Vefsíða kvenhatara notar íslenskt lén

Vefsíðan incels.me er hýst í Þýska­landi en er tíma­bundið birt á .is léni. Umræddur hópur er kyndir undir hatri gegn konum og telur að þær valdi skír­lífi þeirra, gegn þeirra vilja.

Vefsíða kvenhatara notar íslenskt lén
Umræðu­vett­vangur incels Síðan er ein af þeim síð­ustu sinnar teg­undar. Breyt­ingin á lén­inu skýrist af aðgerðum gegn þeim sem enda á lok­unum síðna þeirra. Mynd: Shutterstock

Umræðu­vef­síða hóps karl­manna sem kalla sig „incels“ er tíma­bundið hýst á íslensku léni. Incels eru hópur karl­manna sem hat­ast á við konur og tala sumir hverjir fyrir ofbeldi gegn þeim. Slóðin sem hefur í tæpt ár verið incels.me er nú óvirk, en þess í stað er hægt að nálg­ast síð­una á slóð­inni incels.is. Við komu á síð­una birt­ist aug­lýs­ing þar sem not­endur eru hvattir til að nota incels.is í stað incels.me þangað til annað kemur fram.

Hópurinn sem á íslensku er hægt að kalla „skír­lífir gegn eigin vilja“  stundar grimmi­lega hat­urs­orð­ræðu í garð kvenna á net­inu. Menn­irnir telja að skír­lífi þeirra sé sök kvenna sem sækja frekar í aðlað­andi karl­menn, í stað þess að sækja í menn sem eru góð­hjart­aðir en ekki eins aðlað­andi.

Umrædd síða er ein af síð­ustu spjall­svæðum incels-liða sem hýst er á net­inu í dag, en vegna stöðugra ábend­inga aðgerða­sinna til hýs­ing­ar­að­ila hefur umræðu­vef­síðum þeirra verið lokað. Þetta útskýrir breyt­ing­una á vef­hýs­ing­unni, hóp­ur­inn hefur að öllum lík­indum breytt um lén til að forð­ast lokun. Vefsíðan er hýst í Þýska­landi en breyt­ingin átti sér stað í lok sept­em­ber. Lén með end­ing­unni .is kostar 5.980 krónur á ári. 

Undir högg að sækja

Hópurinn hefur verið mjög virkur frá eig­in­legri stofnun sinni árið 2012. Þeir héldu sig aðal­lega á sam­fé­lags­miðl­inum Reddit þangað til sam­fé­lagi þeirra þar var lokað vegna hat­urs­orð­ræðu í nóv­em­ber 2017. 

Í dag má finna incels-hóp­inn í öllum kimum inter­nets­ins, þar á meðal á djúpa vefnum sem ekki er öllum aðgengi­legur. Síður þeirra eiga undir högg að sækja vegna aðgerða­sinna sem berj­ast gegn hat­urs­orð­ræðu þeirra. Þannig var öðru spjall­svæði þeirra sem hýst var á lén­inu .life lokað vegna ábend­inga aðgerða­sinna til hýs­ing­ar­að­il­ans. Þetta gerð­ist í febr­úar síð­ast­liðnum, en þá var kyn­ferð­is­af­brota­mað­ur­inn Larry Nassar fyrir dóm­sólum vegna brota hans gegn stúlkum undir lög­aldri. Á vef­síð­unni var hann tal­inn hetja. Samn­ingnum um hýs­ingu var rift eftir ábend­ing­arnar. 

Incels-liðar hafa framið í það minnsta tvö fjöldamorð

Árið 2014 myrti Elliot Rodger sjö manns í Kali­forníu, áður en hann framdi sjálfs­víg, undir sókn lög­reglu. Rodger var incel og nokkuð virkur á spjall­svæðum þeirra. Hann hélt einnig úti YouTube síðu þar sem hann tal­aði um reiði sína í garð kvenna vegna óvilja þeirra til að vera með honum.

Í maí 2018 keyrði Alek Minassian sendi­ferða­bíl í hóp fólks í Torontó, með þeim afleið­ingum að tíu manns létu lífið. Við hand­töku reyndi Minassian að ögra lög­reglu­mönnum til að skjóta sig til bana. Hann var hand­tek­inn og bíður dóms.

Markmið hans var að gera eins og Elliot Rodger og er það vin­sæl umræða á spjall­svæðum incels að láta sig dreyma um að „gera eins og ER“ eða „gera eins og Elliot Rodger“. Rodger er í guða­tölu í hugum incels vegna hug­rekkis síns. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár