Sækja kennslu í vopnaburði vegna innflytjenda: „Fólk vill vera tilbúið“

Öryggis- og her­skól­inn European Security Academy Iceland heldur kynn­ing­ar­fund um nám­skeið í vopna­burði, örygg­is­gæslu og skyldum verk­efnum í Reykja­vík. Sumir þeirra sem sækja fund­inn vilja nýta sér nám­skeiðið til að verj­ast inn­flytj­endum sem koma til Íslands.

Sækja kennslu í vopnaburði vegna innflytjenda: „Fólk vill vera tilbúið“

European Security Academy Iceland heldur kynn­ing­ar­fund um nám­skeið í vopna­burði, örygg­is­gæslu og skyldum verk­efnum á Grand Hotel í Reykja­vík næst­kom­andi laug­ar­dag.

Ein­hverjir þeirra sem sækja fund­inn vilja nýta sér nám­skeiðið til að verj­ast straumi inn­flytj­enda sem hingað koma, sam­kvæmt full­yrð­ingum þeirra við Stundina. 

Stærsti herskóli Evrópu

Guð­mundur Þor­leifs­sonFormaður Íslensku þjóð­fylk­ing­ar­innar.

European Security Academy, eða ESA, er stærsti öryggis- og her­skóli í Evrópu. Á heima­síðu ESA kemur fram að her­skól­inn hefur þjálfað yfir fimm þús­und konur og karla frá sex­tíu og átta löndum, þar á meðal nokkra Íslend­inga. ESA býður upp á nám­skeið sem ætluð eru ein­stak­lingum sem koma á eigin vegum, starfs­mönnum örygg­is­fyr­ir­tækja og stjórn­völdum í ýmsum löndum. Á Facebook-síðu ESA kemur fram að nám­skeið þeirra krefj­ist ekki neinnar fyrri reynslu í vopna­burði eða örygg­is­gæslu.

Þeir sem hafa skráð sig á við­burð­inn á Facebook hafa mis­mun­andi ástæður til að sækja kynn­ing­ar­fund­inn. María Magn­ús­dóttir, stjórn­ar­með­limur Frels­is­flokks­ins, seg­ist sækja fund­inn í þeirri von að læra að verja sig ef til átaka kemur vegna straums inn­flytj­enda og flótta­manna til lands­ins.

Aðspurð hvernig Maríu hafi frétt af téðum fundi svarar hún að Guð­mundur Sig­ur­freyr Jónasson hafi sent henni skila­boð um hann. Á Facebook-síðu Sig­ur­freys kemur fram að hann hafi umsjón með Facebook-síðu sam­tak­anna Vakur, sem titla sig sam­tök um evr­ópska menn­ingu. Sig­ur­freyr til­heyrir einnig hópi úti­bús ESA á Íslandi, að því er kemur fram á Facebook-síðu hóps­ins. Sig­ur­freyr var einn af þremur fyrstu með­limum hóps­ins. Til ann­arra með­lima þess hóps má telja Guðmund Þor­leifs­son, for­mann Íslensku þjóð­fylk­ing­ar­innar og Helga Helgason vara­for­mann.

Helgi Helgason Vara­for­maður Íslensku þjóð­fylk­ing­ar­innar

Stundin hefur heim­ildir þess efnis að Sig­ur­freyr biðji fólk sem hyggst sækja kynn­ing­ar­fund­inn að svara ekki blaða­manni. Sömu­leiðis hefur Sig­ur­freyr gert það ljóst að blaða­manni verði vísað á dyr ætli hann sér að mæta á kynn­ing­ar­fund­inn.

Í skila­boðum frá ESA kom fram að DV hefði fengið einka­rétt á því að fjalla um kynn­ing­ar­fund­inn. Fund­ur­inn var kynntur í frétt á DV.is fyrir skemmstu. „Við lof­uðum DV einka­birt­ingu (exclusive) á umfjöllun umfjöllun um kynn­ing­ar­fund ESA, sem þeir hafa þegar birt,“ segir í svari European Security Academy til Stund­ar­innar.

Segist búa sig undir yfirtöku íslams

Aðspurð um hvað vakti áhuga Maríu á kynn­ing­ar­fund­inum talar hún um ástandið sem ríki að hennar mati í Evrópu.

Maríu finnst Evrópa illa farin af inn­flytj­endum og „póli­tískri yfir­töku íslams“ eins og hún orðar það, án þess að útskýra nánar hvað hún á við með því. „Ég horfi út í Evrópu og sé hvernig löndin eru illa farin,“ segir hún. 

María kallar leið­toga í Evrópu gungur og segir að almenn­ingur sé búinn að fá nóg. „Almenn­ingur í Evrópu er mjög þreyttur. Hann vill löndin sín til baka. Almenn­ingur vill halda sinni menn­ingu og sínu þjóð­ríki og sér­kennum þess og ein­kennum. En hnatt­væð­ing í dag er að vaða yfir allt og alla,“ segir María.

Að sögn Maríu á það sama við um Ísland. Hún telur íslensk stjórn­völd vera „gungur“ og telur sömu­leiðis að eina fólkið sem þori að tala á Íslandi séu litlir flokkar sem eru í þann mund að rísa upp. „Það er Frels­is­flokk­ur­inn, Íslenska þjóð­fylk­ingin og jú, og svo Mið­flokk­ur­inn,“ segir María.

Í byrjun jan­úar 2018 hafði inn­flytj­endum á Íslandi fjölgað um tvö pró­sent á einu ári, eða úr 10,6 pró­sentum í 12,6 pró­sent íbúa. Lang­flestir inn­flytj­endur á Íslandi koma frá Póllandi, eða um 40 pró­sent. Næst­stærsti hóp­ur­inn eru karlar sem koma frá Litháen og Lett­landi til að vinna hér á landi, eða um 5 pró­sent. Síðan er það fólk frá Fil­ipps­eyjum sem leitar hingað til lands. Þessi hópur hefur haft gott aðgengi að vinnu­mark­aði, er almennt í stétt­ar­fé­lögum og býr við áþekk gæði og öryggi og aðrir. Þeir mæta hins vegar hindr­unum við að sækja sér menntun, fá síður störf við hæfi, búa við þrengri hús­næð­is­kost og verri fjár­hags­stöðu en inn­lendir íbúar. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár