Skertur aðgangur að sýklalyfjum ógnar heilsu fólks um allan heim

Nið­ur­stöður nýrrar skýrslu sýna fram á að hindr­anir sem skerða aðgang almenn­ings að sýkla­lyfjum í lág- og milli­tekju­löndum eru mikil heilsu­far­sógn. Eins og staðan er í dag dregur skert aðgengi fleiri til dauða en sýkla­lyfja­ó­næmi.

Skertur aðgangur að sýklalyfjum ógnar heilsu fólks um allan heim
Konur í Úganda Í Úganda dregur skert aðgengi að sýkla­lyfjum fleira fólk til dauða en sýkla­lyfja­ó­næmi. Mynd: Shutterstock

Sýkla­lyfja­ó­næmi er vel þekkt vanda­mál sem orsakast meðal ann­ars af rangri notkun á sýkla­lyfjum. Heil­mikið hefur verið fjallað um sýkla­lyfja­ó­næmi á und­an­förnum árum og er það ekki að ástæðu­lausu.

Vegna sýkla­lyfja­ó­næmis reyn­ist nú erf­ið­ara að með­höndla sýk­ingar af völdum ákveð­inna bakt­ería. Sýkingar á borð við þvag­færa­sýk­ingar geta nú í stöku til­fellum jafn­vel leitt til dauða vegna þess að við­kom­andi bakt­ería er ónæm fyrir mest not­uðu sýkla­lyfj­unum á mark­að­inum. Minna hefur verið fjallað um aðra hættu tengda sýkla­lyfjum: Skertan aðgang að þeim.

Víða í heim­inum eiga ein­stak­lingar í lág- og milli­tekju­löndum erfitt með að nálg­ast sýkla­lyf þegar á þarf að halda. Metið er að ár hvert lát­ist 5,7 millj­ónir ein­stak­linga vegna skerts aðgengis og er því mikið í húfi. Flest dauðs­föllin þessu tengd eiga sér stað í lág- og milli­tekju­löndum.

Dregur fleiri til dauða en sýklalyfjaónæmi

Fyrr í mán­uð­inum birt­ist skýrsla sem unnin …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Þekking

Þekking

Alheim­ur­inn í nýju og skarpara ljósi

Nýjasta stór­virki mann­kyns­ins, James Webb geim­sjón­auk­inn, er ætlað að skoða myndun fyrstu stjarna og vetr­ar­brauta alheims­ins. Hvar og hvenær kvikn­aði fyrsta ljósið í alheim­inum? Hvernig verða stjörnur og sól­kerfi til? Hvernig mynd­uð­ust vetr­ar­braut­irnar? Hvaða eðlis- og efna­fræði­lega eig­in­leika þurfa plánetur og sól­kerfi að hafa til að geyma líf? Fyrstu myndir sjón­aukans eru komnar. „Þær voru enn skýr­ari, skarp­ari og glæsi­legri en ég átti von á,“ segir Sævar Helgi Bragason.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár