„Það sem gerðist á sunnudaginn er á margan hátt óvenjulegt“

Banaslys eins og það sem varð á Breiða­merk­ur­jökli um síð­ustu helgi eru ekki mjög algeng, að mati upp­lýs­inga­full­trúa Lands­bjargar. Hann segir björg­un­ar­sveit­irnar enn vel í stakk búnar til þess að bregð­ast við óhöppum og slysum þrátt fyrir fjölgun ferða­manna og að slíkum til­vikum hafi ekki fjölgað í takt við vax­andi ferða­manna­straum.

Fjölgar ekki
Fjölgar ekki „Ef við horfum ískalt á þetta yfir síð­ustu tíu ár þá eru slysum á ferða­mönnum alls ekki að fjölga í neinu sam­ræmi við fjölgun ferða­manna,“ segir Jón Þór. Mynd: Landsbjörg

Banaslys sem varð á Breiða­merk­ur­jökli síð­ast­lið­inn sunnu­dag er með alvar­legri útköllum sem Lands­björg hefur farið í vegna ferða­manna á síð­ustu árum. Slys af þessum toga eru ekki mjög algeng, segir Jón Þór Víglunds­son, upp­lýs­inga­full­trúi Lands­bjargar, sem telur að slysum á ferða­mönnum hafi ekki fjölgað í takt við fjölgun þeirra hér á landi. 

„Það sem gerð­ist á sunnu­dag­inn er á margan hátt óvenju­legt,“ segir Jón Þór.

Algeng­ustu slysin eru á þá leið að fólk hefur snúið sig illa á göngu­leið eða ofmetið getu sína að ein­hverju leyti. Hann tekur sem dæmi að Hjálp­ar­sveit skáta í Hvera­gerði sæki nán­ast viku­lega fólk upp í Reykja­dal sem hefur ofmetið eigið þrek og van­metið göng­una.

„Ef við horfum ískalt á þetta yfir síð­ustu tíu ár þá er slysum á ferða­mönnum alls ekki að fjölga í neinu sam­ræmi við fjölgun ferða­manna,“ segir Jón Þór. „Við viljum meina að að hluta til höfum …

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Stjórnleysi í ferðaþjónustu

GreiningStjórnleysi í ferðaþjónustu

Slys og dauðs­föll ferða­manna eru ekki skráð sér­stak­lega

Mikil umræða um öryggi ferða­manna fór af stað í kjöl­far slyss­ins í Breiða­merk­ur­jökli síð­ast­lið­inn sunnu­dag. Fréttir af alvar­legum slysum meðal ferða­manna birt­ast reglu­lega í fjöl­miðlum og vekja gjarnan óhug. Hins vegar er hvergi að finna mið­læga skrá þar sem haldið er utan um tíðni slysa á meðal ferða­manna hér á landi.
FréttirStjórnleysi í ferðaþjónustu

Engu mun­aði að stór­slys yrði í Kötlu­jökli 2018: „Mér leið eins og ég væri í hryll­ings­mynd“

Jón­as Weld­ing Jónas­son, fyrr­ver­andi leið­sögu­mað­ur, forð­aði 16 við­skipta­vin­um sín­um naum­lega frá því að lenda und­ir mörg­um tonn­um af ís í ís­hella­ferð í Kötlu­jökli sumar­ið 2018. „Það hefði eng­inn lif­að þarna af ef við hefð­um ver­ið þarna leng­ur. Þetta sem hrundi voru tug­ir tonna." Hann segir sum­arið ekki rétta tím­ann til að fara inn í íshella, eins og nýlegt banaslys á Breiða­merk­ur­jökli sýnir.
FréttirStjórnleysi í ferðaþjónustu

„Sem ráð­herra og mann­eskju þykir mér þetta afskap­lega leitt“

Lilja Alfreðs­dóttir, ráð­herra ferða­mála, segir að koma hefði mátt í veg fyrir slysið á Breiða­merk­ur­jökli. „Það var búið að vara við þessu og ekki gert meira með það.“ Hún seg­ist búin að kanna líðan kon­unnar sem slas­að­ist og missti unnusta sinn í slys­inu og koma á fram­færi skila­boðum um að yfir­völd séu boðin og búin að aðstoða hana eftir fremsta megni.

9 mín. lestur

FréttirStjórnleysi í ferðaþjónustu

Hræði­legur atburður sem ýtir við okkur

Ferða­mála­stjóri telur tíma­bært að koma aftur böndum á þann fjölda sem fer upp á Vatna­jökul hverju sinni. Álags­stýr­ing tíðk­að­ist fyrir kór­ónu­veiru­far­aldur en hún var felld úr gildi í far­aldr­inum. Banaslys varð á jökl­inum um síð­ustu helgi en örygg­is­á­ætlun fyr­ir­tæk­is­ins sem fór ferð­ina lá ekki fyrir hjá Ferða­mála­stofu, enda er inn­lagnar slíkrar áætl­unar ekki kraf­ist við umsókn um leyfi. Það fyr­ir­komu­lag er nú til end­ur­skoð­unar.
FréttirStjórnleysi í ferðaþjónustu

„Við vitum að þetta er hættu­legt“ – en eng­inn ber ábyrgð­ina

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Veð­ur­stof­unni og drögum að áhættu­mati úr skýrslu Jarð­vís­inda­stofn­unar hefðu íshella­ferðir átt að vera bann­aðar dag­inn sem banaslys varð á Breiða­merk­ur­jökli, sökum hita­stigs. Hug­myndir um bætt öryggi ferða­manna hafa strandað, áhættu­mat hefur ekki verið fram­kvæmt og hver bendir á annan þegar kemur að end­an­legri ábyrgð. Enda er engin stök stjórn­sýslu­stofnun sem ber ábyrgð á öryggi ferða­manna hér á landi.

14 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár