ekkert verður til úr engu

Í byrjun júní var tískuris­inn H&M kraf­inn um að breyta mark­aðs­her­ferð sinni þar sem neyt­enda­stofa Noregs taldi aug­lýs­ingar fyr­ir­tæk­is­ins ólög­legar og „blekkj­andi“ gagn­vart við­skipta­vinum sínum, sam­kvæmt frétta­veit­unni NRK. Fyr­ir­tækið hefur und­an­farin ár aug­lýst lín­una Conscious sem „græna“ og „sjálf­bæra“ þar sem hluti efna sem notuð eru í flíkur lín­unnar er end­urunn­inn. Á sama tíma er fram­leiðsla fyr­ir­tæk­is­ins veru­legur hluti af einum mest meng­andi iðn­aði í heimi og einnig hefur komið í ljós að aðstæður starfs­manna í verk­smiðjum þess hafi verið óvið­un­andi. Fjórar versl­anir í eigu H&M Group eru nú reknar hér­lendis en fyrir utan versl­un­ina H&M eru það versl­an­irnar COS, Weekday og Monki. 

Afleiðingar hraðtísku

Hugtakið ‘hrað­tíska’, eða ‘fast fas­hion’, er skil­greint af Merriam Webster orða­bók­inni sem „nálgun að hönnun, fram­leiðslu og mark­aðs­setn­ingu fatn­aðar sem leggur áherslu á ódýrar flíkur og að koma þeim fljótar til við­skipta­vin­ar­ins“. Pressan …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

4
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár