Sýndarveruleiki vinnur á fælni hjá einhverfum börnum

Mörg börn með ein­hverfu upp­lifa fælni sem getur háð þeim í dag­legu lífi. Ný rann­sókn sýnir að með því að nýta sýnd­ar­veru­leika er hægt að hjálpa börnum að vinna bug á fælni til langs tíma.

Sýndarveruleiki vinnur á fælni hjá einhverfum börnum

Sér­fræð­ingar við Newcastle-háskóla og starfs­fólk fyr­ir­tæk­is­ins Third Eye Neuro-Tech þró­uðu 360 gráðu sýnd­ar­um­hverfi sem inni­heldur það sem veldur fælni ein­stak­lings. Tæknin hefur fengið heitið The Blue Room og krefst ekki notk­unar á sýnd­ar­veru­leika­gler­augum, ólíkt mörgum öðrum sýnd­ar­veru­leika­lausnum.

Með­ferðin gengur út á það að ein­stak­lingur sem upp­lifir fælni fer í gegnum sýnd­ar­veru­leik­ann í sam­vinnu við með­ferð­ar­að­ila. Með­ferð­ar­að­il­inn stýrir því sem á sér stað í sýnd­ar­veru­leik­anum í gegnum spjald­tölvu en sá sem hlýtur með­ferð­ina hefur þó einnig stjórn á aðstæðum og getur hætt þátt­töku hvenær sem er.

25% upplifa fælni

Talið er að um 25% ein­hverfra barna upp­lifi fælni af ein­hverjum toga. Þær geta verið marg­vís­legar, allt frá hræðslu við blöðrur til þess að hræð­ast það að ferð­ast með almenn­ings­sam­göngum.

Eins og gefur að skilja getur fælnin haft mikil áhrif á dag­legt líf ein­hverfra barna sem og fjöl­skyldur þeirra. Þetta á sér í lagi við ef gera þarf ráð­staf­anir til að forð­ast það sem veldur fæln­inni. Það er því ljóst að aukin með­ferð­ar­úr­ræði gætu haft jákvæð áhrif á líf fjölda ein­hverfra ein­stak­linga.

Framfarir í allt að 45% tilfella

Í rann­sókn á áhrifum tækn­innar fengu 16 börn á aldr­inum 8–14 ára með­ferð í The Blue Room. Sam­an­burð­ar­hópur af sömu stærð fékk ekki með­ferð fyrr en sex mán­uðum síðar.

Með­ferðin sam­an­stóð af fjórum með­ferð­ar­tímum á einni viku þar sem sýnd­ar­veru­leik­inn var heim­sóttur og með­ferð­ar­að­ili hjálp­aði börn­unum að vinna bug á fæln­inni í gegnum hann. Eftir að með­ferð í gegnum The Blue Room var lokið próf­uðu börnin að mæta fæln­inni í raun­heimi ásamt for­eldrum sínum.

„Tveimur vikum eftir að með­ferð­inni lauk gátu fjögur af þeim 16 börnum sem fóru í gegnum með­ferð­ina mætt fælni sinni í raun­veru­leik­anum“

Tveimur vikum eftir að með­ferð­inni lauk gátu fjögur af þeim 16 börnum sem fóru í gegnum með­ferð­ina mætt fælni sinni í raun­veru­leik­anum. Sex mán­uðum síðar sýndu sex börn í heild­ina (38% hóps­ins) fram­farir. Hjá einu barni versn­aði fælnin.

Á meðan fylgst var með fyrri hópnum í sex mán­uði versn­aði fælnin hjá fimm börnum í sam­an­burð­ar­hópnum. Þegar þessu sex mán­aða tíma­bili lauk fékk sam­an­burð­ar­hóp­ur­inn sömu með­ferð. Í þeim hópi sýndu 40% barn­anna fram­farir eftir tvær vikur en 45% barn­anna sýndu fram­farir eftir sex mán­uði.

Jákvæðar niðurstöður hjá fullorðnum einstaklingum

Tæknin var einnig prófuð á átta full­orðnum ein­hverfum ein­stak­lingum á aldr­inu 18–57. Hver ein­stak­lingur hlaut fjórar 20 mín­útna með­ferðir. Eftir sex mán­uði sýndu fimm af hverjum átta þátt­tak­endum fram­farir.

Nið­ur­stöður rann­sókn­anna tveggja voru birtar í tveimur greinum. Annars vegar í tíma­rit­inu Journal of Autism and Develop­mental Dis­orders og hins vegar í Autism in Adulthood.

Hugsanlegt meðferðarúrræði til framtíðar

Í rann­sókn­unum var með­ferð veitt gegn fjölda mis­mun­andi fælna eftir því sem við átti hjá hverjum ein­stak­lingi fyrir sig. Meðal þeirra voru hræðsla við hunda, geit­unga, býfl­ugur, lyftur, myrkur, flug, dúkkur, blöðrur, almenn­ings­sam­göngur og skóla.

Þótt nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar lofi góðu voru þátt­tak­endur í báðum rann­sóknum fáir. Áfram­hald­andi rann­sóknir á tækn­inni eru á döf­inni og munu þær ein­beita sér að því að skil­greina betur árangur með­ferð­ar­innar sem og hversu lengi árang­ur­inn varir.

Vonir standa til að með því að nýta sýnd­ar­veru­leika á þennan hátt verði hægt að hjálpa ein­hverfum börnum sem hingað til hafa haft tak­mörkuð úrræði að vinna á kvíð­anum sem fylgir fælni.

Ítarefni:

https://www.sciencedaily.com/releases/2019/02/190214191939.htm

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Þekking

Þekking

Alheim­ur­inn í nýju og skarpara ljósi

Nýjasta stór­virki mann­kyns­ins, James Webb geim­sjón­auk­inn, er ætlað að skoða myndun fyrstu stjarna og vetr­ar­brauta alheims­ins. Hvar og hvenær kvikn­aði fyrsta ljósið í alheim­inum? Hvernig verða stjörnur og sól­kerfi til? Hvernig mynd­uð­ust vetr­ar­braut­irnar? Hvaða eðlis- og efna­fræði­lega eig­in­leika þurfa plánetur og sól­kerfi að hafa til að geyma líf? Fyrstu myndir sjón­aukans eru komnar. „Þær voru enn skýr­ari, skarp­ari og glæsi­legri en ég átti von á,“ segir Sævar Helgi Bragason.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár