Litlar vonir um vor Röð lægða er vænt­an­leg yfir Ísland allt fram yfir páska. Mynd: Golli

Lægðir í röðum dynja á Íslandi fram yfir páska

„Stóri boli“ sendir óveður til Íslands. „Gult ástand“ í gildi með hléum. Fólk mun þurfa að skipuleggja ferðalög á milli lægða, miðað við spá.

Einar Sveinbjörnsson veður­fræðingur, sem heldur úti veður­vefnum Bliku.is, varar við röð lægða sem berast til Íslands undan veður­fyrirbærinu „Stóra bola“ sem hímir við Grænland og Norður -Kanada.

Þannig kemur laugardags­lægð á morgun, minni þriðjudags­lægð, skeinu­hætt Skírdags­lægð og enn önnur á föstu­daginn langa. Tilkomu­mesta lægðin sé páskadags­lægðin áætlaða.

Hann segir í Facebook-færslu allt geta breyst, en „líkur á viðsnúningi í átt til vorlegra veðurs fyrir páska eru hins vegar litlar, eiginlega afar litlar.“

Gul viðvörun er fyrir alla lands­hluta með hléum í dag og á morgun, aðra en Norð­austurland.

Það verður hvöss suðaustanátt og snjókoma á höfuð­borgar­svæðinu, með lélegu skyggni og erfiðum aksturs­skilyrðum frá klukkan 18 á morgun til 22, samkvæmt viðvörun Veður­stofunnar, sem kallar þetta „gult ástand“.

Annars staðar skiptast á austan hríðir og norðvestan- eða norðan­stormur eða -rok. Lítið skánar það næstu tíu daga.

„Stóri boli“Einar Svein­björns­son veð­ur­fræð­ingur bendir á komu djúprar lægðar á morgun. „Með­al­kortið er spá næstu 10 daga eða til 5. apríl (páska­dagur). Hæð 500 hPa flat­ar­ins í um 5,5 km og frá­vikin frá með­al­tali apr­íl­mán­aðar. Litirnir verða heldur dauf­ari ef miðað væri við með­al­tal mars­mán­aðar,“ segir Einar Svein­björns­son.
App­el­sínugult ástandFerða­menn í mynda­töku í mið­borg Reykja­víkur í gær.

„Það er engan vorbrag að sjá á kalda hvirflinum í háloftunum sem kenndur er við „Stóra bola“. Hann er líka á versta stað og enn er óþægilegur „leki“ frá honum um S-Grænland og í áttina til okkar,“ segir Einar og vísar til veður­fyrir­bærisins Stóra bola, sem er kaldur hvirfill stað­settur fyrir vestan Grænland og í Norður-Kanada.

Þannig segir Einar að það verði „ströng suðvestan-vindröst“ suður og suðvestur í höfum næstu 10 daga, þar sem kalda loftið frá Kanada mætir hlýju og röku  Atlanthafsloftinu. „Kjörað­staður lægðanna og Ísland áfram skotskífa þeirra,“ segir Einar. 

Einar segir að þeir sem ætli að ferðast um páskana muni þurfa að „áætla ferðadaga þegar dúrar aðeins á milli lægðanna“.

„Samgöngur munu vafalítið raskast ítrekað áfram og milli­landaflugið þarf trúlega stundum einnig að sæta lagi,“ segir Einar, veður­fræðingur á Bliku.is.

Loksins vetr­ar­veðurEftir mikla snjó­komu í Reykja­vík í októ­ber tók við milt veður og kyrrt á víxl. Á þessum myndum úr borg­inni í gær má sjá síð­bú­inn vet­ur­inn heilsa gestum og gang­andi.
Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár