111 milljóna skattamáli Jóns Inga vísað frá dómi

Jón Ingi Gíslason, fyrr­ver­andi for­maður Fram­sókn­ar­fé­lags Reykja­víkur, gegndi áfram trún­að­ar­störfum í flokknum þótt siða­nefnd teldi rétt­ast að hann segði sig frá þeim. 

111 milljóna skattamáli Jóns Inga vísað frá dómi

Hér­aðs­dómur Reykja­víkur vís­aði skatta­máli Jóns Inga Gísla­sonar, fyrr­ver­andi for­manns Fram­sókn­ar­fé­lags Reykja­víkur, frá dómi í morgun. Málið varðar upp­gjör á 44 fram­virkum gjald­miðla­samn­ingum sem Jón Ingi gerði við Glitni og skil­uðu honum tæp­lega 111 millj­ónum króna í fjár­magnstekjur árin 2007 og 2008. Hann taldi tekj­urnar ekki fram á skatt­fram­tölum og kom sér þannig undan greiðslu fjár­magnstekju­skatts upp á rúm­lega 11 millj­ónir króna. 

Skatt­rann­sókn­ar­stjóri hóf rann­sókn á mál­inu árið 2011 og vís­aði því í fram­hald­inu til rík­is­skatt­stjóra og emb­ættis sér­staks sak­sókn­ara, nú hér­aðs­sak­sókn­ara. Samkvæmt nið­ur­stöðu Rík­is­skatt­stjóra var Jóni Inga gert að greiða skatt­inn með 25 pró­senta álagi, en mál sér­staks sak­sókn­ara gegn honum var þing­fest árið 2013. Jón Ingi steig í kjöl­farið til hliðar sem for­maður Fram­sókn­ar­fé­lags­ins í Reykja­vík. „Það hljóta að vera und­ar­legar sakir að ákæra menn fyrir að telja ekki fram tap, pen­inga sem menn aldrei fengu, aldrei vissu af og höfðu engan ráð­stöf­un­ar­rétt yfir. Þetta voru kall­aðar galdra­brennur hér áður fyrr,“ sagði Jón Ingi um málið í sam­tali við Við­skipta­blaðið árið 2013. 

Hér­aðs­dómur Reykja­víkur komst aðþeirri nið­ur­stöðu í dag að beit­ing álags­ins hjá skatt­yf­ir­völdum ann­ars vegar og hins vegar rann­sókn sér­staks sak­sókn­ara og ákæra í mál­inu sé reist á sömu ann­mörkum á skatt­fram­tölum Jóns Inga. Umrædd mál taki að auki til sama tíma­bils og varði í aðal­at­riðum sömu fjár­hæðir. Þá vísar dóm­ur­inn til ne bis in idem-regl­unnar í Mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu sem leggur bann við tvö­faldri refsi­með­ferð.

Einnig var litið til heild­ar­tíma rekstur beggja mála. Jón Ingi hafi verið settur í óhæfi­lega óvissu um rétt­ar­stöðu sína, enda hafi óþarfa tafir orðið á öllum stigum mála­rekst­urs­ins sem Jóni Inga verði ekki kennt um, þar með talið hjá skatt­yf­ir­völdum og ákæru­vald­inu þar sem engar skýr­ingar voru gefnar til rétt­læt­ingar á þeirri töf.  

Eins og DV greindi frá í fyrra komst siða­nefnd Fram­sókn­ar­flokks­ins að þeirri nið­ur­stöðu að Jóni Inga bæri að stíga til hliðar úr öllum trún­að­ar­störfum fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn á meðan skatta­mál hans væru til með­ferðar fyrir dóm­stólum. Jón Ingi virð­ist þó áfram hafa gegnt trún­að­ar­störfum fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn, því sam­kvæmt vef Reykja­vík­ur­borgar er hann áheyrn­ar­full­trúi í stjórn­kerfis- og lýð­ræð­is­ráði Reykja­vík­ur­borgar fyrir hönd Fram­sóknar og flug­vall­ar­vina og var við­staddur síð­asta fund ráðs­ins þann 26. febr­úar síð­ast­lið­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Dómsmál

Ógnaði heimilisfólki með heimagerðu sverði
FréttirDómsmál

Ógnaði heim­il­is­fólki með heima­gerðu sverði

Hér­aðs­dómur Vest­ur­lands dæmdi fyrir skömmu mann fyrir lík­ams­árás, hús­brot og akstur undir áhrifum áfengis. Í lýs­ingum vitna er sagt frá því að mað­ur­inn hafi kýlt heim­il­is­mann sem reyndi að koma í veg fyrir að mað­ur­inn kæmi inn um glugga á hús­inu. Þá er einnig sagt frá því að mað­ur­inn hafi á einum tíma­punkti dregið fram heima­gert sverð á sveiflað því í kringum sig fyrir utan húsið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár