Mynd: Heiða Helgadóttir

Svona dreifist hækkun fjármagnstekjuskattsins

Tekju­háir á aldr­inum 50 til 70 ára standa að mestu leyti undir hækkun fjár­magnstekju­skatts­ins. Aðgerðin er „leið til að gera skatt­byrð­ina rétt­lát­ari og auka jöfnuð“ sagði Katrín Jak­obs­dóttir í ára­móta­ávarpi sínu.

Hækkun fjár­magnstekju­skatts­ins leggst að lang­mestu leyti á tekju­hæstu 10 pró­sent lands­manna, einkum rík­asta eina pró­sentið og fólk á aldr­inum 50 til 70 ára. 

Umræddur skattur – sem leggst á vaxta­tekjur, arð, sölu­hagnað og leigu­tekjur utan rekstrar – hækk­aði úr 20 pró­sentum upp í 22 pró­sent um ára­mótin í sam­ræmi við nýsam­þykkt fjár­lög árs­ins 2018.

Um leið hækk­aði frí­tekju­mark vaxta­tekna ein­stak­linga úr 125 þús­undum í 150 þús­und krónur. Fyrir vikið munu lang­flestir greið­endur fjár­magnstekju­skatts ekki taka á sig þyngri byrðar þrátt fyrir hækkun skatt­hlut­falls­ins. 

Gert er ráð fyrir að hækk­unin skili sam­tals 2,6 millj­örðum í rík­is­sjóð. Eins og Stundin hefur áður greint frá kemur þar af meira en millj­arður frá tekju­hæsta eina pró­sent­inu, þeim hópi sem tók til sín um 45 pró­sent pró­sent allra fjár­magnstekna á síð­asta ári. 

Í gögnum sem efna­hags- og við­skipta­nefnd Alþingis fékk frá fjár­mála­ráðu­neyt­inu þegar fjár­laga­frum­varpið var til með­ferðar á Alþingi er að finna mynd­rænt yfir­lit yfir dreif­ingu skatta­hækk­un­ar­innar á tekju- og ald­urs­hópa. 

Byggt er á skatt­grunn­skrá frumálagn­ingar á ein­stak­linga á árinu 2017 og þannig sýndur mun­ur­inn á álagn­ingu fjár­magnstekju­skatts eins og hún var árið 2017 og hvernig álagn­ing fjár­magnstekju­skatts hefði verið á sama ári ef skatt­hlut­fallið hefði verið 22 pró­sent. Á fyrri mynd­inni er íslenskum skatt­greið­endum raðað niður í 10 hópa eftir heild­ar­tekjum, þeim tekju­lægstu fyrst og þeim tekju­hæstu síð­ast. Síðari myndin sýnir ein­göngu hækkun skatt­byrð­innar eftir ald­urs­bilum.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra vék að hækkun fjár­magnstekju­skatts­ins í ára­móta­ávarpi sínu á gamlárs­kvöld.

„Eitt af því sem blasir við er hið gríð­ar­lega mik­il­væga verk­efni að sjá til þess að allir fái notið vel­meg­unar á Íslandi. Vaxandi ójöfn­uður í heim­inum er af ýmsum alþjóða­stofn­unum met­inn ógn við hag­sæld en líka ógn við frið og lýð­ræði. Þó að jöfn­uður á Íslandi hafi mælst hlut­falls­lega mik­ill í alþjóð­legum sam­an­burði er full ástæða til að gera betur,“ sagði hún.

„Þegar glímt er við ójöfnuð er mik­il­vægt að líta til þess hvar ójöfn­uð­ur­inn er mestur en á Íslandi er það í eigna­tekjum. Þess vegna er hækkun fjár­magnstekju­skatts sem sam­þykkt var nú fyrir ára­mót leið til að gera skatt­byrð­ina rétt­lát­ari og auka jöfnuð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár