Mynd: Heiða Helgadóttir

Vonar að lögregla eigi enn gögn úr tölvum Roberts Downey

Anna Katrín Snorra­dóttir er sjötta konan til þess að leggja fram kæru á hendur Roberti Downey, áður Róberti Árna Hreið­ars­syni. Anna Katrín treystir á að lög­regla eigi enn gögn sem gerð voru upp­tæk við hús­leit hjá Róberti árið 2005 en hana grunar að þar séu meðal ann­ars myndir sem hún sendi „Rikka“ þegar hún var 15 ára gömul.

Í sept­em­ber 2007 fékk Anna Katrín Snorra­dóttir eitt stærsta kvíða­kast sem hún hafði nokkurn tíma fengið. Hún lagð­ist í gólfið, skalf og grét óstjórn­lega. Konráð Guð­munds­son, kær­asti hennar, skildi ekki hvað væri að ger­ast eða hvað hefði valdið kon­unni í lífi hans slíkri van­líðan og reyndi árang­urs­laust að fá hana til að tala við sig. Það sem hann vissi ekki var að sama dag höfðu verið fluttar fréttir af því að Róbert Árni Hreið­ars­son lög­maður hefði verið dæmdur í þriggja ára fang­elsi í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn fjórum ung­lings­stúlkum og að við hús­leit heima hjá honum hefði fund­ist minn­is­bók með nöfnum og síma­núm­erum 335 stúlkna. Nú kæm­ist upp um hana, hugs­aði Anna með hryll­ingi, og þegar hún róað­ist greindi hún kærasta sínum frá því að hún ætti það sam­eig­in­legt með þessum stúlkum að hafa „lent í Róberti Árna“ sem ung­lingur. Þetta var í fyrsta skipti sem hún sagði nokkrum frá því sem hafði gerst. 

„Ég kenndi sjálfri mér ennþá um allt sem hafði gerst og það bloss­aði upp hræðsla um að nú kæm­ist allt upp. Við Konni vorum nýbyrjuð að búa saman og ég var viss um að ef hann kæm­ist að þessu myndi honum finn­ast ég ógeðs­leg og fara frá mér. Á end­anum brotn­aði ég algjör­lega niður og sagði honum frá öllu.“

Hringdu á sjúkrabíl vegna kvíðakasts

Í síð­asta mán­uði voru sagðar fréttir af því að Robert Downey, áður Róbert Árni Hreið­ars­son, hefði fengið lög­manns­rétt­indi sín aftur eftir að hafa fengið upp­reista æru í sept­em­ber á síð­asta ári. Anna Katrín segir að morg­un­inn eftir að fyrsta frétt var sögð af mál­inu hafi móðir hennar hringt í hana og spurt hvernig henni liði. „Ég hafði ekki hug­mynd um hvað hún væri að tala um og fór beint á vef­miðl­ana. Þar blasti við stór mynd af honum og fréttin af því að hann hefði fengið upp­reist æru og lög­manns­rétt­indi sín á ný. Ég varð ótrú­lega dofin og fannst þetta svo óraun­veru­legt, trúði því ekki að þetta gæti gerst,“ segir Anna. 

Þegar Nína Rún Bergs­dóttir, ein þeirra fjög­urra stúlkna sem Róbert var dæmdur fyrir að mis­nota árið 2007, tjáði sig um málið á Facebook ákvað Anna Katrín að hafa sam­band við hana. „Þegar ég sá þessa frétt fyllt­ist ég ein­hverri rétt­læt­is­kennd og fannst ég þurfa að stíga fram,“ segir Anna. Í kjöl­farið komst hún í sam­band við Stein­unni Guð­bjarts­dóttur, sem var rétt­ar­gæslu­maður Nínu Rúnar á sínum tíma. „Steinunn gerði mér grein fyrir því að hluti af mínu máli væri fyrndur, það er það sem gerð­ist á árunum 2001 til 2002, en alvar­leg­ustu brotin áttu sér stað árið 2004 og það er ekki fyrnt. Hún bað mig um að hugsa mig vel um hvort mér þætti þess virði að fara í gegnum dóms­mál. Ég ætti alltaf rétt á að kæra, þetta færi alltaf á hans kæru­skrá, en að það væru um átta­tíu pró­sent líkur á að málið yrði fellt niður og ég ætti að und­ir­búa mig undir það líka. Ég tal­aði við Stein­unni á mánu­deg­inum eftir að fréttin um upp­reist æru birt­ist og hún bað mig um að hugsa mig um í eina viku.“

 

Anna Katrín seg­ist hins vegar ekki hafa þurft heila viku til þess að taka ákvörðun. Eftir að hafa liðið illa alla helg­ina fékk hún alvar­legt kvíða­kast síðar um kvöldið, verra en þegar hún heyrði af dómnum árið 2007. „Ég gjör­sam­lega brotn­aði saman og grét og grét. Síðan fór ég að fá alls konar lík­am­leg ein­kenni; hjart­slátt­ar­trufl­anir, svita, skjálfta og ólýs­an­lega óraun­veru­leika­til­finn­ingu. Ég hef fengið kvíða­köst áður, en þetta kvöld hélt ég að ég væri að deyja. Maðurinn minn ákvað að hringja á sjúkra­bíl og bráðalið­arnir sem komu heim náðu að róa mig niður. Ég ákvað því að fara ekki með þeim upp á spít­ala.“

Eftir þetta seg­ist hún hafa gert sér grein fyrir því hversu mikil áhrif þetta mál hefði haft á hana alla tíð, ekki bara and­lega heldur einnig lík­am­lega. „Þetta kvöld tók ég ákvörðun um að stíga fram og skila skömminni. Og ég vissi strax að ég vildi gera það opin­ber­lega.“

Anna Katrín er sjötta stúlkan til þess að leggja fram kæru gegn Robert Downey, en hún fór í skýrslu­töku hjá lög­reglu í síð­ustu viku. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Uppreist æru

„Við erum ennþá meðvirk með spillingunni“
MenningUppreist æru

„Við erum ennþá með­virk með spill­ing­unni“

Karl Ágúst Úlfsson er einn ást­sæl­asti leik­ari og höf­undur þjóð­ar­innar. Hann hefur látið sig sam­fé­lags­mál varða í ára­tugi, fyrst á vett­vangi Spaug­stof­unnar, sem valda­menn töldu að væri á mála hjá óvin­veittum öflum. Hann segir að sig svíði þegar níðst er á lít­il­magn­anum og hvernig feðra­veldið verji sig þegar kyn­ferð­is­legt ofbeldi kemst á dag­skrá. Ný bók hans, Átta ár á sam­visk­unni, er safn smá­sagna um fólk í sál­ar­háska.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár