Ljúfsárir kveðjutónleikar, fjölskrúðug blómaverk og Mozart

Tón­leikar, sýn­ingar og við­burðir 24. maí–6. júní.

Ljúfsárir kveðjutónleikar, fjölskrúðug blómaverk og Mozart

Þetta og svo ótal margt fleira er á döf­inni næstu tvær vik­urnar.

Kveðjutónleikar Bagdad Brothers

Hvar? Húrra
Hvenær? 24. maí kl. 20.00
Aðgangs­eyrir: Frjáls fram­lög

Indírokksveitin Bagdad Brothers hefur með nostal­gískum tónum komið sér fyrir í hjörtum ansi margra ungra sálna. Tón­listin er ein­stak­lega við­kunn­an­leg og ljúf og flutn­ing­ur­inn ein­lægur og aðgengi­legur, en sveitin heldur nú út á mán­að­ar­langan túr í Banda­ríkj­unum og því verða þetta síð­ustu tón­leikar þeirra á næst­unni. Þeim til stuðn­ings spila þrjár aðrar sveitir á þessum tón­leikum; ungu rokk­ar­arnir í Gróu sem komust á úrslita­kvöld Mús­íktil­rauna 2017 og hafa haldið teit­inu gang­andi síðan þá, skegg­prúði þjóð­laga­töfra­mað­ur­inn Teitur Magn­ús­son heldur messur til­eink­aðar draumum og góða líf­inu á hverjum tón­leikum, femíníska pönk­sveitin Hórmónar hefur fangað kvíða og ótta þús­ald­ar­kyn­slóð­ar­innar og umbreytt henni í rétt­mæta reiði og upp­reisn gegn ráð­andi öflum.

ADHD – útgáfutónleikar

Hvar? Harpa
Hvenær? 24. maí kl. 21.00
Aðgangs­eyrir: 4.990 kr.

Djass­hljóm­sveitin ADHD gaf á dög­unum út sína sjö­undu plötu, ADHD 7, og efnir því til útgáfu­tón­leika. Platan kom út í mars og ættu aðdá­endur því að vera vel kunnir efni hennar. Hljóm­sveitin var stofnuð í kringum blús­há­tíð Hafnar á Horna­firði fyrir tólf árum og hefur verið starf­rækt síðan þá.

Raflost 2019

Hvar? Mengi
Hvenær? 24.–25. maí
Aðgangs­eyrir: 2.000 kr. 

Raflost er raf­lista- og miðla­lista­há­tið sem færir saman lista­menn, vís­inda­menn og hakk­ara – erlenda og inn­lenda – til að kanna tækni í nútíma menn­ingu. Raflost hafnar því venju­lega, helgar sig jað­ar­listum og veg­samar þá sem ganga lengra. Fram koma meðal ann­ars Jeffrey Scudder, Angela Rawlings, Kaðlín Sara Ólafs­dóttir, Jóhann Eiríks­son og Hall­varður Ásgeirs­son. 

Hverra manna ertu?

Hvar? Lista­safn Íslands
Hvenær? 24. maí til 29. sept­em­ber
Aðgangs­eyrir: 2.000 kr.

Hulda Hákon hefur markað sér algjöra sér­stöðu í íslenskri lista­sögu bæði í efn­isvali og mynd­máli, en þessi sýn­ing er yfir­lits­sýn­ing sem spannar næstum fjóra ára­tugi. Flest verka hennar eru lág­myndir og eru elstu verkin gerð úr spýtna­braki. Lág­mynd­irnar sem hún smíð­aði þóttu frum­leg við­bót við flóru Nýja mál­verks­ins og óvænt and­svar við hið ríkj­andi taum­leysi sem ein­kenndi list­sköpun ungs fólks á fyrri hluta níunda ára­tugar síð­ustu aldar.

Blómsturheimar

Hvar? Kjar­vals­staðir
Hvenær? 25. maí til 6. októ­ber
Aðgangs­eyrir: 1.800 kr.

Sölvi Helgason (1820–1895), eða Sólon Íslandus eins og hann kall­aði sig, er tví­mæla­laust einn af áhuga­verð­ustu alþýðu­lista­mönnum sem þjóðin hefur alið, heill­andi utan­garðs­maður í lífs­hlaupi sínu og list­sköpun. Fjöl­skrúð­ugt blóma­flúr er aðal­ein­kenni mynda Sölva, en á sýn­ing­unni Blómst­ur­heimar verða sýnd 16 áður óþekkt verk eftir Sölva Helgason sem varð­veist hafa í Danmörku.

Get ekki teiknað bláklukku

Hvar? Kjar­vals­staðir
Hvenær? 25. maí til 5. jan­úar
Aðgangs­eyrir: 1.800 kr.

Lista­mað­ur­inn Eggert Pét­urs­son (f. 1956) hefur sett saman sýn­ingu á blóma­verkum Jóhann­esar S. Kjarvals. Eggert segir um blóma­verk Kjarvals að þau séu yfir­grips­meiri heldur en verk hans sjálfs, að Kjarval fari út um víðan völl. Hann ein­skorði sig ekki við grasa­fræði heldur máli og teikni þau blóm sem eru í kringum hann, hvort sem það eru skraut­blóm, potta­plöntur eða villt blóm, en ekki síst máli hann flóru hug­ans.

Sígildir sunnudagar – Brahms: Opus 120

Hvar? Harpa
Hvenær? 26. maí kl. 16.00
Aðgangs­eyrir: 3.500 kr.

Arn­gunnur Árna­dóttir og Ben Kim leika tvær sónötur Johann­esar Brahms fyrir klar­ínett og píanó. Sónöt­urnar eru með helstu perlum klass­ískrar kamm­er­tón­listar auk þess að vera horn­steinn í höf­und­ar­verki Brahms, en þær voru með síð­ustu tón­verk­unum sem hann samdi. Auk Brahms leika Ben og Arn­gunnur „Vier Stücke Op. 5“ eftir Alban Berg, þann lagræn­asta úr tón­skálda­hópi Seinni Vín­ar­skól­ans.

1001 Nótt Dansveisla

Hvar? Tjarn­ar­bíó
Hvenær? 26. maí kl. 16.00
Aðgangs­eyrir: 2.500 kr.

Í þess­ari dans­veislu, sem er upp­skeru­há­tíð maga­dans­meyja, koma fram fjöl­breyttir hópar sem allir dansa maga­dans um allt landið, en þar verður öllu tjaldað til. Einnig verða fjöl­mörg og skemmti­leg gesta­at­riði úr öðrum dans­stílum, til dæmis bollywood, salsa, burlesque, hula og jalla­bina, sem koma fram og auka enn á flór­una. Búast má við lit­ríkri gleði­sprengju á svið­inu.

Prjónabíó - Stella í orlofi

Hvar? Bíó Paradís
Hvenær? 26. maí kl. 20.00
Aðgangs­eyrir: 1.800 kr.

Hin ógleym­an­lega Stella í orlofi fjallar um Stellu og bar­áttu hennar við geð­illa karla, tryllt börn, alkó­hólista, flug­menn, Lions­klúbb­inn Kidda, danskar drósir og lax­eldi. Myndin er nú komin á staf­rænt form, rúm­lega þrjá­tíu árum eftir frum­sýn­ingu. Húsið verður opnað klukkan 19.00 fyrir þá sem vilja prjóna eða hekla sig í gír­inn, en einnig verður hægt að munda prjón­ana og heklu­nálar í salnum á meðan sýn­ing­unni stendur.

Tilvist mannsins: Skissa að íslenskri samtímalistasögu [III]

Hvar? Hafn­ar­húsið
Hvenær? 29. maí til 15. sept­em­ber
Aðgangs­eyrir: 1.800 kr.

Á sýn­ing­unni er úrval verka sem sýna ólíkar leiðir lista­manna að því að kanna hvað felst í því að vera mann­legur. Í verk­unum er staldrað við lík­am­lega og sál­fræði­lega eig­in­leika, við­burði og aðstæður sem segja má að séu grund­vall­ar­þættir til­ver­unnar. Á sýn­ing­unni má meðal ann­ars sjá verk eftir Önnu Hallin, Ástu Ólafs­dóttur, Björk Guðna­dóttur, Gjörn­inga­klúbb­inn, Helga Þorgils Frið­jóns­son, Huldu Vil­hjálms­dóttur, Krist­leif Björns­son og fleiri.

Rið

Hvar? Hafn­ar­húsið
Hvenær? 29. maí til 15. sept­em­ber
Aðgangs­eyrir: 1.800 kr.

Á fjög­urra ára­tuga ferli hefur Finnbogi Pét­urs­son unnið með skynjun og lagt áherslu á mörk sjónar og heyrnar. Hann hefur þróað ótal leiðir til þess að gera hljóð­bylgjur sýni­legar, dregið fram tíðni efnis og rýmis og unnið með eðl­is­fræði umhverf­is­ins. Á sýn­ing­unni Rið eru hljóð­bylgjur leiddar í stóra laug og gárur vatns­ins end­ur­kast­ast á veggi sal­ar­ins í alltum­lykj­andi inn­setn­ingu. 

The Rebecca & Lóa Show

Hvar? Tjarn­ar­bíó
Hvenær? 31. maí kl. 20.00
Aðgangs­eyrir: 2.900 kr.

Sviðs­lista­kon­urnar og grínist­arnir Rebecca Scott Lord og Lóa Björk Björns­dóttir eru að eigin sögn röngum megin við 25 ára, geta notað barna­miða í strætó, elska hnífa, stráka og að „vera psycho“. Þær hafa áður haldið uppi­stand saman en frum­flytja nýtt efni á þess­ari sýn­ingu. Uppi­standið hennar Rebeccu er á ensku en Lóu á íslensku.  

A Night at the Roxbury – Föstudagspartísýning!

Hvar? Bíó Paradís
Hvenær? 31. maí kl. 20.00
Aðgangs­eyrir: 1.600 kr.

Tveir aula­legir bræður, Steve og Doug Butabi, eiga sér þann draum heitastan að stofna sinn eigin skemmti­stað, þrátt fyrir að kom­ast ekki sjálfir inn á Roxbury-klúbb­inn sem er heit­asti stað­ur­inn í bænum. Ofur­fyr­ir­sætan og „gull­graf­ar­inn“ Vivica og vin­kona hennar, Cambi, reyna að svindla pen­inga út úr bræðr­unum, en það er til lít­ils þegar þær kom­ast að því að þeir eiga ekki bót fyrir bor­una á sér.

Kirkjulistahátíð 2019

Hvar? Hall­gríms­kirkja og Ásmund­ar­salur
Hvenær? 1.–10. júní
Aðgangs­eyrir: 16.000 kr.

Um 200 lista­menn munu koma fram á 20 við­burðum á tíu dögum á Kirkju­lista­há­tíð­inni. Nýsköpun í tón­list og mynd­list verður stór þáttur hátíð­ar­innar, en auk tón­leika og mynd­list­ar­sýn­inga verða líka lista­manna­spjöll og messur. Hátíðin verður sett 1. júní klukkan 15.00 þar sem erlendur org­el­virtúós leikur verk eftir J.S. Bach og Duruflé.

Richard Goode leikur Mozart

Hvar? Harpa
Hvenær? 6. júní
Aðgangs­eyrir: frá 2.500 kr.

Richard Goode hefur um ára­tuga skeið verið í hópi fremstu tón­list­ar­manna Banda­ríkj­anna. Hann hefur hlotið Grammy-verð­launin fyrir hljóð­rit­anir sínar og nýverið skrif­aði tón­list­arrýnir New York Times að tón­leikar hans í Carnegie Hall hafi ein­kennst af „stór­brot­inni og djúpri túlkun“. Hér leikur Goode einn af síð­ustu píanó­konsertum Mozarts með Sin­fón­íu­hljóm­sveit Íslands, sam­inn árið 1786 þegar tón­skáldið stóð á hátindi fer­ils síns.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stundarskráin

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár